Alþýðumaðurinn - 15.09.1931, Page 1
ALÞYÐUMAÐD
I. árg.
Akureyri, í’riðjudaginn 15. Sept. 1931.
51. tbl.
Atvinnuliætur.
Akureyrarbær verður
að láta vinna.
Þó að hér hafi verið drepið á
mál, sem óhjákvæmilega þarf að
framkvæma sem allra fyrst, þar
sem er endurbót vatnsveitu bæjar-
ins, þá eru ýmsar aðrar verklegar
framkvæmdir, sem engu að síður
krefjast skjótrar úrlausnar. Allir
þeir, sem ekki eru orðnir sam-
dauna fjöruóþverranum sunnan við
Strandgötuna hér, hljóta að hafa
megna óbeit á öllum þeim óþverra,
sem þar safnast saman, bæði sem
■rekald úr sjónum, og þangað flutt
víðsvegar að úr bænum. Á svæð-
inu milli Torfunesbryggjunnar og
hinnar svonefndu Havsteensbryggju
eru öll skólpræsi úr útbænum leidd
til sjávar,
Víða ná skólpræsin ekki nema
spölkorn fram í fjörur.a, og er þá
með fjöru allangur vegur fram til
sjávar frá opi skólpræsanna. Qefur
þá að líta framundan hverju skólp-
ræsi haug af því sem oorist hefur
fram í gegn um ræsin frá vatns-
salernum og skólprennum húsanna,
sem að þeim liggja. Úr þessum
haugum dreyfir sjórinn meðan á
flóði stepdur og flytur að sjálf-
sögðu nokkurn hluta þess upp í
fjöruna, þar sem það þornar upp.
Ekki er það ósjaldan, að börn
leiki sér í þessari óþverrafjöru. —
Þó verið sé að aftra þeim frá slíku,
er ekki eftirlit með þeim nægilegt
til þess að þau, oft og einatt, geti
ekki lent í fjörunni, þar sem ö'.lum
þeim óþverra ægir saman, sem
felst til, bæði frá skólpræsum bæj-
arins og úr sjónum.
Þó ekki væru aðrar ástæður
fyrir því að uppfylling yrði gerð á
fjörunum sunnan við Strandgötuna
— en þær, sem verið hafa nefndar
— þá eru þær ástæður svo knýj-
andi, að ekki verður undan þeim
komist. Og hefir dráttur á því
orðið óheyrilega langur, að þetta
verk yrði unnið. En nú eru aðrar
knýjandi ástæður fyrir.
Verkamennirnir hér í bæ hafa
gengið dögum, vikum og jafnvel
mánuðum saman atvinnulausir í
sumar. Þessir menn þurfa að fá
eitthvað að vinna til þess að geta
framfleytt heimili sínu.
Þegar svo ber við, verður bærinn
að láta vinna þau verk, sem hægt
er að framkvæma og leggja trassa-
háttinn á hilluna.
Uppfylling sú, er geró yrði sunn-
an við Sírandgötuna, ætti að vera
með grjótkanti að sunnan, sjávar-
tnegin. —
Qrjótið er það efni, sem er æ-
varandi, og reynslan búin sýna það,
að vel hlaðnir grjótkantar á upp-
fyllingum, sem að sjó vita hér við
höfnina, standa óendanlega,
Grjót er yfirdrifið í klöppunum
hér rélt ofan við bæinn, og mætti
fara að sprengja það nú þegar, og
aka því svo þegar snjóa færi að
gera að vetrinum, og uppfyllingar-
efni er nægilegt í brekkunum hér
fyrir ofan, sem vinna mætti að
vetrinum og aka á sama hátt og
grjótinu, ef haganlegra þætti, en
að því yrði ekið á bifreiðum.
Þó ekki væri tekið til uppfylling-
ar nema svæðið frá uppfyllingar-
kantinum í bótinni og niður að
Havsteensbryggjunni, myndi það
verða allgóð vetrarvinna í eina tvo
vetur, því uppfyllingin ætti að vera
nokkuð breið.
Þeim sjómönnum, sem altaf eru
á einlægum hrakningi með báta
msm nýja bió m
Þribjudagskvöld kl. 8'/2:
Þú ert
mér kær.
Þýzk tal-, söng- og hljómmynd
í 10 þáttum. — Aðalhlutverkin
leika hinir ágætu söngvarar:
Mady Christians og
Walter Jankuhnen.
Mynd þessi er tekin með hin-
um svonefnda *KlangfiIm*-
útbúnaði, sem mikið orð fer af.
— Er söngurinn í henni fram-
úrskarandi góður og taiið
mjög skýrt. Myndin er glæsi-
lega leikin og hrífandi fögur
að efni, og má fullyrða, að
betri mynd hefir eigi sést hér..
sína vegna þrengsla við bryggjurn-
ar hér, myndi þykja vænt um að
fá uppfyllingu meðfram Strandgöt-
unni á iöngum parti, þar sem þeir
gætu bundið báta sína. — Enda
myndi lítið kosta að byggja stuttar
bryggjur suður frá uppfyllingu
þeirri, sem gerð yrði, þar sem smá-
bátar gætu athafnað sig.
Það er ekki vansalaust fyrir bæj-
arstjórn Akuieyrar, hversu illa að
búið er að þeim sjómönnum hér í
bæ, sem daglega afla í soðið handa
bæjarbúum, þegar eilthvað er úr
sjó að hafa. Eftir því sem fleiri
bryggjur eru bygðar hér við höfn-
ina, eru bátar þessara manna meir
útilokaðir frá því að hafa aðstöðu
á landi, því stærri skipin hrekja þá
frá bryggjunum, en bryggjurnar