Alþýðumaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Alþýðumaðurinn - 18.08.1931, Qupperneq 1

Alþýðumaðurinn - 18.08.1931, Qupperneq 1
I. árg. Akureyri, f'riðjudagiiin 18 Ágúst 1931. 44. tbl. Ráðstafanir vegna atvinnnkreppunnar. Ráðstafanir til að lækka dyrtíðina 10. gr. Frá 1. Oktober 1931 skal bæjar- stjórnum í öllum kaupstöðum heim- ilt að ákveða hámarksverð á húsa- Ieigu fyrir íbúðir, verslanir, skrif- stofur, atvinnufyrirtæki og annað, eftir nánari reglum, er bæjarstjórnir setja og ríkisstjórnin staðfestir, og skal það miðast við almennan byggingarkostnað, almenn lánskjör húseigenda og ástand húsanna. í reglugerð þessa má og setja á- kvæði um, að íbúðir, sem auðar kunna að standa, verði teknar til notkunar og að banna megi að breyta íbúðum í sölubúðir skrif- stofur, vinnustofur eða annað því líkt. Ennfremur að ekki megi vísa burtu leigjendum, sem standa í skiium með húsaleigu og brjóla ekki leigusamninga. Láti bæjar- stjórnir farast fyrir að nota heimild þessarar greinar, er ríkisstjórninni heimilt að ákveða hámarkshúsaleigu sem miðuð sé við hið sama og að öðru leyíi eftir þeim reglum, er ríkisstjórnin ein setur. Um leið og ákveðið hefir verið að nola heimild þessa, skal í við- komandi kaupstað skipuð húsaleigu- nefnd, sem sér um, að framkvæmd séu ákvæði þessara laga um há- marksleigu og reglugerða, er settar voru í samband við þau.. — Skal nefndin skipuð eigi færri en 3 mönnum og eigi fieiri en 5. Bæj- arstjórnir kjósa 2 menn í nefndjna, en ríkisstjórnin skipar þann þriöja. Nú sinnir bæjarstjórn ekki heinjild þessari og lætur farast fyrir að kjósa húsaleigunefnd, og gr þá ríkisstjórninni beimilt að fullskipa nefndina með þrem mönnum- Sé húseigendafélag á staðnum, er því heimilt að sjcjpa einn mann til við- bótar í nefndina, enda skipa þá verklýðsfélögin á staðnum jafnframt fimta manninn. U- gr. Til þess að lækka vöruverð, er ríkisstjórninni heimilt að ákveða á- lagningu heildsala og verslana og setja hámarksverð á þær aðfluttar vörur, sem nauðsyn þykir til bera. í sama skyni er bæjarstjórnum heimilt að taka í sínar hendur inn- an síns umdæmis einkasölu á mjólk brauði, fiski og kjöti, sem selt er til neyslu innanlands, eða ákveða hámarksverð á þessum vörutegund- um og setja reglur um sölu þeirra, er ríkisstjórnin staðfestir. — Neyti bæjarstjórn hvorugrar þessarar heimildar, er ríkisstjórninni heimilt að ákveða hámarksverðið og setja reglur um sölufyrirkomulagið. Til ráðuneytis um ákvörðun há- marksverós skal skipuð verðlags- nefnd fimm manna innan hvers umdæmis, og séu í henni tveir menn kosnir hlutfallskosningu af af bæjarstjórn eða sýslunefnd, einn skipaður af ríkisstjórninni, einn val- inn af verklýðsfélögunum á staðn- um og einn af kaupmönnum eða félgsskap þeirra á staðnum. Við ákvörðun hámarksverðs á aðfluttum varningi skal miða við innkaupsverð, að viðbættum hæfi- legum sölukostnaði, og þá miðað þann fjölda verslana og verslunar- fólks, er nægilegur lelst til að ann- ast verslunina innan umdæmisins. Við ákvörðun hámarksverðs á kjöti og físki skal miða við verðlag á erlendum markaði, að.fr.ádregnMm verslunar og útflutningskostnaði, á mjólk við alment fóðurverð á hverjum stað og .annan eðlilegan kostnað við framleiðsluna, og á brauði við innkaupsverð á mjöl- vörum og eðlilegan framleiðslu- kostnað — allt að viðbættum hæfi- legum sölukostnaði, með hliðsjón af því, að salan sé skipulögð á svo hagkvæman hátt, sem unt er eftir atvikum og ástæðum á hverj- um stað. 12. gr/ .. - íi Undanþiggja skal eftirtaldar vörus tegundir hverskonar innflutnings-. gjöldum: Niðursoðin mjólk, smjölr, smjörlíki, egg, ósætt kex og kaffi- brauð, óbreyttur fatnaður vefnaðarr. vörur, hlífðarföt, skófatnaður, þar • með taldir gúmmískór, og óbreytt búsáhöld. Ráðstafanir til stuðnings sjó* mönnum, bátaútyegsmönnum, verkamönnuin, bændum o. fl. 13. gr.í Ríkisstjórninni heimilastc 1) að ábyrgjast 3000000 kr, réikn- ingslán fyrir fiskveiðasjóð ís-1 lands, er hann síðan veiti sem rekstrarlán til samvinnufélaga og sjómanna og bátaútvegsmanna, eftir reglum, er ríkisstjórnin setur.) 2) að ábyrgjast rekstrarlán til Síld- areinkasölunnar, 1000000 kr. með sömu skilyrðum og sett eru fyr- ir slíkri ábyrgð í fjárlögum árs- ins 1931. 3) að taka ábyrgð á greiðslu Rússa- víxla fyrir þeirri upphæð,. er rússneska stjórnin kann að kaupa. fyrir fslenska síld eða aðrar út- flutningsvörur, enda gefi hún yfirlýsingu upi, að vörurnar verði ekki seldar utan rússneska rík- isins, alt að 5000000 kr. . (i.. 4) að veita undanþágu frá lögum nr. 55, 7. Maí 1928, um bann

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.