Alþýðumaðurinn

Issue

Alþýðumaðurinn - 19.12.1931, Page 1

Alþýðumaðurinn - 19.12.1931, Page 1
ALÞYÐD I. árg. Vkureyri, Laugardaginn 19 Des, 1931. 78,’fbl. Síldareinkasalan afnumin. II. Heiðri og lánstrausii landsins misþyrmt. — Sinábátaútvegurinn lagður í rústir. Hlaðið undir misindis- og sporgöngumenn er- lends auðvalds. Undanfarið hefir þjóðin haft hvoiutveggja, raun og gaman, af því að hiýða á báða íhaldsflokkana metast á um það, hver þeirra hafi gert eða geri landinu meiri heiður eða vanvirðu með gjörðum sínum. Hér hafa þeir verið samtaka að starfi, enda deilir hvorugur á ann- an út af niðurlagningu einkasöh unnar. Það þarf ekki lengi að grafa eft- ir því, hvíiík smán landi og þjóð er ger með því að leggja niður rík- isfyriríæki, á svo hastarlegan hátt, að gefa þarf út bráðarbirgðalög til að geta framkvæmt óhæfuna. — í augum framandi þjóða geta slíkar ráðstafanir tæplega átt sér stað með siðaðri þjóð, nema ætla mætti að stórglæpir hafi verið framdir í sambandi við fyrirtækið. Nú var högum Síldareinkasölunnar þannig farið, að Alþingi og ríkisstjórn skip- uðu meiri hluta þeírra manna, sem með mál hennar fóru. Þegar því fregnin um niðurlagningu einkasöl- unnar og tilbúið gjaldþrot berst út á meðal viðskiptaþjóða landsins, geta þeir ekki litið á þetta öðruvísi en sem byrjun á allsherjargjaldþroti landsins, stafandi af glæpsamlegu athæfi forráðamanna einkasölunnar, því það er ekki til neins að hampa framan í útlendinga ástæðu, annari eins og þeirri, að ríkisfyrirtæki sé gert — af ríkinu sjálfu — gjald- þrota, fyrir það eitt að það er í skuld; á því árí, sem öll atvinnu- fyriríœki eru í hengjandi skuldum. Erlendir viðskiftavinir þjóðarinn- ar hljóta því að fá það álit á ríki og jajóð, að best sé að eiga ekki sitt undir því, og traust þeirra á þjóðinni þverri, bæði í viðskiftalegu og siðferðislegu tilliti. Traustspjöll og álitshnekkir út á við er ekkert smáalriði, en þegar litið er nær sér blasir ekki betra við. — Það þarf ekki að rita langt mál til að rifja upp fyrir almenningi á- standið í síldarútveginum eins og það var áður en Síldareinkasalan var sett á stofn. Kúgun og ófyrir- leitinn yfirgangur sænskra síldar- kaupmanna, árlegt tap verkalauna í stórum stíl, öryggisleysi verkalýðs- ins og vonleysi um viðréttingu síld- arútvegsins og aðstöðuleysi allra smærri útgerðarmanna til að mynda sjálfstæðan atvinnuveg, Alt þetta er verkalýð og sjó- mönnnum hér norðanlands í fersku minni. — Nú á að innleiða sama ástandið aftur. Eyðileggja alt uppbygging- arstarf í síldarútveginum, sem ált hefir sér síað með hjálp einkasöl- unnar, og veita erlendum og inn- lendum fjáraflamönnum aðstöðu til að plokka og kúga verkalýð og sjó- menn eins og þá lystir. í sambandi við kosningu fulltrúa á aðalfund Síldareinkasölunnar í haust, var rækiiega rætt um að- stöðu og framtíð smábátaeigenda hér norðanlands, undir skipulagi einkasölunnar. Almennur áhugi var vaknaður meðal þessara manna fyrir því að reka síldveiði og síldarverk- un sér til hagsbóta, og reynslan frá síðasta sumri sýndi og sannaði Verkamannafélag Akurejrar heldur fund á venjulegum stað kl. 3,30 á morgun, Sunnudag- inn 20. þ m. Sjá götuaugljís- ingar. — að þetta var hægt að framkvæma, með hagsýni og vandvirkni, svo frerni að atvinna þessara mann væri studd og vernduð af einkasölunni. Nú er þessu kollvarpað. Ef þessir menn eiga að fiska síld framvegis, verða þeir að láta sér lynda að selja veiði sína fyrir hvað sem í boði er, og þá einungis r.ýja, því um heimaverkun er ekki að ræða- Þessi vísir til sjálfstæðs atvinnu- vegar hinna mörgu smáhátaeigenda er algerlega drepinn með niðurlagn- ingu Síldareinkasölunnar. Þó að einhver hringur stærri útgerðar- manna yrði stofnaður gagnar smá- útgerðinni það ekkert. Hér hefir nú verið drepið á fram- tíðarhorfur verkalýðs og sjómanna í sambandi við niðurlagningu einka- sölunnar. En fram hjá nútíðinni verður ekki gengið, því hún er svört. — Eins og sakir standa hafa sjó- menn og útgerðarmenn ekki feng- ið nema 2 krónur greiddar fyrir hrásíldartunnuna. Saltendur eiga eftir að fá einn þriðja af söltunar- launum. Þeir eru flestir útgerðar- menn að meira eða minna l'eyti. — Með gjaldþrotaráðstöfun ríkisstjórn- arinnar á einkasölunni, eru eignir einkasölunnar feldar í verði um heiming. Það er því vissa fyrir að sjómenn, útgerðarmenn og salt- endur verða fyrir stórskaða vegna gjaldþrotsins. Þetta orsakar það aftur að stöðvun kemur í síldar-

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.