Alþýðumaðurinn

Issue

Alþýðumaðurinn - 07.07.1931, Page 1

Alþýðumaðurinn - 07.07.1931, Page 1
I. árg. Fábeyri verklyíssvik. Stjórn Söltunarfélags verka- lýðsins á Akureyri liýður nið- ur söltunarlaun sílflar og stofn- ar til kauplækkunar. 'Verkamaðurintu ver ó- sómann. Fyrir nokkru var þess getið hér í blaðinu, að Síldareinkasalan hefði, til ákveðins tíma, slept tilkalli til að ráðstafa síldveiðaskipum, og skyldu síldveiðendur og saltendur sjálfir semja um verkun síldarinnar. Trúlegt hefði nú verið, að hinir svokölluðu »síldarspekúlantar« hefðu notað sér þetta aukna frelsi og gripið til hinnar frjálsu samkeppni; boðið niður verkunarlaunin og gert tilraun til að lækka kaup verka- fólksins, sem að síldarverkun vinn- ur. — En þeir urðu ekki fyrstir til þess. Stjórn Söltunarfélags verkalýðs- ins á Akureyri byrjar á að bjóða niður söltunarlaunin um 50 aura á tunnu og stofnar með því til kaup- lækkunar. Ekki væri undarlegt þó ýmsum yrði á að spyrja þrisvar um það, hvort þetta væri satt. Svo fáheyrt er það og ólíklegt. En hér er á- rangurslaust að spyrja. Stjórn Söltunarfélagsins hefir þverbrotið verklýðssamtökin á háskalegasta tíma og brotið ísinn fyrir þá at- vinnurekendur, sem sífelt sitja um tækifæri til að lækka vinnulaun verkalýðsins. Undanfarin ár hefir Síldareinka- salan ákveðið söltunarlaunin. Pau hafa verið miðuð við það, að vinn- an við síldarverkunina væri greidd Akureyri, f’riöjudaginn 7. Júlí 1931. samkvæmt taxta verklýðsfélaganna. Hafi einhver saltandi leitað á að greiða lægra en taxta, hefir verka- fólkið haft þetta að bakhjalli og átt auðvelt með að ná réttti sínum. Að bjóða niður söltunarlaunin er því hreint og beint að svifta verka- lýðinn því öryggi, sem undanfarin ár hefir gert honum kleyft að krefjast sæmilegra launa fyrir síld- arvinnuna og trygt honum skilvísa greiðslu verkalaunanna. Heyrst hefir að stjórn Söltunar- félagsins hafi tekið þessa ákvörðun með það fyrir augum, að félaginu gengi betur, eftir en áður, að fá skip til að skifta við sig. Petta er hin mesta hugsunarvilla. Fyrst er það, að sá sem byrjar á að undir- bjóða aðra, vekur strax á sér þann grun, að hann, einhverra hluta vegna, standist ekki fulla sam- keppni við aðra. Petta verður allt eins oft til að hrinda viðskiftamönn- unum frá, eins og að draga þá að. í öðru lagi hefir undirboðið, þegar opinbert er orðið, þær eðlilegu af- leiðingar að aðrir fara jafn Iágt, og hin bætta aðstaða, sem undirboðið átti að veita, er þar með horfin úr sögunni. Aðstaða félagsins er því í engu bætt með þessari ráðstöfun. En þetta er ekki alvarlegasta hlið málsins, þó alvarleg sé, hvað snert- ir einstaklinga Söltunarfélagsins. — Voðinn, sem þessi ráðstöfun leiðir yfir verkalýðinn, er sá, að stofnað er til kauplækkunar hjá öilum verkalýð, sem við síldarverkun vinnur. Söltunarlaunin lækka, og þar með þykjast atvinnurekendur fá átyllu til að krefjast kauplækk- unar hjá síldarfólkinu, átyllu, sem ekki var til, meðan söltunarlaunin voru fast ákveðin af Síldareinka- sölunni. Og hver ábyrgist nema 37. tbl. verkalýðurinn láti undan þegar atvinnuíeysi þjáir allan fjöld- ann? Parna fyrir utan er framkoma stjórnar Söltunarfélagsins bein svik við verklýðssamtökin. Verkakvennafélögin, sem ákveða kauptaxta við síldarverkun, voru búin að gefa út taxta sína fyrir þetta ár. Taxtarnir voru miðaðir við, og settir í því fulla trausti, að saltendur fengju síldarverkunina eins vel borgaða og undanfarin sumur. Að bjóða söltunarlaunin niður, eru því bein svik við verk- lýðsfélögin, þar sem undirstaðan — sem kauptaxtarnir byggjast á — raskast. Verður það aldrei um of átalið, að það skuli vera stjórn verklýðsfclags, sem byrjar á þeim leik. — Og það skeður fleira ólíklegt en þetta í þessu máli. Blað kommúnistanna hér á staðn- um, »Verkam.«, mælir þessu athæfi bót; telur það rétt og eðlilegt og til gróða fyrir verkalýðinn. Blað, sem í tíma og ótíma ætlar að springa af kauphœkkunarretnbingi, heldur því fram, að verkalýðurinn eigi að hækka kaupið ár frá ári, án tillits til ástands atvinnuveg* anna og atvinnurekenda, og aldrei fær nógsamlega úthúðað gætnari mönnum verklýðshreyfingarinnar, sem starfa af viti að kaupgjalds- málunum. Og ástæður blaðsins fyrir þessu eru aðallega tvær. Söltunarfélag verkalýðsins hafi ekki ástæðu til að ætla sér gróða af síldarsöltun- inni og eigi að auka hag sjómarma með því að bjóða söltunarlaunin niður. Þarna er ágætur spegill afverka- málahyggindum Einars Olgeirsson- ar og samherja hans. Kaup verkafólksins á að hækka

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.