Alþýðumaðurinn - 21.02.1933, Page 1
III. árg.
Akureyri, t'riðjudaginn 21. Febrúar, 1933.
10. tbl.
4
framhaldsstolDíiindiir
Verklýðsfélatís Akureyrar var hald-
inn á Sunnudaginn, eins og til
stóÖ. Fundurinn var ágætlega sótt-
ur og hinn fjörugasti. Félagið tel-
ur nú 140 manns, og hafa þó tölu-
vert margir af þeim, sem hafa skráð
sig þátttakendur í félagsstofnuninni,
enn ekki gengið formiega í félagið.
Samþykl var að hafa árgjald karla
6 krónur og kver.na 3 krónur. —
Samþykt var að stofna sjúkrasjóð
fyrir félagið og reglugerð fyrir hann
ákveðin. Ákveðið var að gildandi
kauptaxíi á staðnum skyldi giida
fyrir félagsfólk, þar til nýr kauptaxti
væri settur af félaginu-
Var kosin kauptaxtanefnd á fund-
inum. Skipa hana:
Quðrún Sigurgeirsdóttir,
Árni Jóhannsson,
Jón Þórðarson,
Haraldur Porvaldsson,
Gestur Jóhannesson.
Og til vara:
Sig- H. Austmar,
Rannveig Jónatansdóttir,
Haraldur Gunnlaugsson,
Þá gerði fundurinn eftitrfarandi
ályktun:
»Út af þeim ummælum blaðsins
»Verkamaðurinn«, 8, tbl. þ. á, um
að menn hafi verið lokkaðir inn í
Verklýðsfélag Akureyrar með »at-
vinnuloforðum og íríðindum, sem
gefin hafa verið', lýsir fundurinn
því yfir, að slík ummæli og aðrar
dylgjur blaðsins í líka átt, eru til-
hœfulaus ósannindi.«
Þetta var samþykt í einu hljóði
af öllum fundarmönnum — milli
90 og 100 manns.
Síðast á fundinum flutti form-
ræðu um viðhorf verklýðsmálanna
í Akureyrarbæ. Gat hann þess, að
nú þegar, eftir tveggja funda starf,
væri Verklýðsfélag Akureyrar búið
að öðlast meiri styrk og betri að-
stöðu til að verða hagsmunamálum
verkalýðsins í bænum að liði, en
hin eldri verklýðsféfögin, og færði
rök fyrir því. Tók félagsfólkið hið
besta undir mál hans, og ákvað að
safna fjölda nýrra félaga fyrir
næsta fund. Mun ekki verða látið
sitja við orðin tóm-
»8aráttu-fúsarnir«.
Ólafur Friðriksson hefir nýlega
fundiö upp nýtt nafn ásprenginga-
brölturunum, sem kommúnistar eru
að ala upp innan verklýðshreyfing-
arinnar, og kallar þá »baráttu-fús-
ana«. Þeir eru allt af að hæla sjálf-
um sér fyrir hvað þeir séu baráttu-
fúsir, þótt öll þeirra barátla snúi
gegn velferð verkalýðsins. Þessi
baráttufýsi virðist vera orðin trúar-
brögð þessara hugsjónalausu ó-
gæfumanna, sem lýsa sér í álíka
athöfnum og orðum og æstustu
götuprédikarar eru þektir aö. — í
hinu athafnalausa og úrræðalausa
hugsjónahringli »baráttu-fúsanna«,
belgja þeir sig upp með stóryrð-
um og rökviltum ályktunum, sem
skapa hinar vel þektu skopmyndir
af þessum fálmaralýð.
»Baráttu-fúsariiir« í Verkamanna-
félagi Akureyrar ætla að rifna end-
anna á milli yfir stofnun Verklýðs-
félags Akureyrar. Þeir þykjast vilja
og ætla að gera svo og svo mikið
til að hindra framgang félagsins —
NYJA BIO
Miðviltudagskvöld kl. 9
Óþekti
hermaðurinn
í aðalhlutverkunum :
Ernst Busch.
Georges Peclet.
Louis Douglas.
Vladimir Sokoloff.
Merk mynd að mörgu leyti.
en geta auðvitað ekkert gert Þetta
vita þeir sjálfir, og í sjálfsblekking-
arskyni hrúga þeir upp hverri fund-
arsamþyktar-fjarstæðunni af annari,
sem gerir þá að athlægi frammi
fyrir almenningi.
Eftir því sem Verkam. skýrir frá
á Laugardaginn, hélt Verkamanna-
félagtð fund á Föstudagskvöldið og
samþykti eftirfarandi:
Að hefja »'miskunarlausa baráttu*
gegn nvja félaginu.
Að láta meðlimi Verklýðsfél. Ak-
ureyrar »gjalda þess að meira eða
minna leyti«, að þeir skuli hafa
stofnað verlýðsfélag !!!
Að »leita aðstoðar* verklý^sfé-
laga »víðsvegar um landið* til að
berjast gegn Verklýðsfélagi Akur-
eyrar!!!
Að reka menn úr Verkamanna-
félagi Akureyrar, þvert á móti lög-
um félagsins.
Þetta láta þeir Steingrímur í
. Lyngholti og Þorst. Þorsteinsson