Alþýðumaðurinn

Issue

Alþýðumaðurinn - 28.02.1933, Page 3

Alþýðumaðurinn - 28.02.1933, Page 3
■j Öllum þeim. er sýndu okkur sam- úð og veittu hjálp við andlát og jarðarfkr Svövu Guðmundsdóttur, vottum við bugheilar þakkir. Fjölskyldan. um, sem hefir öðlast aðstöðu til þess að geta unnið þær kaupdeil- ur, sem allt af má gera ráð fyrir að verklýðsfélögin lendi í. — Verk Einars Olgeirssonar hefir verið það frá þvr hann fyrst fór að hafa af- skifti af málum verkafóiks hér um slóðir, að sprengja Verkamannafé- lag Akureyraf út úr þeim allsherjar ^Jandssamtökum, sem Alþýðusam- band íslands er, og honum tðkst það að síðustu 6■ þessa mánaðar. Með því var þetta gamla félag gert máttlaust í öllum deilum. »Olæpa- maðurinn« Einar Olgeirsson, hefir því ekki einasta drepið þau tvö fé- lög, sem hann síofnaði hér, Jafnað- armannafélag Akureyrar og Sjó- mannaíélag Norðurlands, með því að fela þeim mönnum stjórn á þessum félögum.sem allan vilja og þekkingu vantaði til að láta þau lifa, heldur hefir hann einnig dreg- ið dauðann inn í herbúðir Verka- mannaféiagsins með stjórn sömu manna þar. » Verklýðssvikarimu Einar Olgeirsson er fullur monts og hroka yfir fylgi sínu við síðust þingkosningar hér. En hann kærir sig sjálLagt ekki um að skýra opinberlega frá því hvernig það fylgi var fengið, að það var fengið á síðustu stundu með því að dreifa út lygum og svívirðingum um þann mann, sem á Alþingi hafði með starfi sfnu skapað Einari Olgeirs- syni þá bestu aðstöðu sem fram- kvæmdarstjóri Síldareinkasölu ís- lands, sem nokkur maður á land- inu hefir fengið til þess að bæta kjör verkalýðsins, en sem «verklýðs- svikarinn« Einar Olgeirsson hafði eingöngu notað til þess að hirða nálægt 50 þúsund krónur af fé fá- tækra sjómanna, og landverkalýðs, *.... - og svikið alt er honum bar að gera fyrir þettá fólk. m Pegar saga verklýðshreyfingarinn- ar Norðanlands verður skráð, mun »Verklýðssvikarans« Einars Olgeirs- sonar verða getið á sömu lund og tólfta postulans forðum að öðru- leyti en því að hann skortir þær dygðir sem drógu Júdas fyrir 19 öldum síðan út í hengingarólina. iBanditt burgeisa- stéttarinnar.« Pað er ekki ótítt að þeir menn sem einhverntíma, meðan þeir voru lítið þektir, höfðu tiltrú hjá verka- lýðnum, haldi að hlustir hans standi opnar fyrir smjarðinu og hræsninni, sem burgeisarnir vilja fá flutt í eyru verkalýðsins, þó þessir menn séu komnir á kaf í gin auðvaldsins, og æpi þaðan út til fólksins með tugi verklýðssvika, á baki og brjósti. Slíkir menn eru réttnefndir »band- íttar burgeisaséttarinnar*. Pað þarf ekki að lýsa æfiferii Einars Olgeirs- sonar á þessu sviði. Pað er fyllilega kunnugt, að um leið og Síldareinkasala íslands hætti að greiða honum 1000 kr. á mánuði í kaup íyrir að svíkja allt, sem verka- iýðurinn hafði trúað honum fyrir í starfi þar, gekk hann beina Ieið fyrir kjöltu Mjólkurfélagsins og Kveldúlfs í Reykjavík og fól þar höfuð sitt og gjörðist braskfélagi þessara auðjarla landsins. Pað má nærri geta hvort verkalýðurinn á Akureyri fer að taka það hátíðlega þó þessi kjöltutík Mjólkurfélagsins og Kveldúlfs spanngóli sinn hræsnis- og svikavaðal út til hans, þó krydd- aður sé með fögrum orður og öðru yfirskyni svíkanna, sem lýst hefir verið hér að framan. Verkalýðurinn hér veit að Einar Olgeirsson er stœrsti verklýðssvik- arinn á landinu, þó hann eigi ýmsa lærisveina á sömu braut. Að hann hefir á tveimur árum drepið 5 verk- lýðsfélög á Norðurlandi, með óstjórn sinna lærisveina. Að hann hefir ætl- að að sprengja verklýðsfélögin á Norðurlandi út úr Alþýðusamband- inu og á þann hátt að gjörá þau máttlaus f baráttunni við atvinnu- rekendur. Að hans ráðum var fylgt •bílar bestir. Sími 260 þegar lærisveinar hans klufu Verka- mannafélag Akureyrar út úr Alþýðu- sambandi íslands, og gerðu félagið með því óhæft til baráítu. Span- gólið að sunnan á best við á leiði dauðu félaganna og Verldýðssam- bandsins hans Einars, sem nú er nýlega dauti líka, því þing þess átti að réttu lagi að vera í Janúar síðastliðnum, en ekkert bólar á því enn. Pegar athugaður er ávöxturinn af fúlmensku þeirri er birtist í hrað- drápi allra þeirra verklýðsfélaga» sem Einar Oigeirsson og hans fylgdarlið kemur eitthvað nærri, fer lesarinn að skilja hótanir þessa að því er virðist hálfbrjálaða uppskafn- ings um að hann skuli jafna AI- þýðusamband íslands við jörðu og hið nýstofnaða Verklýðsfélag hér á staðnum. Hann sér ávöxt starfs síns í dauða félaganna, og telur eins og heild- sali væri að telja mjölpoka. Fyrst eg hefi drepið 5 félög á 2 árum, mun »verklýðssvikarinn« segja, get eg drepið 50 félög á 20 árum, En uppskafningum skjáltast í þessu. Dauðu félögin hér norðanlands eru minnisvarði »verklýðssvikarans,« »klofningsmannsins«, og »banditts burgeisastéttarinnar* á pólitískri gröf hans. Erlingur Friðjónsson. Á gægjutn. Kommúnistarnir hafa haft það fyrir sið, síðan jafnaðarmannafélagið ,Akur‘ var stofnað, að hafa einhverja á gægj- um við dyr fundarhússins, til að sjá hverjir það væru, sem væru í félaginu. Á fyrri stofnfundi Verklýðsféiags Ak- ureyrar féllu þessar gægjur niður, því þá var stórhríð, og líklega lítið um hefjur í hópi þeirra stéttvísu, en siðari daginn stóð Eggert ÓI. Eiríbsson á gægjum í nánd við Akur- eyrar-Bio, þar sem stofnfundurinn var haldinn, enda var veður þá hið besta, En er Ótafur hafði séð á eftir 90 fé- lagsmönnum inn í Bíó-húsið, reykaði hann heim og fól ásjónu sína fyrir uraheiminum.

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.