Alþýðumaðurinn - 10.10.1931, Qupperneq 1
ALÞÝÐUM AÐD RINN
I. árg.
Akureyri, Laugardaginn 10 Okt. 1931.
Atvinnubætur
bæjarstjórnarinnar.
í þriðjudagsblaðinu gafst ekki
rúm eða tími til að geta nánar til-
laga atvinnubóta- og fjárhagsnefnda,
sem lagðar voru fyrir bæjarstjórnar-
íundinn þann dag, en þær eru svo
merkilegar á sína grein, að þær
verða birtar hér, svo bæjarbúar sjái
svart á hvítu hvernig hugsað er
fyrir þeirra tímanlegu velferð, þar
sem íhaldsflokkarnir ráða.
En áður en tillögur þessar verða
birtar og athugaðar, er ekki úr vegi
að athuga nánar þörfina fyrir at-
vinnuaukningu og aðrar ástæður,
er net'ndirnar hefðu átt að taka til-
lit til, ef þær hefðu ekki verið staur-
blindar fyrir öðru en lækkun verka-
launanna.
Margir verkamenn hafa haft mjög
rýra sumarvinnu Hlutur sumra
háseta er ekki háifur eftir sumarið
við það sem hann hefir verið und-
anfarið. Dýrtíð vofir yfir vegna
hinnar geysilegu lækkunar krón-
unnar. Vissa fyrir að einstakir at-
vinnurekendur láta ekkert gera,
vegna ástandsins, sem nú ríkir. —
Þar sem efnamenn og atvinnurek-
endur þykjast ekki hafa lagt fyrir
undanfarin góðærisár, er ekki von
til að verkamenn hafi gert það. —
Og þó að máske þurfi ekki að gera
ráð fyrir hungri og neyð hjá þeim
sem atvinnan hefir brugðist í sum-
ar, þá er þó skuldasöfnun vís,
meðan hægt er að ganga á það
lagið. —
Hefðu nefndirnar viljað líta í
kring um sig, gat athygli þeirra
ekki farið fram hjá þeim raunveru-
leika, að allir bæjir landsins hafa
gert og eru að gera ráðstafanir,
hver hjá sér, til að létta undir með
verkamönnunum. Nauðsynin er
öllum ærlegum rnönnum auðsæ.
Þær þyrftu því ekki að vera hrædd-
ar um að þær yrðu einhver ein-
stæð undur náttúrunnar, þó þær
gerðu eitthvað að gagni. — Ekki
þurftu nefndirnar heldur að vera í
vandræðum með nauðsynleg verk-
efni. Þau lágu allstaðar fyrir, eins
og bent hefir verið á hér í blaðinu.
Atvinnubótamálin voru búin að
vera á dagskrá í bæjarstjórninni. —
Ekki varð þess þá vart, að nokkur
bilbugur væri á nokkrum bæjarfull-
trúanum að gera eitthvað að gagni í
þessum málum. Öll blöð bæjarins
— nema Dagur — höfðu rætt mál-
ið og voru sammála um að eitt-
hvað þyrfti að gera. Og ekki var
að óttast flokkinn, sem að Degi
stendur; flokkinn »með alhliða við-
reisn kaupstaðanna* á stefnuskrá
sinni. Hann myndi fyrst og fremst
vilja styð/'a hinn veika í baráttunni.
Eða því hafði flokkurinn lofað bæði
í útvarpsræðum og í blöðum sín-
um. —
Þannig var þá ástatt og útlits á
vettvangi atvinnubótamálanna, er
nefndirnar settust á rökstóla, og
verða nú birtar tillögur þeirra.
Eftir að nefndirnar höfðu athug-
að alla málavöxtu, töldu þær »rétt
að leggja til við bæjarstjórn*, að
»gert verði ráð fyrir þessum fram-
lögum á fjárhagsáætlun bæjarins
fyrir 1932 (leturbr. hér) til verk-
legra framkvæmda:
a) Til Leirugarðs kr. 10 þús.
b) — grjótmulnings — 4 —
c) —- vegagerða, upp-
fyllinga, skurða og
grjótgarða - 30 —
d) —vinnu við tunnugerð - 120 —
e) — vinnu við lagning
vatnsveitu — 16 —
58. tbl.'j |
FDNDDR
í
Verkamannafélagi Akureryar
verður haldinn í Alþýðuhúsinu
Sunnudaginn 11. þ. m. og hefst kl.
3V2 síðdegis.
DAGSKRÁ:
1. Inntaka nýra félaga.
2, Ráðstafanir gegn kauplækkun
bæjarstjórnar.
Félagar, mætið stundvíslega, þvf
fundurinn verður stuttur.
Utanfélagsmenn hafa ekki aðgang
að fundinum, nema með sérstöku
leyfi. —
Akureyri, 9. Okt. 1931.
Félagsstjórnin.
Þessar tölur iíta svo sem nógu
vel út á pappírnum, en það er með
þessar tillögur nefndanna eins og
myndina af stelpunni, sem ekki
»tók sig út« nema í sérstökum
ramma; í rammanum, sem um þær
er, verða þær harla bágbornar.
Fyrst er nú það, að nefndirnar
gera ekki ráð fyrir neinum fjárfram-
lögum fyr en á næsta árs reikningi.
Tekjur næsta árs koma ekki inn í
bæjarsjóðinn fyr en eftir 1. Apríl.
Að bíða eftir vinnu þangað til,
mun mörgum þeim finnast langt,
sem stendur uppi tómhentur og
bjargarlítill nú á haustnóttum.
í öðru lagi er ekki um neinar aí-
vinnubótatillögur að ræða hjá nefnd-
unum. AWmnubœtur eru ekki annað
en það, sem unnið er umfram
venjulegar framkvæmdir. Að vísu
er gert ráð fyrir 5000 krónum hærra