Alþýðumaðurinn - 01.09.1931, Qupperneq 1
Ráðstaíanir Framsóknar
m atvinnuleysi og skorti.
Eftir alt glamrið og loforðin um
heillaríkar ráðstafanir til að bæta
hag þjóðarinnar, sleit Framsókn svo
þinginu, að hún drap ekki einung-
is og svæfði öll mál, er borin voru
fram af hinum fiokkunum til að
bæta úr atvinnuleysi og skorti þeim,
er nú þjakar þjóðina, heldur einnig
þær litlu tilraunir, sem einstakir
þingmenn flokksins gerðu í þessa
átt. —
Frumvarp jafnaðarmannanna, sem
birt heíir verið hér í blaðinu, var
svæft. Virkjun Sogsins líka. Verk-
legar framkvæmdir allar drepnar. —
En í stað þess skoraði Framsókn á
stjórn sína að athuga til næsta þings
hvað hægt sé að gera til að bæta
úr ástandinu.
Pessa tillögu fluílu þrír embætt-
ismenn í Nd. Úr atvinnuleysinu og
skortinum, sem nú er þegar farinn
að þjá kaupstaðabúa, á að bæta
með því, að stjórnin athugi hvað
baegt verði að gera í framtíðinni.
Meðan börnin gráta af sulti í Reykja-
vík á stjórnin að velta sér í hæg-
indastólunum og athuga. Flutnings-
mennirnir, sem allir standa við fulla
jötU hins opinbera, gleðjast yfir ráð-
snild sinni og uppfylling þeirra lof-
orða, sem flokkur þeirra gaf fyrir
kosningarnar. Og bændurna dreym-
ir um ódýrt vinnuafl til að auðgast
á, þegar sulturinn reki kaupstaðar-
búana út í sveitirnar til að vera þar
mátvinnungar eins og í gamla
daga. —
Slíkar eru ráðstafanir Frahisöknar
^jegn atvinnuleysi og skorti.
Hitt og þetta.
í Bandaríkjunum í Norður-Ame-
ríku magnast atvinnuleysið dag frá
degi og ríkir hin mesta neyð meðal
verkafólksins. Fjöldi fólks sveltur.
Samtímis standa kornhlöður stór-
bændanna fuilar, kaupgeta fólksins
er engin og framboðið er takmark-
að til að halda verðinu uppi. —
Nú hefir komið fram sú tillaga, að
bæta úr atvinnuleysinu með því að
taka kornið og búa til úr því áfengi.
Segja fréttastofurnar að tillagan hafi
mikið fylgi. Auðvaldið sér engin
skynsamleg úrræði til að bæta úr
neyð fólksins, en það sér þarna
markaðs von fyrir kornið. Kornið
má ekki taka til að sefa hungur
fjöldans, en það má gera það að
engu í áfengi. — Ekta auðvalds-
úrræði. —
Svona er það nú vestur í Ame-
ríku. Hérna heima fylgjast stór-
mennin furðulega með. Ríkisstjórn-
in og flokkur hennar sér engin úr-
ræði til að bæta úr yfirstandandi
og yfirvofandi atvinnuleysi fólksins,
en hún lætur flytja áfengi um alt
Iand, til að reyna að ná í aura fólks-
ins, ef einhverjir væru.
EinS og sjá má á dagsskrá út-
varpsins yfir yfirstandandi viku, eig-
um við að búa við grammofón-
hljómleika á grammofónhljómleika
ofan alla vikuna. Alþingi er nú
slitið. Og Hklega er það í tilefni at
því, að Útvarpsráðið ætlar þjóðinni
að bregða svona hastarlega á leik,
að snefill af skynsemi komi þar ekki
nærri. Á parti eru það tilhlýðileg
efíirmæli þingsins.
Búist er við að baðmullarupp-
skera veröi svo mikil í Bandríkjun-
NÝJA BIÓ
Miðvikudagskvöld kl. S'/i
Sflngur
íijartans.
Þýsk hljóm-, tal- og söng-
mynd í 10 þáttum.
Aðalhlutverkin leika:
Dita Parlo og
Willy Fritsch.
»Söngur hjartans* er hrífandi
mynd, sem allstaðar hefir
hlotið góða aðsókn, enda
fyrsta hljómmyndin, sem
UFA tók, og má geta nærri
að sérstaklega hefir verið til
hennar vandað.
Sýnd í síðasta sinn.
um í ár, að nægi öllum heiminum
til eins árs. Mikið Iiggur óselt af
fyrra árs uppskeru þar. og auðvit-
að feiknin öll annarstaðar í heimin-
um. Búnaðarráð Bandaríkjanna hefir
komið fram með þá tillögu, að
brenna að minnsía kosti þriðjung
uppskerunnar í ár, annars muni verð
baðmullarinnar fatla niður í 0. —
Á meðan þessu fer fram, líða at-
vinnu'eysingjarnir í Bandaríkjunum
kulda af klæðleysi,
í kvöid verður varpað út frá út-
varpsstöðimii í Kaupmannahöfn ís-
lenskum lögum og söng. Kl. 19,15
hefjast hljómleikarnir með »Ó Öuð
vors lands*, og kl. 19,40 syngur
Eggert Stefánsson íslensk lög