Alþýðumaðurinn - 30.06.1931, Blaðsíða 1
ALÞYÐUMAÐDRINN
I. árg.
Akureyri, I’riðjudaginn 30. Júní 1931.
36. tbl.
»Dómurinn fallinn.«
»Dagur«, síðasta tölublað, er all
hreykinn yfir kosningaúrslitunum
nú. Honum sýnist að »dómur«
þjóðarinnar í kjördæmaskipunar-
málinu hafi orðið með Framsókn.
En hvernig er þessi »dómur«
þjóðarinnar, sem veitt hefir Fram-
sóknarflokknum 21 þingsæti við
þessar kosningar?
Kosn'ngarnar bera það með sér,
að aðeins rúmur 'h hluti þeirra
kjósenda, sem greitt hafa atkvæði
við þessar kosningar, hafa fylgt
málstað Framsóknar í kjördæma-
skipunarmálinu. Hinir 5/3 hlutar
kjósendanna vilja fá bætt úr því
bersýnilega ranglæti sem ríkir í
kjördæmaskipuninni.
Pess er heldur ekki að undra þó
meirihluti íslensku þjóðarinnar vilji
afnema það ranglæti, sem nú sýnir
sig best að er ríkjandi í kjördæma-
skipun landsins, þar sem Va kjós-
enda getur skipað stérkan meirihluta
að þingmannatölu á þingi þjóðar-
innar, af því að hlutar þeirra fá
ekki að njóta eðlilegs réttar.
Tiltölulega er stutt síðan að allar
konur Iandsins voru útilokaðar frá
því að eiga atkvæði um þjóðarmál.
Álíka langt er síðan að vinnuhjú,
karlar og konur, voru svift réttinum
til þáttöku í landsmálum.
Á síðustu árum hafa augu Iög-
gjafanna opnast fyrir því, að slíkt
væri hin mesta ósvinna að banna
konum og vinnuhjúum afskifti af
þjóðmálum.
Fáir munu þó efast um að það
hafi valdið allmiklu umróti í póli-
tísku lífi þjóðarinnar, að þessi hluti
hennar, konur og vinnuhjú.fóru að
taka virkan þátt í þjóðmálum. —
Kjósendatala Iandsins gerði meira
en að tvöfaldast við þessa breyt-
ingu. Þó munu fáir þeir afturhalds-
seggir nú vera til, sem haldi því
fram, að ekki hefði átt að veita
konum og vinnuhjúum þenna rétt.
Nú virðist þó svo komið, að
niðjar þeirra bænda í landinu, sem
áður héldu pólítískum rétti fyrir
konum sínum og vinnuhjúum —
hafi það eitt áhugamál, að halda
hliðstæðum rétti fyrir a/s kjósenda
í landinu, af því einu, að þeir eru
ekki búendur á jörð, konur eða
vinnuhjú í sveit. Er sú kenning
all fávísleg, að sá maður, sem er
háseti á skipi, verkamaður á möl-
inni, eða húsgagnasmiður í kaup-
stað, eigi ekki að hafa jafnan rétt
við vinnumann sem slær gras upp
í sveit eða bindur hey, til þess að
ráða hverjir sitji á þingi þjóðarinn-
ar — eða kona sem sefur hjá bónda
upp í sveit, eigi að hafa tvöfalt at-
kvæði um þjóðleg mál á móti
kaupstaðarkonunni, þó báðar vinni
lík heimilisverk.
Pví hefir verið haldið fram af
þröngsýnum og afturhaldssömum
mönnum í þjóðréttindamálum, að
einhver hætta stafaði af því að
kjósendur í kaupsiað hefðu jöfn
réttindi við kjósendur til sveita um
landsmál.
Slíku hinu sama var haldið fram
af eintrjáningum þjóðmálanna gegn
því að konur fengju jafnrétti við
karlmenn og vinnuhjú við hús-
bændur. —■ Heimilisföður átti að
stafa einhver hætta af því að kon-
an riði á kjörfund með honum, eða
vinnuhjúin stæðu húsbændunum
jafnfætis í því að greiða atkvæði
um þjóðmál. — Nú er þessi
margra alda þröngsýni brotin á bak
aftur þó skamt sé síðan. En upp
úr þessum margra alda gamla
þröngsýnis hugsunarhætti, að hús-
mm nýja bió mm
Midvikudagskvöldkl. 8l/i
„Efl vil tkki írufla;
Kvikmyndasjónleikur í 7 þátt-
um. — Aðalhlutverkin leika:
Ann May Wong
og
Lonis Lerch.
Afar spennandi mynd úr stór-
borgalífinu. — Hún gerist í
París og sýnir fjölda æfintýra.
bóndinn eigi einn að hafa atkvæði
um þjóðmál, virðist vera sprottin
sú skoðun, að bændurnir í sveit-
unum eigi að ráða fram úr vanda-
málum kaupstaðanna og sjávar-
þorpanna, en ekki borgarar kaup-
staðanna sjálfra eða sjávarþorpanna.
Sé leitað samanburðar á sveitun-
um og kaupstöðum landsins í því
á hverjum stöðunum hafi orðið
meiri framfarir á síðustu þrem tug-
um ára, mun fáum dyljast það, að
kaupstaðirnir bera af landhéruðun-
um í því er Iítur að framtaki og
forystu í atvinnumálum, skólamál-
um, og öðru því er til þjóðþrifa
horfir. Ætti því framtakið að ráða,
mun fáum dyljast að það er hin
m'esta glópska, að ætla að svifta
kaupstaði og sjávarþorp eðlilegri
þátttöku í landsmálum, með því að
halda fyrir þeim rétti til jafns við
sveitir landsins um þátttöku í þjóð-
málunum.
Sú hjákátlega vitleysa kom fram
fyrir skömmu síðan, á aðalfundí
Kaupfélags Eyfirðinga, sem nú