Alþýðumaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Alþýðumaðurinn - 30.01.1933, Qupperneq 1

Alþýðumaðurinn - 30.01.1933, Qupperneq 1
5. tbl. III. árg. | Akureyri, Þriðjudaginn 30. Janúar, 1933. Reynsla liðins árs. (Niðurl.). Á fyrri kafla þessarar greinar sést það, að af tveirn ástæðum getur ekki verið að ræða um félagslegt sarastarf milli kommúnista og gætnari manna verklýðshreyfingarinnar, Fyrst er það, að kommúnistana skortir vilja og kunnáttu til að starfa á grundvelli heil- brigðrar skynsemi í verklýðsmálum, og í öðru lagi sýna þeir verklýðssamtök- unum fullan fjandskap í hvívetna. Peir menn, sem bygt hafa upp al- þýðusamtökin á fslandi, og hafa öðl- ast þekkingu og reynslu í þeim mál- um, geta enga samleið átt með á- byrgðartilfinningarlausum angurgöpum og glæpamönnum í verklýðsmálum, — sem þá líka sýna alþýðusamtök- unum lítilsvirðingu og fjandskap. — F*að eru aðeins áttaviltir moðhausar í verkamálum, sem láta blekkjast af hamagangi og sjálfshóli kommúnist- anna, og sem betur fer eru þeir 11- tölulega fáir, þegar á reynir. í öðru lagi hefir Kommúnistaflokkur íslands nú hafið skipulagða klofn ngsárás á samtök verkalýðsins, þar sem reynt er að flæma verklýðsfélög út úr Alþýðu- sambandi fslands — aðalvígi verka- lýðsins á fslandi — og h:ndra það að verklýðsfélög, sem standa utan við ^.Iþýðusambandið, gangi í það. Hið fyrra hefir átt sér stað með nokkur félög, þar sem kommúnistar voru nógu sterkir í félagsstjórnunum til að varna því-að félögin greiddu skatt til því að æsa félag járniðnaðarmanna í Reykjavík til að þráast við að ganga í Alþýðusambandið, þó það kostaði máske félagið taþ í verkfalli þvf ef það nú hefir staðið í um tíma. Petta klofningsstarf var skipulagt til fullnustu á þingi K. í, í haust. Pó átt hafi að fara leynt með þennan verklýðsmálaglæp, hefir þetta þó síast út frá kommúnistunum sjálfum, enda hefir verið hægt að lesa það út úr skrifum »Verkl.bl.« nú í kringum ára- mótin. Ætlunin er, ef þetta herbragð tekst, að nota þessi félög til að eyði- leggja verklýðssamtökin, t. d, til að svíkja ef Alþýðusambandið boðaði til alsherjar verkfalls, því eins og það er áhugamál K. í. að einstök félög tapi kaupdeilum, svo þráir hann og heitt að hið sama hendi Alþýðusambandið — alt til þess að verkalýðurinn missi trú á félagssamtök og asnist inn á byltingaleiðina. Um hag og heiður verkalýðsins hugsa kommúnistarnir á Islandi tkkert. Á undán aðalfundi Verkamannafél- ags Akureyrar nú í þessum mánuði, báru kommúnistar út þá lygasögu að verið væri að ganga um bæinn með undirskriftaskjöl, þar sem verið væri að efna til samtaka um að verkamenn gengju úr félaginu. Fessi saga skap- aðist f heila sprengingarmannanna af því að þeir heyrðu alstaðar utan að sér, frá verkamönnum, að sterk alda var að rísa, sem falla myndi út úr félagtnu fyr eða síðar. Menn neituðu að greiða gjöld sín. Sögðust vera — í reynd — komnir úr félaginu, og þeir sæu enga ástæðu til að greiða fé í það. Aðrir sögðust mundu segja sig úr á einbverjuin næslu funda. — Sagan um undirskriftirnar var upp- spuni einn. Perra þarf ekki með. hita og þunga dagsins til þessa, og mun bera að sínum fulla parti í fram- tíðinni, hlýtur að fara þá einu sjálf- sögðu leið, sem fyrir liggur, yfirgefa þann félagsskap, sem ætlað er að fremja svik við landssamtök verkalýðs- ins, og byggja upp á öðrum stað samtök sín, í samræmi við reynslu sína og þekkingu á verklýðsmálum, og halda áfram að vera öflugur hlekk- ur í samtakakeðju íslensks verkalýðs. Og hann mun byggja upp þennan félagsskap á skynsamlegri yfirvegun verklýðsmálanna og halda fyrir utan hann angurgöpum og flugumönnura Kommúnistaflokks íslands. Peirra eiga að bíða sömu örlög og samherja þeirra í nágrannalöndunum, sem getið var um í fyrri hluta þessarar greinar. Skæðadrífa. Guðmann og Steingrímur segja frá. Peir sem lifa á lygi, leika það oft að unga henni út sem fjærst þeim slöðum, þar sem þeir atburðir gerast, er hún er spunnin um, Kommúnistar eru leiknir í þessari list. »Verklýðs- blaðið* í Reykjavík er látíð Ijúga um það sem gerist hér norður á Akureyri, og »Verkam.« um þaf) sem gerist suður í Reykjavík. Petta er gert til þess að lygin geti lifað nokkra daga. — »Verklýðsblaðið« 17. þ. m. er látið segja frá aðalfundi Verkamanna- félagsins hér þannig, að það lítur svo út fyrir ókunnugum lesara, að Alþýðu- flokksmenn og kommúnistar hafi sleg- ist um völdin á fundinum, þó um ekkert þessháttar væri að ræða, þar sem Alþýðuflokksmenn létu kosningu stjórnarinnar hlutlausa. Pá er frá því sagt, að Erl. og Halldór Friðjónssynir hafi ekki þorað að láta sjá sig á fund- inum. Líka er getið um undirskrifta- smölunina, sem kommúnistarnir voru að skröicva upp rétt fyrir fund- inn. Ekkert af þessu þorir »Verka- Alþýðusambandsins, og nú síðast með Verkalýður bæjarins; sá er borið hefir

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.