Alþýðumaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Alþýðumaðurinn - 25.08.1931, Qupperneq 1

Alþýðumaðurinn - 25.08.1931, Qupperneq 1
ALÞYÐUMADORINN • árg. [| Akureyri, Þriðjudaginn 25. Ágúst 1931. 46. tbl Atvinnubætur ríkisstjornarinnar. Eins og getið hefir verið um hér í blaðinu, ætlar ríkisstjórnin og flokkur hennar að slíta svo þessu þingi, að ekkert verður gert til að varna því, að til vandræða dragi hjá almenningi vegna atvinnuleys- isins, sem óhjákvæmilega er fram- undan. En ríkisstjórnin er ekki sofandi á öllum sviðum, og kemur dugnaður hennar fram í hinum fáránlegustu athöfnum. Pegar verklýðsfélögin, norðan- lands og vestan, sáu í fyrra að hverju fór með atvinnuleysí verka- lýðs og fjárkreppu, hófu þau sam- tök um það, að draga úr áfengis- kaupum almennings, með því að varna flutningi áfengisins frá Reykja- vík til útsölustaðanna á ísafirði. Siglufirði og Akureyri. I tilefni af þessu lögðu verkamannafélögin á þessum stöðum afgreiðslubann á þau skip, sern flyttu áfengi til þess- ara staða. Eftir að þetta hafði verið gert, tók fyrir vínflutning til þess- ara staða. Afgreiðslur flutningaskip. anna tóku ekki áfengi til flutnings til þeirra staða, er bannið var gild- andi fyrir- í sambandi við staðfestingu á nýrri bæjarreglugerð fyrir ísafjarðar- kaupstað, var samið um þessi mál milli ríkisstjórnarinnar og ísfirðinga. Er ekki flutt þangað nema Vs af áfengi móts við það sem var, að meðallali, þrjú s. I. ár, og áfeng isverslunin þar er ekki opin nema suma daga vikunnar. Siglufjörður og Akureyri hafa ekki samið, enda virðist ríkisstjórn- in ekki vera á þeim hosum. í sumar hefir bílfæri verið gott milli Rvíkur og Akureyrar. Fólkið notar sér þetta vel. Það hefir, sér til hressingar og skemtunar, farið um landið og skoðað fegurð þess og dásemdir íslenskrar náttúru. Stjórn áfengisverslunar ríkisins, sjálfsagt í samráði við áfengissal- ann hér, hefir nú tekið upp flutn- inga á áfengi landleiðina, þegar skipin ekki vildu flytja ófagnaðinn. Bílar frá bifreiðastöð Akureyrar liafa nú undanfarið staðið í þess- um flutningum og halda því senni- lega áfram, meðan færi leyfir. Petta munu vera fyrstu vöruflutn- ingarnir, sem eiga sér stað þessa leið og væri fróðlegt að vita hvort rík- isstjórnin myndi nokkurn tíma hat'a tekið þá upp, ef um nauðsynja- vöru hefði verið að ræða. Og dýrir þykja þeir, því fiaskan af áfenginu, sem svona er hingað komin, kvað vera seld 50 aurum hærra, en venju- legt verð er, til þess að standast Jaenna aukakostnað. Hvar heimild er fyrir þessari verðhækkun veit enginn. Hversu nauðsynlegir þessir áfeng- isflutningar eru, sést best þegar ástand atvinnuveganna og fjárhags- afkoma fólksins er athugað. Skyldi hlutur hásetanna á síldarskipunum verða þeim of drjúgur í búi, þó hann fari ekki fyrir áfengi? Reynsla undanfarinna ára er sú, að sorglega mikið af honum hefir farið í áfeng- isverslunina. Myridi verkatnönnun- um og bændnm ekki meiri þörf á að ríkisvaldið gerði eitthvað til hagsbóta almenningi, en að staifa að því að lokka út úr áfengissjúk- um og hugsunarlitlum mönnum þeirra síðasta pening fyrir áfengi? Vissulega! En ríkisstjórnin er nú svona und- arlega gerð. Samtímis sem hana skortir vilja og mátt til að koma í framkvæmd einu hagsmunamáli al- mennings, á hún 10 ráð og nægi- legt framkvæmdaþrek til að vinna almenningi ógagn. Og vinir hennar og stuðnings- menn styðja hana altaf, þegar vond verk eru á ferðinni. Að minsta kosti mun sprúttsal- inn hér aldrei hafa verið eins ánægður með sfjórnina og nú. Hljómurinn af skildingum háset- anna mun þegar vera farinn að skemta eyrum hans. Og auravonin til viðbótar við þær 20 þúsundir, setn hann kvað hafa haft í ágóða af sprúttsölunni undanfarin ár, mun ekki blanda galli í bikarinn. En ef fólkið tæki nú upp á þeim óvanda, að setja viðskiftabann á áfengissöluna og bifreiðastöðina, sem áfengið flytur? Hvernig færi þá um þessa þjóðþrifaráðstöfun og hver væri þá gróði hjálparenglanna? Pað getur alt komið fyrir á þess- um síðustu og verstu tímum. Verkamaöur. Varfærnl ntvarpslns. Það þarf ekki að saka ríkisút- varpið um það, að það geri athuga- semdir við framferði æðstu vatda ríkisins, eða deili á þau. Á þetta að vera svo kallað hlutleysi í frá- sögn. Á fyrra sunnudag sendi fréttaritari útvarpsins hér, Halldór Friðjónsson, útvaipinu stutt fréttaskeyti. í því var, meðal annars, þessi klausa. »Nokkrum tíðindum þvkir það sæta, og mælist illa fyrir hjá mörg- um, að áfengisverslun ríkisins ílytur hingað um þessar mundir áfengi á bílum frá Reykjavík, 3?ykir, sem

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.