Alþýðumaðurinn - 31.01.1933, Síða 1
III. árg. || Akureyri, í’riðjudaginn 31. Janúar, 1933. _y 6 ibl. ■
Ungmennafélagar! Fjnlmennið á Élnia næsta Fnstudajjskv. kl 8,30.
NYJA BIO
Verklýðsmál.
Járniðnaðarmannaverkfallinu í Rvík
«r nú lokið. Voru samningar undir-
skrifaðir á Sunnudaginn, og gengu
íárnsmiðjueigendur að kröfum járn-
iðnaðarmanna — sem sagt var frá
í næst síðasta blaði — nema hvað
lágmarkskaup nemenda, sem ráðnir
voru s. 1. ár, verður 40 aurar á kl.st.
og fer hækkandi eítir sömu reglum
og kaup eldri nemenda. Kommún-
istar börðust með hnúum og hnefum
gegn því að félagið gengi í Alþýðu-
sambandið, en hefði það gert það
strax og deilan hófst, hefði hún
aldrei staðið nema noltkra daga.
Eftir nær mánaðar þref tók félagið
ráðin af sprengingamönnum, oggekk
1 Alþýðusambandið nú fyrir helgina.
Létu járnsmiðjueigendurnir þá strax
undan. Það sem »Verkam.« sagði
um þessi mál á Laugardaginn, var
ósatt, eins og alt annað hjá þeim
sorpsnepli. Járniðnaðarmannafélagið
hlýtir sömu lögum og önnur félög í
Alþýðusambandinu. Fékk ekki inn-
göngu í sambandið fyr en það hafði
breytt lögum sínum í samræmi við
Alþýðusambandslögin. Vinnustöðvun
í járnsmiðjunum var ekki fullkomin
fyr en Alþýðusambandið kom til
skjalanna. Atvinnurekendur voru
hættir að semja og ætluðu að svelta
verkfallsmennina til auðsveipni, en
tóku strax upp samninga er félagið
gekk í Alþ.samb., enda gekk forseti
sambandsins, Jón Baldvinsson, um
sættir og leysti deiluna á hagkvæm-
an hátt fyrir verkalýðinn, þótt stjórn-
\
ir tilheyrandi félaga undirrituðu
samningana. Kommúnistar höfðu
engin önnur áhrif á þessa deilu en
þau, að teyja hana og spilla fyrir
verkfallsmönnum.
Verkamannafélagið »Dagsbrún«
í Reykjavík hélt aðalfund sinn á
Sunnudaginn. Héðinn Valdimarsson
var kosinn formaður, og hægfara
jafeiaðarmenn í stjórn með honum,
með 301 — 310 atkv. Kandidatar
kommúnista fengu 99 —101 atkv. Á
fundinum voru reknir úr féalginu —
fyrir ósæmflegt háttalag á fundum fé-
lagsins og opinbera skemdastarfsemi
— þeir Brynjólfur Bjarnason, rits.tj.
»Verk’ýðsbl.«, og bræðurnir Guðjón
og Gunnar Benediktsynir. Kommún-
istar höfðu haft mikinn undirbúning
undir fundinn. Fundi á hverju ein-
asta kvöldi alla daga vikunnar á
undan og slitalausa smalamensku.
Eftirtekjan varð sú, að þeir fengu
um 100 atkv. í félagi, sem telur um
1300 félaga. Hafa þeir hæst komist
upp í 108. Við rannsókn, sem fram
hefir farið, vegna krafa kommúnista
um að ekki séu aðrir en verkamenn
í verkamannafélaginu, hefir það
komið í ljós, að af þefm 100 fylgis-
mönnum, sem kommúnistar eiga í
Dagsbrún, er aðeins 40 verkamenn,
en af þeim 12 hundruðum, sem
fylgja Alþýðufl. eru aðeins 15, sem
ekki eru algengir verkamenn.
Verklýðsfélagið »Baldur« á ísafirði
hélt aðalfund sinn á Laugardaginn.
Alþýðufl.menn voru kosnir í stjórn
Þriðjudagskvöld kl. 9 —
Ný myndl
Qamanmynd í 9 þáttum. Aðal-
hlutverkið leikur;
CLARA BOW.
Ákaflega skemmtileg mynd!
Miðvikudagskvöld kl. 9
Marokko.
:íyý;C:; .ý
FUNDUR
verður lialdinn í Jafnaðarmannafél.
»Akur« Fímtudagir.n 2. Febrúar í
Alþýðuhúsinu, Sírandgötu 7, kl. 8
síðdegis.
DAGSKRÁ:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Mál, sem frestað var á síð-
asta fundi.
3. Erindi frá áfengismálanefnd.
4. Tunnusmíðið.
5. Upplestur.
Akureyri 31. Jan. 1933.
Félagsstjórnín.
meö um 140 atkv. Kandidatar
kommúnistu fengu um 40 atkv
Undanfarið hafa staðið harðar deilu