Alþýðumaðurinn

Tölublað

Alþýðumaðurinn - 03.10.1931, Blaðsíða 1

Alþýðumaðurinn - 03.10.1931, Blaðsíða 1
ALÞYÐUMAÐURINN I. árg. Akureyri, Laugardaginn 3. Okt. 1931. 56. tbl. Samtök. Nú, þegar verkalýðnum ríður meir «n nokkru sinni fyr á að efla samtök sín, til að verjast kauplækkun þeirri, sem atvinnurekendur krefjast að fari Iram, hefir hann gott af að kynnast samtökum erlends verkalýðs, sem í eldinum stendur. »Alþýðumaðurinn* leyfir sér því að taka hér upp frásögn um verkfali háseta á enska Atlands- hafsflotanum, sem nýlega stóð í »AI- þýðubl.« Er þetta verkfall að því leyti merkilegast athafna verkalýðsins .at þessu tag!, að heraginn er svo -slrangur, að ve*kfa!l, eða óhlýðni fyr- irskipuia og ákvarðana ríkisstjórnar- ínnar, nálgast dauðasök, og er talið til uppreista og drottinssvika. — En bresku hásetarnir sáu að þeir voru í nauðvörn staddir, og afkoma þeirra — kvenna þeirra. barna og annars skylduliðs var í veði. því brutu þeir allar herreglur og brugðu fyrir sig eina vopninu, sem dugar, samtaka- mætti verkalýðsins, og skeyttu ekki um afleiðingamar. Frá þessu fyrir- brigði er sagt á þessa leið: <í erlendum biöðum, er hmgað hafa borist, má sjá, að samblást- ur hásetanna á hinum svo nefnda Atlandshafsflota B-eta hefir verið með mjög öðru móti en af skeyt- unum mátti ráða, er hingað voru send. Við borgina Invergardoti við Kromarhyfjörð á austurströnd Skot- lands lágu Laugardaginn 12. Sept. ellefu stærstu vígdrekarnir úr Atlants- hafsflotanum, og vat meðal þeirra Kodney, er hér var í fyrra á Alþing- ishátíðinni. Fóru hásetar í land og héldu mótmælafund gegn lækkun þeirri, er stjórnin hafðí fyrirskipað á kaupi þeirra, en hún nam fjórða parti. Hins vegar nam Iækkun sú, er átti að fara fram á kaupi lautinanta, að eins áttunda hluta. Margir sjómanna höfðu verið að leikjum í Invergordon og voru við víni, varð því fundur þessi ekki með góðri reglu. Daginn eflir (Sunttudag) héldu hásetar annan mótmælafund í landi, og fór alt skipulega fram. Var fund- urinn fyrst inni, en brátt varð of mikil þröng, og var hann fluttur út í skemti- garðinn Black Park. Voru 5000 hásetar af »bakborðsvakt« þar saman komnir, en ails voru á herskipum þarna 12000 hásetar. Komu tillögur fram uin að fara ekki aftur um borð í skipin nema leiðrétting fengist á kauplækkuninni, en sú tillaga varfefd, því margir voru þarna peningalausir, en í skipunum höfðu þeir bæði fæði og svefnrúm. Tillagan, sem samþykt var, var þess eðlis, að neita að hreyfa skipin, ef. kaupið fengist ekki leiðrétt. Undirskilið var, að »sfjórnborðsvakt« samþykti þetta líka. Daginn eftir héldu hásetar af »stjórn- borðsvakt» fund og samþyktu sömu kröfur. Sá tími var nú kominn, að víg- drekarnir áttu að vera farnir úr höfn, og vildi flotaforinginn nú ganga úr skugga um, hvort hásetum og kynd- urum væri alvara að gegna ekk'. — Voru merki gefin á foringjaskipinu um að vera tilbúnir að halda úr höfn. Síðan var drekanum »Valiant« gefið með flöggum merki um að létta akk- eri og halda fyrstur út, og mændu nú allra augu á skip þetta, því mjög var líklegt, að ef það gengdi skipun- inni myndu hin skipin gera það líka. En hásetar á »Valiant« fóru ailir undir þiljur, nema verðir er þeir höfðu sett. Akváðu þá liðsforingjar, að þeir skildu sjálfir ásamt liðsforingja- efnum draga uppatkerið; sögðu verð- irnir, að þeir myndu ekki hindra þá Krónan lækkuð. Eauplækkun. Dýrtíð. Framsóknarstjórnin hefir lengi yfir því vakað, að fá tækifæri til að stýfa krónuna. — Varna því að hún gæti hækkað upp í eðlilegt gildi. — Unt lækkun liefir hún ekki talað. Nú hefir hún, með tilstyrk og eftir áeggjan stóratvinnurekenda, lækk- að krónuna um allt að því x/4. — Hefir ruglingur sá, er komið hefir á'gildi og samræmi meöal erlendrar mintar, verið notaður til að fremja þetta gerræði, Fall krónunnar þýðir hækkandi verð á erlendri vöru og vaxandi dýrtíð í landinu. Það þýðir líka stórkostlega kauplækkun hjá öll- um þeim, sem taka laun sín í pen- ingum. Von aö rikisstjórnin og fylgiliö hennar berjist fyrir kauplækkun of an á alt petta. að því verk', en þeír myndu kalla upp hásetana, er myndu láta hitt at- ke.-ið faila jafnskjótt og farið væri að léiía á því, er úti var. — Jafnframt þe^su gengu kyndarar svo frá ketil- rúminu, að ekki yrði suðveldlega komist þangað. Liðsforingjarnir sáu nú, að gagns- laust var að reyna að draga atkerið og hættu við það. Komu nú hásetar og kyndarar upp á þilfar og hrópuðu húrra. Skildu þá allir á hinum skip- unum, að fyrirskipuninni um að vinda upp atkeri og halda af stað, yrði ekki gegnt, og hljómuðu húrrahrópin frá þeim um allan fjörðinn. Um kvöidið lofaði landsstjórnin að breyta til um launalækkunina, þannig, að hún kæmi ekki svona hart niður á hásetum og kyndurum og einnig

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.