Alþýðumaðurinn

Issue

Alþýðumaðurinn - 22.12.1931, Page 1

Alþýðumaðurinn - 22.12.1931, Page 1
s zr, ~ 9l(þý 8uma 8uvinn ósöar öllmn lesettdum sinunt nœr og Jjœr gleðilegra jóla. Banabitinn. í grein þeirri sem sem Böðvar Bjarkan ritar í 59- tbi. Dags og hann nefnir »Við fráfall Síldareinka- sölu íslands«, kemst hann meðal annars svo að orði: «í sambandi við þessa spurningu, hvað það er sem raunverulega hef- ir kornlð Einkasölunni á kné, má geta sér þess tii með fullum rö«- um, að þar komi í fyrstu röð hin mishepnaða tilraun síðasta alþingis til endurbóta á skipulagi Einkasöl- unnar, tilraun sem hefir leitt til þess, að framvegis hefði síjórn Einkasöl- unnar í raun og veru veriö öll í höndum fulltrúa verkalýðs þess, sem vinnur að síldarverkun í landi, í stað þess að fulltrúar útgerðarmanna, og verkalýðs voru áður jafnsterkir aðilar um Einkasöluna. Þessi rösk- un á jafnvægi í stjórninni hlaut fyr eða síðar að koma Einkasölunni í voða, og er ekki ólíklegt að þessi hætta hafi eflí mjög þær heiftarlegu árásir, sem leiddu til þess skjóta fráfalls Einkasölunnar.* o Alþýðumanninum þótti þessi kafli greinar þeirrar, sem nefnd er hér að ofan, svo lærdómsríkur að hann gat ekki stilt sig um að prenta hann upp. í kafla þessum kemur það svo Ijóslega fram að ekki verður um vilst að B. B. telur aðal ástæðuna til þess ríkisstjórnin raukíað drepa Síldareinkasöluna þá að samvinnu- mennirnir hér úti í firðinum eru svo hlálegir að þeir vilja heldur trúa Erlingi Friðjónssyni og Guðmundi Skarphéðinssyni fyrir máium sínum á einkasölufundinum, heldur en Ingvari Guðjónssyni og Steindóri Hjaltalín. Því samvinnumennirnir voru það sem kusu þá Erling og Guðmund og engir aðrir. Og vestan lands voru það líka samvinnu mennirnir, sem kusu Finn Jónsson. Til þess að gera það skiljanlegt að samvinnumennirnir hér út í firð- inum líti nokkuð annan veg á það en Böðvar Bjarkan og sennilega ríkisstjórnin, að það sé einhver sálu- hjálpar vegur fyrir þá að að gera Ingvar og einhverja með honum að talsmönnum fyrir sig skal á það bent að undir því skipulagí á stjórn Einkasölunnar, sem B. B. telur að því er virðist fyrirmyndarskipulag, höfðu þessir samvinnumenn, sem yfirleitteru smáútgerðarmenn, orðið að horfa upp á það að þeim stóru út- gerðarmönnunum var fært upp 1 hendurnar tunnur og salt til síldr- verkunar þegar smábátaeigendur bæði af Dalvík, Litláárskógsandi og úr Hrísey urðu að sækja tunnur sínar og salt til verkunar á síldinni inn á Akureyri. Böðvar Bjarkan, sem hælir þeirri skipun útflutningsnefndar að full- trúar úfgerðarmanna og verkalýðs séu jafnsterkir aðilar í útflutnings- nefnd hefir sem oddamaður í nefnd- inni annaðhvort ekki fest sjónir á þessu og fleira misrétti, sem kom fram við smáútgerðarmennina, eða hann hefir vantað þrótt til þess að bæla niður yfirgang þeirra, sem valdir voru að ójöfnuði þessum. Smábátaeigendurnir hér úti í firðin- um heimtuðu aðeins jafnan rétt við þá stærri, og þeir gerðu sér von um að jafnaöarmennirnir myndu hjálpa þeim til þess að náhonum. En viðtökur þær sem þeir fá hjá rík- isstjórninni teynast svipaðar því er rússnesku bændurnir, á keisaraöld- inni, fengu, þegar þeim var send byssukúla í bringuna í staðin fyrir brauð handa börnunum. Það er vitanlegt að afnám Einkasölunnar kemur þyngst riiður á smábáta eig- endum næst verkalýð til lands og sjávar. Sé það því rétt hjá Böðvari Bjarkan að ríkisstjórnin hafi lagt nið- ur Einkasöluna aðaliega fyrir þ að að jafnaðarmenn kæmust í meiri- hluta í útflutningsnefnd, af því sam- vinnumennirnir, smábátaeigendur trúðu þeim betur fyrir sínum mál- um en stórútgerðarmönnunum, þá hefir ríkisstiórnin framið pólitíks valdarán, með því að taka þann rétt af mötmum, sem þeir höt'ðu fengið með iögum settum af þingi þjóðarinnar. Þá skal farið nokkrum orðum um þá hættu, sem B. B. telur við það að jafnaðarmenn fengiu méiri- hluta í útflutningsnefnd Síldareinka- sölunnar. Hann segir að lagabreytingin frá síðasta þingi hafi »leitt til þess að framvegis hefði stjórn Einkasölunn- ar í rauri og veru verið öll í hönd- um fulltrúa verkalýðs þess, sem vinnur að síldarverkun í landi-« Veit Böðvar Bjarkan ekki að t. d Finnur Jónsson er framkvæmdar- stjóri Samvinnufélags ísfirðinga, sern er næstum eingöngu félag ís- firskra sjómanna, og að Finnur er fulltrúi sjómannanna bæði, sem fram- kvæmdarstjóri og kosinn af þeim á einkasölufundinn, og með tilliti til

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.