Alþýðumaðurinn

Issue

Alþýðumaðurinn - 03.01.1933, Page 1

Alþýðumaðurinn - 03.01.1933, Page 1
1. tbl. ALÞYÐUMAÐU III. árg. I Akureyri, í’riöjudaginn 3. Janúar, 1933. Til lesenda. Þegar Alþýðumaðurinn hóf göngu sína fyrir tveimur árum, var þess getið í fyrsta blaði hans, að blaðið myndi koma út einu sinni í viku, á Þriðjudögum, og aukablöð, ef á- stæða virtist til. Nú fór það svo, að fyrsta árið komu út, auk Þriðjudags-blaðanna, um 30 aukablöð, og annað árið, síðastliðið ár, hefir komið út af blaðinu næstum reglulega tvö blöð í víku. Samhliða því, sem auglýs- ingar hafa minkað í blaðinu mikið á síðasta ári, vegna innflutnings- hafta þeirra, sem gilt hafa, og að kaupfélög og kaupmenn hafa þar af leiðandi minni ástæðu haft til þess að auglýsa vöru sína, hefir meira rúm verið fyrir ritgerðir í blaðinu, fréttir og annað, sem les- endur kaupa blöðin fyrir. Útgefend- ur Alþýðumannsins hafa því gjört meira en að standa við þau loforð, sem gefin voru í fyrstu um útgáfu blaðsins, og kann ég þeim, sem ábyrgðarmaður blaðsins, þakkir fyr- ir, og þykist ég vita að lesendur taki undir þær þakkir. Ná hafa útgefendur ákveðið, nð fyrst um sinn komi blaðið út einu sinni í viku, á Þriðjudögum, eins og fyrsta árið, og aukabiöð, þegar ástæða virðist til. Aukist auglýsing- ar í blaðinu, svo annað lesrúm þess minki þess vegna, verður kaupend- um bætt það upp með aukablöð- um. — Þakka ég svo lesendum fyrir hönd blaðsins mjög góðar undirtektir á liðnum tv®jm síðustu árum, um leið og blaðið hefur göngu sína á þriðja ári þess. — Erlingur Friðjónsson. Þegar >Alþýðumaðurinn* hóf göngu sína fyrir tveimur árum síð- an, höfðu kommúnistar þá nýverið myndað félagsskap sín á milli, sem þeir nefndu »Kommúnistaflokk ís- lands*. Tilgangur þeirra með þess- ari félagsstofnun var sá, að beita þeim sarntökum sínum á móti sam- tökum verklýðsfélaganna á íslandi, Alþýðusambandinu. Þeir hafa einn- ig rækt þessa starfsemi sína með mestu kostgæfni þessi tvö ár, sem Kommúnistaflokkurinn hefir lifað, bæði með því að gefa út blöð í ■ Reykjavík og Akureyri, sem halda uppi látlausu níði um Alþýðuflokk- inn og þá menn, sem mest og best hafa unnið verkalýðnum gagn í verklýðsfélögunum, og á þann hátt að gera fundi verklýðsfélag- anna að fundum þar sem ólæti og annar bjánaháttur er hafður í frammi, tii þess að fæla með því hugsandi menn frá fundunum, svo kommúnistum lánist að hafa þar yfirhöndina. Menn hafa vetið í vafa um það hvort það sé beinn tiigangur kommúnistanna að drepa verklýðsfélögin með þessu fram- ferði sínu á fundum félaganrra og í biöðum þeirrs, en hvort sem helTjr er, verður sama niðuistaðan af -rarfs þeirra, — veik samtök meö.ii verkalýðsins, eða hreinn dariði félaga þeirra, sem kommún- ist/ »ir bafa öll völdin f. ■B nyja bio BS Mibvikudagskvöld kl 9 Ástareyjan Söngmynd í 10 þáttum. Aðal- hlutverkið teikur og syngur hinn heimsfrægi óperu- söngvari Lawrence Tibbet. Þessi gullfallega og hrifandi mynd hefir hlotið einrótna lof fyrir listræni, enda er með- ferð aðalhlutverkanna í henni snildarleg og umhverfi fag- urt og skáldlegt. FUNDUR verður haldinn í jafnaðarmannafél. »Akur< Fimtudaginn 5. þ m. í Al- þýðuhúsinu, Slrandgötu 7, kl. 8 síðdegis. DAGSKRÁ: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Hlutverk jafnaðarmannafélaga 3. Önnur mál. 4. Upplestur. Akureyri 3. Jan. 1933. Félagsstjórrtin. Á tveimur síðustu árum hafa kommúnistarnir náð stjórn á 10 félögum hér norðanlands, og eru 6 þessara félaga algerlega dauð. Dauðu félögin eru þessi: 1. Sjómannafélag Norðurlands Ak. 2, Samvinnufél. sjómanna, Akureyri,

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.