Alþýðumaðurinn - 07.11.1931, Blaðsíða 1
Akureyri, Laugardaginn 7. Nóv.
1931.
66. tbl.
Frá bæjarstjórnarfundinum.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi voru til
umræðu mál þau, er verkalýð þessa
bæjar varðar mikið, og áður hefir
verið sagt frá hér í blaðinu, bæði
væntanlegt tunnusmíði í vetur og
kaupgjaldsmálið.
FjárhagSnefnd lagði fram á fundin-
um útdrátt úr tilboði frá Hjalta Esp-
holin utn tunnusmíði, sem í aðalatrið-
um var líkt því, er Hjalti gerði bæn-
um í fyrra, og þá var gengið að af
hendi bæjarins, en þó til muna að-
gengilegra fyrir bæinn nú en þá. Að-
alatriði tilboðs Hjalta Espholins nú
voru þessi:
Hann fái í smíðalaun kr. 1,75 fyrir
hverja tunnu sem smíðuð verður á
verkstæði hans; en fari svo að tunn-
ur þær, sem smíðaðar verða í vetur
og vor seljist lægra en í ár, þá taki
Hjalti á sig fyrstu 20 aurana, sem
lunnurnar seljast undir þessa árs verði
— eu lækki tunnurnar meira en um
20 aura, þá ber bærinn hallann af
þvf til jafns við Hjalta.
Þessu svaraði fjárhagsnefnd þannig:
»Nefndin leggur til við bæjarstjórn,
að framangreindu tilboði verði ekki
tekið óbreyttu, með því að ekki telst
fært, að bærinn greiði framlög eða
styrk til tunnusmíðinnar, þar sem
lagt verður fram stórfé til rekstrar
langan tíma og bœjarfélagið á að
bera alla áhœttu af sölu íunn-
anna (*
Fundi slitið.
Jón Sveinssou. Karl Magnússon.
Brynleyfur Tobiass. Hallgr. Davíðss.*
Var fyrrihluii þessarar tillögu sam-
þyktur með öllurn greiddum atkvæð-
um, en síðari hlutinn, frá orðunum
»tekið óbreyttu* samþ. með 5 atkv.
gegn 4, þeirra Ingimars Eydals, Erl-
ings, Steinþórs Guðmundssonar, sem
mættur var í stað Elísabetar, og Karls,
seni sagðist hrfa verið á móti þessu
atriði i fundargerðinni. þó hann hefði
ekki gert ágreining. Tómas og Sig.
Ein. Hlíðar voru ekki á fundi.
Þetta tilboð Hjslta er það aðgengi-
legra en tilboð hans, sem bæjarstjórn-
in gekk að í ár, að ef iækkun verður
á tunnuverðinu, þá tekur Hjalti þátt í
því, fyrst með því að taka algerlega
á sig fyrstu 20 aurana á hverri tunnu,
sem þær lækka í verði, og síðan að
helmingi á móti bænum, það sem
meira kynni að verða.
Meirihluta bæjarstjórnar hefir þá far-
ið þetta aftur síðan litlu eftir síðasta
nýjár, eða nálægt því á 9 mánuðum,
að hann var til með að taka á sig
allan skaða af því, ef tunnurnar, sem
smíðaðar voru að tilhlutun bæjarins,
seldust ekki fyrir áætlað verð, en nú
vill hann ekki bera eyris halla af slíku.
í ár bar bærinn sömu áhættu af
því, ef tunnurnar seldust ekki, eins og
hann kæmi til með að bera, ef tunn-
urnar yrðu smíðaðar á þessum vetri,
svo ástæðulaust er að tala um það,
sem nýja áhættu fyrir bæinn.
Það verður því að kannast við þá
sorglegu staðreynd um meirihluta
bæjarstjórnar, að honum stór-hrakar
í því að sjá og skilja velferðarmál
bæjarins, því takist honum að spilla
því að tunnusmíði fari fram hér í
vetur, hefir hann haft af fátækum
verkamönnum atvinnu, sem skiftir
mörgum tugum þúsunda.
Á fundinum lagði kaupgjaldsnefnd
fram svolátandu ályktun:
»Rætt um kaupgjald í bæjarvinnu,
sem ágreiningur hefir orðið um, milli
Verkamannafélags Akureyrar og bæjar-
stjórnar.
Á síðasta fundi bæjarstjórnar virtist
sú skoðun ríkjandi, að samþykt þá
FUNDUR
í
Veíkiannafélagiliiepr
verður haldinn f Alþýðuhúsinu
Sunnudaginn 8. þ. m. og hefst ki.
3Vs síðdegis.
DAGSKRÁ:
1. Inntaka nýrra fálaga.
2. Tilboð í tunnusmíði.
3. Fjárhagsáætlun bæjarins.
Félagar, mætið stundvíslega, því
fundurinn verður stultur.
Utanfélagsmenn hafa ekki aðgang
að fundinum, nema með sérstöku
leyfi. —
Akureyri, 16. Okt. 1931.
Félagss tjórnin.
um 1 krónu kaup, er gerð var á fundi
bæjarsfjórnar 6. okt. síðastl,, bæri að
skilja þannig, að kaup þetta gilti að-
eins fyrir 3tvinnubótavinnu.
í samræmi við þetta leggur nefndin
til, að greitt verði taxtakaup Verka-
mannafélagsins við venjulega bæjar-
vinnu, svo sem nauðsynlegt viðhald
á mannvirkjtitn bæjaritis, snjómokstur,
rottueitrun og því um líkt.c
Var þessi ályktun kaupgjaldsnefndar
samþykt með samhljóða atkvæðum,
svo helst lítur út fyrir að bæjarstjóri
haft misskilið samþykt bæjarstjórnar
um kauplækkunina, þegar hann fyrir-
skipaði að ait kaup við bæjarvinnu
skyldi lækka niður í 1 kr., eða þá
bitt, sem er fult eiris líklegt, að ein-
hverjir bæjarfulltrúar hafi staðið á bak
við hann í kauplækkuninni; en sem
hafa svo ekki viljað láta sjá sig þegar
(* Leturbreyting hér.