Alþýðumaðurinn - 14.11.1931, Síða 1
ALÞYDUMASURINN
I. árg.
Akureyri, Laugardaginn 14. Nóv. 1931.
68. tbl.
lujinusmíðið drepið.
Haldinn aukafundur íbæjarstjórn
til þess að drepa þær einu at*
vinnubætur, sem um gat verið
að ræða að unnar yrðu hér í bæ.
Haligrímur Davíðsson með til-
boð frá Ingvari Guðjónssyni
upp á vasann um ódýrar norsk-
sx tunnur en óheyrilega dýrt
tunnuefni.
Tillögur fjárhagsnefndar miðað-
ar við að verkamennirnir fengju
25 aura um klukkustund, ef
tunnusmíði yrði.
Á Þriðjudagirsn var hélt bæjar-
stjórnin hér aukafund um væntan-
legt tunnusmíði hér í bæ.
Fundur þessi var mjög merkileg-
ur fundur, einkum sakir þess, hve
greinilega þar kom í Ijós hinn
sterki viiji fjárhagsnefndar fyrst og
fremst, og síðan meiri hiuta bæj-
arstjórnar, til þess að nota atvinnu-
bætur, ef einhverjar yrðu, til þess
að þrýsta niður kaupi verkarnanna
hér í bæ. —
Hallgrímur Davíðsson var með
þrjú tilboð upp á vasann frá Ingv-
ari Guðjónssyni, sem öll áttu að
hjálpast að því, að eyðileggja að
nokkrar tunnur yrðu smíðaðar hér,
nema að kaup verkamanna færi
niður úr öllu veldi.
Fyrst var tilboð frá Ingvari um
norskar tunnur, sem áttu að kosta
hingað komnar 70 aurum minna en
í ár. —
Ingvar er umboðsmaður fyrir
norskan tunnusala, og hefir mikiar
tekjur af því, að þessi tunnusali
geti selt tunnur sínar hér á landi.
Það þarf því engan að undra, þótt
Ingvari sé ekkert sérstakt kappsmál,
að smíðaðar séu tunnur hér í bæ.
Vitanlegt er að þetta tunnutilboð
Ingvars er ekkert annað en tilbún-
ingur hans og Hallgríms, sem hafði
tilboðið upp á vasann.
Það er fyrirfram víst, að engum
manni dettur í hug að festa kaup
á tunnum nú á þessum tíma, svo
óhætt er að flagga með tilboð um
ódýrar tunnur.
Einkasalan, sem ein hefir rétt til
innflutnings á tunnum, er nú sem
stendur stjórnlaus. Útflutnings-
nefndin fer frá um næstu áramót.
Framkvæmdarstjórinn, sem hefir
haft með tunnukaupin að gera, veit
að hann fær lausn í náð, þegar ný
útflutningsnefnd tekur við.
Það verður þvf enginn til þess
að kaupa tunnur af Ingvari, þótt
hann bjóði þær ódýrt, enda mun
ekki þurfa að efa, að tunnutilboð
Ingvars verður hækkað, þegar til
virkileikans kemur, um að tunn*
urnar verði keyptar.
Annað tilboð Ingvars var um
tunnuefni. —
Það tilboð var með nokkrum
öðrum svip en tilboðið um tunn-
urnar. —
Lestin af tunnustaf kostaði eftir
tilboði Ingvars 10% meira en lest-
in af tunnustaf, sem fjárhagsnefnd
hafnaði kaupum á fyrir viku síðan.
Vissa er fyrir um, að það tunnu-
efni, sem fjárhagsnefndin hafnaði
kaupum á, að það var valið efni,
en enginn veit um það efni, sem
Ingvar var að bjóða, hvort það er
valið eða ekki.
Þriðja tilboð Ingvars, sem var
um tunnugjarðir, er í samræmi við
tilboðið um tunnustaf hans. —
Dýrt og óaðgengilegt.
Frammistaða Ingvars í þessu
tunnumáli, sem Hallgrímur Davíðs-
son var að flagga með á bæjar-
stjórnarfundi, var þessi:
Ingvar Guðjónsson þykist geta
boðið mikið ódýrari síldartunnur
frá Noregi nú en fyrri hluta þessa
árs, þótt tilboð hans um efni í
síldartunnur sé mikið hærra en
nokkur annar hefir boðið í fyrra og
í ár, og vitanlegt er að vinnulaun á
tunnum í Noregi eru engu lægri
nú en í fyrra.
Fróðlegt væri að vita, hvernig
Ingvar Guðjónsson ætlar að fá ó-
dýrari tunnur nú en í fyrra og í
vor með því að greiða sömu vinnu-
laun og í fyrra, og greiða hærra fyr-
ir efni en þá.
Með þessum kynduga tunnu-
spekúlanti flaggar svo fjárhagnefnd-
in og byggir sfnar ákvarðanir á.
Fyrir utan þessi merkilegu afrek
fjárhagsnefndar, að láta Ingvar Guð-
jónsson fylla hana af tilboðum, er
virðast gerð í þeim eina tilgangi,
að hræða frá tunnusmíði héríbæn-
um, hafði nefndin samið við Hjalta
Esphoiin um tunnusmíði á þeim
grundvelli, að Hjalti fengi 1 krónu
fyrir að smíða hverja síldartunnu.
í fyrra samdi sama fjárhagsnefnd
við Hjalta um að honum yrði
greidd kr. 1,75 fyrir hverja tunnu,
og Iagði þá til í bæjarstjórn, að
bærinn tæki á sig skaða af því, ef
tunnurnar seldust ekki fyrir það
verð, að Hjalti fengi 1,75 fyrir
smíðið. —
Nú má ekki nefna á nafn, að
bærinn taki á sig nokkra áhættu
af tunnusmíðinni.
Þetta hefir fjárhagsnefnd og tneiri
hluta bæjarstjórnar farið fram!! síð-