Alþýðumaðurinn

Issue

Alþýðumaðurinn - 03.11.1931, Page 1

Alþýðumaðurinn - 03.11.1931, Page 1
I. árg. Akureyri, í’riöjudaginn 3. Nóv. 1931. 65. tbl. Péíur „ællaði ofan tivurl eð var“. Pétur A. Ólafsson ritar í síðasta r * • Isl.« grein, er hann nefnir »Smá- bátaútgerðin.« Grein þessi er svar við því, er »Einn af smælirgjurjun.« litaði í »Alþýðumanninn«, 62. tölublað, með yfirskriftinni »Ný átök«. Þóít það sé auka-aíriði, er rétt að P- Ó. fái að vita það, að ég hefi ekki ritað grein »Smælingja« eins og hann þó gefur í skyn að hafi verið, en ég hefi tekið greinina í blaðið, sem ég er ábyrgðarmaður fyrir, án þess að gera alhugasemd við efni hennar, og sýnir það að ég hefi ekkert út á greinina að setja. — J annan stað skjátlást P. Ó., er hann heldur að grein »Smælingja« hafi átt að hafa áhrif á skoðanir manna fyrir kosningar á aðalfund Einkasölunnar nú, því greinin kom ekki út fyr en eftir að kosningin var um garð gengin meðal smá- útgerðarmanna hér í firðinum. Grein »Smælingja« virðist því vera hugieiðingar um, og lýsing á ástandinu, eins og það hefir verið undir stjórn Péturs A. Ólafssonar í Einkasölunni, og um afleiðingarn- ar af stjórn hans. Hér skal ekki farið langt út í að færa rök að því, að sú skoðun, er kemur fram í grein »Eins af smæl- ingjunum*, um aðstöðu P. A. Ól- afssonar til smáútgerðaiinnar sé rétt, en þar sem P. Ó. hefir eignað mér þá skoðun, sem kemur fram í greininni, er ekki úr vegi að ég segi mitt álit í þessum efnum. Handhægast er að grípa til um- sagnar P. Ó. sjálfs, sem kemur fram í grein hans í »ísl.« síðast, tilsönn- unar því, hvaða hug hann hefir til smábátaútgerðarinnar. Par segir hann, eftir að hann hefir gefið yfir- lýsingu um, að hann ætli, án þess að »átök« þurfi til, að fara frá Einkasölunni. »Til þess ber svo margí í stjórn- arfyrirkomulagi Einkasölunnar, sem hann (P. Ó) ekki getur unað við, og ekki síst eftir nýlega orðnar breytingar á lögum Einkasölunnar. Ég skal viðurkenna að agnúar voru ýrr.sir á lögunum áður og fram- kvænrdum þeirra, en hálfu verra var farið en heima setið, með þeim breytingum, sem hafa orðíð.« Hverjar eru þessar breytingar, sem hafa orðið á lögum Einka- sölunnar, sem P. Ó. er svo illa við? — Lagabreytingarnar eru eingöngu í því fólgnar, að sjómenn og verka- fólk annars vegar en úígerðarmenn, smáir og stórir, hins vegar, kjósa fuiltrúa á aðalfund Einkasölunnar, sem síðan kýs 4 útflutningsnefnd- armenn Einkasölunnar, én einn er stjórnarkjörinn. Ef allir útgerðarmenn stæðu sam- an um fulltrúakosningu á aðalfund, hljóta þeir að ná tveim útflutnings- nefndarmönnum á móti tveimur, er sjómenn og landverkafólk hefði fengið með kosningu sinna full- trúa, og fimti útflutningsnefndar- maðurinn hefði orðið stjórnskipað- ur. Stjórnarfyrirkomulag Einkasöl- unnar hefði því í reyndinni orðið algerlega hið sama áfram eins og það var í þau liðlegu þrjú ár, sem undirritaður var í útflutningsnefnd- nefndinni, að öðru leyti en því, að mannaskifti hetðu getað orðið í nefndinni. Varð ekki annars vart, en að P. Ó. yndi hlut sínum al! vel, nieð jafnaðarmennina í minni hluta í útflutningsnefndinni, og engan full- trúa frá smáútgerðarmönnunum. En nú hefir smáútgerðin gert uppreisl í liði útgerðarmanna, Hún hefir kosið fulltrúa fyrir sig. Og P. Ó. er það ljóst, að hann heíir beðið ósigur, þegar sýnilegt er að fulltrúar jafnaðarmanna og smáútgerðarinnar hafa meiri hluta á aðalfundi Einkasölunnar. Hann segir því af sér eins og ráðherra, sem ekki vill bíða eftir vantrausti, sem fyrirfram er víst. P. Ó. viil réttlæta það, að mótor- bátarnir í Hrísey, Dalvík og Litla- Árskógssandi, hafa orðið að sækja á sinn kostnað, iunnur og salt inn á Akureyri, með samþykt, er út- fiutningsnefndin hafi gert í vor um það, að smærri framleiðendur yrðu að sækja tunnur og salt á sinn kostnað, sern þeir þyrftu, og skila síldinni annað hvo rt við skipshlið e ða á viðurkenda söltunarstöð. Því segir P. Ó- ekki að smábáta- eigendurnir hafi átt að sækja tunn- ur sínar til Noregs, fyrst honum lókst etki að skilja samþykt út- flutningsnefndar á hagkvæmari hátt fyrir smábátaeigendur en raun ber vitni? Ég fæ ekki betur séð en það liggi opið fyrir, eítir samþykt út- flutningsnefndar, að smáframleið- endur hafi átt að fá tunnur sínar og salt til síldarverkunar á næstu viðurkendu söltunarstöð, fyrst þeim er gert að skyldu að skila síldinni þar. Hafa þá mótorbátarnir í Hrís- ey átt heimtingu á því, að fá tunnur lagðar upp handa sér þar í Hrísey, og í lengsta lagi hefðu Dalvíkingar og Árskógsstrendingar orðið að sækja tunnur sínar til Hríseyjar. — En nú vill svo vel til, að lögilt

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.