Alþýðumaðurinn - 05.12.1931, Side 3
A lÞýðumað urinn
3
í---------------------------
alÞVðumaðurinn.
Oelinn út af Alþýðuflokks-
mönBum.
Kemur út á hverjum Priðjudegi,
og aukab'öð þegar með þarf.
Áskriítargjald kr. 5,00.
Ábyrgðarmaður:
ERLINGUR FRIÐJÓNSSON.
Sími 75.
Afgreiðslumaður:
HALLDÓR FRIÐJÓNSSON.
Sími 110.
Prentsmiðja Björns Jónssonar,
<________________________________-
hafa Kvantumið hærra en 3000, því
betri er einn góður fugl í hendi en
10 á þaki. — En undanfarin 2 ár
hefir millisíldarveiðin verið svo lítil
hér við land, að ég lagði ekki svo
mikið upp úr þessu; og hugsaði mér
að best væri að sjá hverju fram
yndi, þegar búið væri að tryggja
sölu á þessu Kvantum. Og Brdr.
Levy lögðu heldur enga áherslu á
Kvantumið.
Þegar maður fyrirfram getur náð
samningum við áreiðanlegt firma um
verð, sem fyrirsjáanlegt er að gefur
góða afkomu, þá álít ég óafsakan-
legt, ekki síst í ári sem þessu, að
kasta sér inn í lukkunnar iðu með
hvaða verð kann að fást.
Ég fyrir mitt leyti er sannfærður
um það, að ef enginn samningur
hefði verið gerður fyrirfiam um
millisíldarsöluna, og kylfa látin ráða
kasti, þá heíði sala á henni alveg
farið út um þúfur. ef nokkur veiði
að mun hefði orðið í Noregi og hér.
•— Nú hefir það í þetta sinn brugð-
ist þannig að kanskc hefði mátt
vænta að fá hærra verð ef ekki
heíði verið seit fyrirfram. En lukku-
hjólið er ekki lengi að snúast og
enn er aðeins kominn rúmur helm-
ingur af því selda i markaðinn, —
Áður en hinn helmingurinn er seld-
ur getur margt breyst.
Með samningum var trygt, að
ekki bærist of mikið á markaðinn f
einu af ísl, millisíld og átti það að
geta haldið uppi sæmilegu verði ef
ekki alt of mikið bærist að af norskri
millisíld. En ekki hærra en verðið
var á nor.sku millisíldinni, þegar
samn. var gerður, þá var sýnilegt
að kaupandinn átti töluvert á hættu
með því verði sem hann keypti, ef
norska millisíldarveiðin ekki hefði
brugðist svo algerlega.
Ég hefi nú gert nokkra grein
fyrir hvers vegna ég gerði umrædd-
an samning, og mér þykir ótrúlegt,
þó hann verði borinn undir þá, sem
við þessa veiði fást, áður en hann
var undirskrifaður, að nokkur þá
hefði verið sá glanni að hann hefði
viljað hafna honum, sérstaklega eins
og horfurnar voru fram undan með
afkomu manna hér í vetur.
Enda heyrðist engin óánægja um
söluverð, sem öllum strax var kunn-
ugt, fyr en eftir að flugufregnirnar
um söluverð í Höfn bárust hingað.
Pá vöknuðu þessir cpttrhy ggjumenn,
því þá þóttust þeir sjá leik á borði
til að vekja tortryggni og 'óánægju.
Akureyri 30. Nóvember 1931.
Pétur A. Ólafsson.
Hitt og þetta.
Ríkisstjórnin í Finnlandi hefir lagt
fyrir þingið frumvarp, er gerir ráð
fyrir að fram fari þjóðaratkvæða-
greiðsla um afnám áfengisbannlag-
anna nú um áramótin. Óvíst er,
hvort frumvarpið nær samþjrkki
þingsins.
Ýmsir vilja bera brigður á, að at-
vinnuleysið fari eins minkandi í
Englandi og stjórnin gefur upp. —
Lög eru nýlega gengin í gildi þar
í landi, sem svifta marga atvinnu-
leysisstyrk, sem höfðu hann samkv.
eldri lögum. Vilja andstæðingar
stjórnarinnar halda því fram, að
stjórnin telji þetta fólk horfið úr
atvinnuleysingjahópnum, en langt sé
frá að svo sé, og hafa skorað á
stjórnina að rannsaka þetta og telja
atvinnuleysingjana svikalaust fram.
Á Mánudaginn var lá svo svört
þoka yfir Englandi sunnanverðu og
höfunum þar í kring, að öll umferð
teptist, bæði á sjó og landi. — Skip
rákust á og fóru upp á grunn, en
ekki er vitað að stórslys hafi af
þessu hlotist.
Nýlega voru 24 hermenn reknir
af enska herskipafiotanum fyrir ó-
eirðir, sem þeir sífelt hafa haldið
uppi síðan uppreistin varð á fiotan-
um í haust. Skyldu ekki aðrir 24
fara sömu leiðina áður en langt um
líður ? —
Frá barnaskólanum.
Éað er með vissu vitað, að heim-
ilin, félagarnir og umhverfið allt hafa
fyrstu og varanlegustu áhrif á börn-
in, og leggja fjæstu drögin til mót-
unar skapgerðar þeirra. Síðar kem-
ur svo skólinn til hjálpar. En hann
verður að byggja starf sitt á heim-
ilunum, að lang mestu leyti, Þess-
vegna er samstarf heimila og skóla
sjálfsagt og gagnkvæmur skilningur
nauðsynlegur. — Nú er það svo,
að í fjölmennum bæ, eins og t. d.
Akureyri, er harðla erfitt fyiir skól-
ann að kynnast öllum heimilum barn-
anna að verulegu ráði, og foreldra-
fundir, án persónulegrar viðkynning-
ar, hafa ekki reynst mikil meinabót
í þessum eínum.
Éess vegna óska ég nú efitir því,
að sem allra flestir aðstandendur
barnanna finni mig að máli hér í
skólanum, og hefji með því þá við-
kynningu, er leiða mætti til aukins-
skilnings og samstarfs til umbóta á
mörgu því er miður fer í hinu lang-
þýðingarmesta máli allra dagsskrár-
mála í uppcldi peirra, sem erfa eiga
landiö.
Að forfallalausu verð ég ávalt til
viðtals hér í skólanum kl, 2—3ll2 á
mánud., priðjud,, miðvikud. og
fimtud. og væri þá bezt, að þeir
sem börn eiga í 4. 5. og 6. bekkj-
um, kæmu tvo fyrstu dagana, en
aðstandendur barnanna í 1. 2. og
3. bekkjum, kæmu tvo hina siðari
daga.
Hefjum samstarfið, góðir aðstand-
endur! — og gott eitt mun af því
leiða.
Snorri Sigfússon,