Alþýðumaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Alþýðumaðurinn - 26.09.1931, Qupperneq 1

Alþýðumaðurinn - 26.09.1931, Qupperneq 1
ALÞYÐUM AÐO RINN I. árg. Akureyri, Laugardaginn 26. Sept. 1931. 54. tbl. Atvinnubæturnar. Ætlar Ihaldið aö nota styrk- inn, sem veittur er til at- vinnubóta, til þess aö neyöa verkamennina til aÖ vinna fyrir lægra kaup en taxti verklýösfélaganna ákveöur. Atvinnubótanefnd bæjarstjórnar Ak- ureyrar skýrði frá því á síðasta bæjar- stjórnarfundi, að formaður atvinnu- bótanefndar ríkisins hafði gengið hart -eftir því, að bæjarstjórnin hér léti uppi hvaða kaupgjald hún teldi að ætti að greiða við atvinnubótavinnuna, sem •unnin yrði. Hélt Erlingur Friðjónsson því fram A fundi bæjarstjórnarinnar, að þessi krafa forroanns atvinnubótanefndarinn- ar um að bæjarstjórnin gæfi upp á- lit sitt um kaupgjaldið, gæti ekki þýtt annað, en að ætiast væri til að kaup við atvinnubæturnar ætti að verða lægra en taxti verklýðsfélaganna á- kvæði. í alla staði væri ástæðulaust að spyrjast fyrir um hvaða kaup ætti eð greiða, ef tilgangurinn væri að greiða taxtakaup. Engin mótmæli komu frá neinum bacjarfulltrúa gegn því að þetta myndi vera tilgangurinn, sem E. F. hélt fram, svo sýnilegt var að bæjarfulltrúarnir sáu hvar fiskur 1á undir steini í þess- um efnum, enda stóð ekki á íhaldi bæjarstjórnarinnar að láta hug sinn uppi í þessu máli, þvi Ólafur í Qróðr- arstöðinni flutti á fundinum áskorun i tillöguformi til atvinnubótanefndar og fjárhagsnefndar, um að þessar nefndir fegðu fyrir næsta fund bæjarstjórnar áillögur um hvaða kaup eigi að greiða við atvinnubæturnar. E. F. greiddi einn atkvæði á móti liilögu Ólafs, en allir aðrir bæjarfull- írúar greiddu atkvæði með benni. Karl Magnússo var farinn af fundi, eu Elfsabet fylgdi fhaldinu dyggilega að málum í því að óska eftir tillögum um kaupgjaldið, sem auðsjáanlega þýðir ekkert annað en tillögur um lækkun á kaupi. Það er öllum Ijóst, að íhaldið í landinu, sem aðallega er bygt upp af atvinnurekendum, hefir vakað yfir því við hvert tækifæri, að koma á kauplækkun hjá verkafólki. Nú sér það sér leik á borði að lækka kaupið. Það á að telja verkamönnum trú um það, að hér sé um einhverja náð að ræða af hendi þess opinbera, að það leggur fram örlítinn, óverulegan styrk, borið saman við þörfina, til þess að verkamennirnir, sem litla eða enga atvinnu hafa haft í sumar, fái eitíhvað örlítíð að gera í vetur. Svo á að segja við verkamennina: Þið fáið enga vinnu nema þið lækkið kaupið. Náðarbrauðið, sem veitt er í at- vinnubótunum, á að greiðast atvinnu- rekendum með því að þeir í framtíð- inni fái verkafólkið til lands og sjávar fyrir lægra kaup, en verið hefir. Að sjálfsögðu beita verklýðsfélögin sér á móti þeirri svívirðingu, að verið sé að lækka kaup fólksins, með því að greiða lægra kaup við atvinnubæt- urnar en við aðra vinnu. Það er vitanlegt, að aldrei verður það nema örlítið brot af öllum verka- mönnum landsins, sem njóta atvinnu- bótavinnunnar. Allir hinir, sem enga vinnu fá við atvinnubæturnar, hafa því engan beinan hag af þessu. Og ef lægra kaup yrði greitt við atvinnu- bæturnar en kauptaxti verklýðsfélag- anna ákveður, yrði það tvímælalaust til þess að lækka kaup alment. Yrði þá beinn skaði að því fyrir þá, sem enga vinnu fá við atvinnubæturnar, að þær yrðu framkvæmdar. FUNDUR í Verkamannafélagj Akureyrar verður haldinn í Alþýðuhúsinu Sunnudaginn 27. þ. m. og hefst kl 4l/2 síðdegis. DAGSKRÁ: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Útbreiðslusfarfsemi. 3. Kaupgjald við atvinnubætur. 4. Laugarnar í Glerárgili og sundstæði bæjarins. Félagar, mætið stundvíslega, þv fundurinn verður stuttur. Utanfélagsmenn hafa ekki aðgang að fundinum, nema með sérstöku leyfi. — . Akureyri 25. Sept. 1931. Félagsstjórnin. Mjólkurverðið. Ég átti tal við bónda úr nágrenn- inu hér um daginn. Talið barst eins — og oftar — að örðugleikunum sem fólkið hefir við að stríða, bæði trl sjávar og sveita. »Hvað fáið þíð bænd- urnir nú fyrir mjólkina í Samlaginu«, spurði ég. »Liklega 15 — 18 aura fyrir Iíterinn«, svaraði hann. Eftir á fór ég að hugsa nánar um þetta. Framleiðandinn (bóndinn) fær ekki nema 15 — 18 aura fyrir liter af mjólk, sem hann lætur í Mjólkursamlagið. Ég greiði 35 aura fyrir I. ef ég kaupi hann í mjólkurbílnum, 40 aura, ef ég kaupi hann f mjólkursölubúð, og fer með hann heim til min, 60 aura ef ég drekk hann úr flöskunni inni í búðinni, og 70 aura, ef ég drekk

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.