Alþýðumaðurinn - 22.09.1931, Blaðsíða 1
ÝÐUMADURINN
I. árg.
Akureyri, Þriðjudaginn 22. Sept. 1931.
53. tbl.
fltviniiubótatillegur
. Verkamannafél. Aknreyrar.
Samkvæmt auglýsingu í síðasta
t»laði Alþýðumannsins, var haldinn
-fundur í Verkamannafélagi Akur-
eyrar á Sunnudaginn var. Fundinn
sátu nær hundrað manns. Snérust
umræður um atvinnumálin. Bar
stjórnin fram eftirfarandi tillögur,
sem allar voru samþyktar:
1. »VerkamannaféIág Akureyrar
skorar á bæjarstjórn Akureyrarkaup-
staðar, að hún hlutist til um við
atvinnnrekendur í bænum, að þeir
taki ekki utanbæjarmenn í vinnu á
þessu hausti og komandi vetri. Pó
vil! félagið að undanskildir séu þeir
menn, búsettir í Glerárþorpi, sem
byggja afkomu sína að mestu, eða
öllu leyti á daglaunavinnu, og eru
að því leyti jafn illa staddir og
verkamenn á Akureyri, ef atvinna
bregst.
2: Félagið skorar á'bæjarstjórn
Akureyrarkaupstaðar, að hefja nú
þegar á þessu hausti verklegar fram-
kvæmdir til atvinnubóta, svo sem
þaö:
a) Að framkvæma á þessu hausti
i\\ fullnustu þá endurbót á vatns-
veitu bæjarins, að bygð sé vatnsæð
alla leið frá neðstu þró og niður í
bæinn.
b) Að á þessu hausti og kom-
andi vetri sé unnið það verk, sem
íyrir liggur, að gera uppfyllingu
með grjótkanti að sunnan, meðfram
Strandgötunni, milli uppfyllingar-
kantsins að ofan verðu og níður
að svonefndri Havsteensbryggju,
c) Að bæjarstjórnin hlutist til um
að smíðaðar verði hér í bænum á
næsta vetri eigi minna en 100 þús.
síldartunnur.
d) Að unnið verði í haust og
vetur að byggingu Leirugarðsins
fyrir eigi mínni upphæð en 10 þús.
krónur.
e) Að unnið verði í haust og
vetur að grjótmulningi til götu- og
húsagerðar*.
Pá var samþykt svohljóðandi til-
laga frá Porst. Þorsteinssyni:
»Til þess að verklegar fram-
kvæmdir'til atvinnubóta geti orðið
sem mestar, væntir fundurinn að
bæjarstjórn leiti eftir þeim styrk úr
ríkissjóði, er síðasta Alþingi veitti
til atvinnubóta, og leyfir sér jafn-
framt að benda á Einar Olgeirsson til
að starfa í atvinnubótanefnd ríkisins
fyrir hönd-Akureyrarbæjar, vegna
kunnugleika hans á atvinnumálum
bæjarins nú undanfarið, er hann
sát í bæjarstjórn og atvinnubóta-
nefnd bæjarins*.
Eirtnig var eftirfarandi viðbótar-
tillaga við till. stjórnarinnar (borin
fram af Áskeli Snorrasyni) samþykt:
>Unnið verði að undirbúningi
sjúkrahúsbyggingar (grafið fyrir
grunni)«.
Pá var á það bent á fundinum,
að tímabært væri að fara að grafa
fyrir grunni væntanlegrar kirkju.
Fullkomin eining var um flestar
ofanskráðar tillögur. Að vísu vildu
17 kommúnistar halda bænum opn-
um fyrir aðkomandi verkamönnum
— lofa þeim að bjóða niður vinnu
fyrir bæjarbúum. Einnig voru Jó-
hann Kúld og Áskell Snorrason
(báðir kommúnistar) með rillögur á
prjónunum, sem einungis hefðu
spilt fyrir þessum málum hjá bæj-
arstjórn, á því stigi, sem atvinnu
bótamálin eru nú. Verður félagið
að vera viðbúið að sporna við
framgangi slíkra fleiga, sem altaf
má búast við að komi frá þeim
kommúnistum, sem virðast hafa það
NÝJA BIO
Þriðjudags- og Miðvikudags-
kvöld kl. 8,30 Ný mynd.
Hið svarta X.
Pýsk leynilögreglu hljóm- og
taimynd í 9 þáttum.
Aðalhlutverkin leika:
Lil Dagover og Gustav
Gröndgens.
Myndin snýst aðallega um
hlægileg mistök hjá lögregl-
unni, í sakamáli sem hún
hafði til meðferðar. — Lil
Dagover, sem leikur aðal-
hlutverkið er talin fegurðar-
drottning kvikmyndaleik-
kvenna Pýskalands.
Myndin er afburða spennandi
og listavel leikin.
eitt hlutverk að, inna af hendi í
félaginu, að spilla fyrir framgangi
verklýðsmálanna.
í fundarlok lét stjórnin þess getið,
að hún myndi kalla saman fund á
Sunnudaginn kemur, eða sfðar í
þessari viku, ef þörf gerðist.
Bæjarstiórnarfundur vetður í dag,
Munu atvinnubótamálín verða þar
til umra:ðu. Ættu verkamenn að
mæta þar og heyra á mál bæjar-
fulltrúanna.
Áskriftagjaldi Alþýðumannsins er
veitt móttaka í Kaupfélagi Verka-
manna. Kaupendur eru vinsamlega
beðnir að greiða blaðið sem allra
fyrst.