Alþýðumaðurinn

Eksemplar

Alþýðumaðurinn - 13.10.1931, Side 2

Alþýðumaðurinn - 13.10.1931, Side 2
2 alÞýðumaðurinn liðinu skoraðist úr leik. Ný stjórn- armyndun gat því ekki orðið. Ég hafði borið mig saman við skynsama menn í Alþýðuflokknum hér norður frá, áður’ en ég tók þá ákvörðun að vera ekki með í nýrri stjórnarmyndun, og voru þeir því samþykkir. Og flokksmönnum mín- um í Reykjavík var kunnugt um þetta. — Þörf er ekki að geta um ástæður. Þær hljóta að vera öllum Ijósar nema þessum tveimur litlu mönn- um og þeim, sem eru álfka litlir og þeir. Við jafnaðarmennirnir í þinginu höfðum komist af með það, að láta Framsóknarstjórnina hiutlausa. Ef mynduð yrði ný stjórn, varð hún að hafa beinan stuðning jafnaðar- manna, ef hún átti að geta lifað. Ég vildi ekki veita neinni stjórn beinan stuðning, hvorki Framsókn- arstjórn eða annari. Nú dettur engum jafnaðarmanni í hug að halda því fram, að þeir eigi að veita beinan stuðning í þingi. Að því leyti hefi ég orðið á undan mínum samherjum með að kveða upp úr með það. Eftir að Framsóknarstjórnin hafði rofið þingið, og með því ónýtt fjölmörg mál, sem fyrir þinginu lágu, hét ég því að láta nýja stjórn hlutlausa, ef mynduð yrði, ef hún leiddi þingstörfin svo, að ýmsum helstu málum, sem fyrir þinginu lágu, yrði lokið. Par á meðal var samþykt ábyrgð- ar fyrir Rússavíxlunum, sem ég vissi að skifti miklu fyrir sjó- menn og útgerðarmenn hér norð- anlands, sem áttu fé sitt fast í Rússavíxlunum. Ég hefði því haft sömu aðstöðu gagnvart nýrri stjórn eins og ég hafði gagnvart Framsóknarstjórn- inni, fram þangað tjl seint á þingi í vetur, að jafnaðarmenn sögðu henni upp hlutleysi. Pað er ekki von að litlu mennirn- ir skilji þetta. Fyrir báðum vakir hið sama, að ég hefði átt að kasta mér í faðm íhaldsins í þinginu, til þess að það hefði getað gert sinn þóknanlega vilja. Bandamaður Guðmanns, Einar Clgeirsson, gerði það. Hann gekk íhaldinu í Reykjavík á hönd með húð og hári, eftir þing- rofið, Gekk í fararbroddi ærsla- manna þeirra, sem um götur bæj- arins óðu, æpandi við ráðherrabú- staði og á gatnamótum, Slíkir menngru þóknanlegir íhalds- sálunum, Gunnl. Tryggva og Jóni Guðmann. Erlingur Friðjónsson. Vinnudeila f Stykkishólmi. Kaupfélagið gengst fyrir kauplækkunartilraun. Undanfarna daga hefir staðið í nokkru stappi út af verkakaupinu í Stykkishólmi, þar eð atvinnurekendur, vildu lækka kaupið úr 1 krónu ofan í 85 aura. Hófst út af þessu verkfall í fyrra- dag, en í gær barst blaðinu svohljóð- andi skeyti: Stykkishólmi, 29 Sept. kl. 14. Kaupdeilunni lokið. Vinnuveitend- ur hafa gengið að kauptaxta félagsins. Verklýðsfélagið. Og þar með er vísað á bug fyrstu kauplækkunartilraun atvinnurekenda á þessu hausti. — í morgun bárust nánari fregnir af verkfallinu. Kauptaxti verkamanna hafði verið greiddur viðstöðulaust í 9 mánuði, en kaupfélagsstjórinn, sem heitir Sig- urður Steinþórsson, hafði án þess að snúa sér til verklýðsfélagsins reynt að fá verkamenn, einn og einn, til þess að vinna fyrir 85 aura í stað 100, sem er kauptaxtinn. Pegar kaupið var krafið inn, um hádegi á mánudag, varð kauplækkunartilraunin opinber, og vildi verklýðsfélagið þá fá skýr svöi frá kaupfélagsstjóranum, en bann bað um frest til kl. 4, 6g var hann veittur. En síðar kom í Ijós, að kaup- félagsstjórinn notaði frestinn til þess að reyna að semja við mennina einn og einn, og var þá samþykt að hefja Okkar ástkæra kona og móðir, Kristin Rósa Hansdóttir, andaðist að heimili sínu, Lundargötu 17, Sunnu- daginn 11. þ. m. Jarðarförin ákveðin síðar. Jóhannes Jónsson. Jóbann Scheving Jóhannesson. Guðrún Sch. Jóhannesdóttir. ■■■■■ ■"■■ii———. verkfall tafarlaust; var það kl. Zl!». En verkfallinu var lokið fyrri hluta dags i gjær, og stóð þannig ekki full- an sólahring. Verkfallið fór að mestu friðsamlega fram. Pó gaf utanbúðarmaður kaup- félagsins, sem heitir Sigurður Jónsson, tveim mönnum utan undir, sinn dag- inn hvorum, og dálitlar stimpingar urðu milli Sigurðar kaupfélagsstjóra og formanns verklýðsfélagsins, Hjartar Guðmundssonar. Verkamenn höfðu. í deilu þessari almenna samúð, einnig fjölda bænda, sagði tíðindamaður blaðsins. Haft var i hótunum við verklýðs- iélagið um að féð, sem var verið að slátra, yrði rekið til Borgarness og því slátrað þar. Hafði verklýðsfélagið í Stykkishólmi samband við verklýðs- félagið í Borgarnesi og fékk það svar þaðan, að þar skyldi ekki verða slátr- að einni einustu kind úr nágrenni Stykkishólms. (Alþbl. 30. Sept.) Söngskemtun ungfrú Jóhönnu Jóhannsdóttur á Laugardagskvöldið var ágætlega sótt og vai söngkonunni ágætiega fagnað af áhorfendum. Ungfrúin hefir í hyggju að fara suður til Reykjavíkur með Drotningunni næst, og syngja fyrir höfuðstaðarbúa. Fyrirspurn, Af hvaða ástæðum greiðir ek-ki síld- arsaltandin í innbænum verkafólki sínu eins og aðrir sfldarsaltendur við Eyja- fjörð. En- það Síldareinkasölunni að kenna? Verkamaður. Síldareinkasalan murt hafa greitt hlutaðeigandi síldarsaltanda jafn mikið út á hverja tunnu og hún hefir greitt öðrum.

x

Alþýðumaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.