Alþýðumaðurinn - 18.04.1933, Qupperneq 1
samþyktir af Alþingi.
íslenskur síldarútveg-
ur lagöur i rústir til
þess að ríkisstjórnin
geti lafað við völd
áfram.
Á Miðvikudaginn var samþykti
efri deild norsku samningana með
9 atkv. gegn 4, en einn þingmaður.
sat hjá. Pað var þó vitað að stór
meiri hluti deildarinnar var á móti
samningunum, en hræðslan við að
stjórnin stæði við hótun sína og
segði af sér, ef landið yrði ekki
selt Norðmönnum, knúði samþykt-
ina í gegn-
Hér verður ekki rætt um þann
fjárhagslega skaða, sem þjóðinni er
unninn með samþykkt samning-
anna. Pað vita allir og viðurkenna,
að samningarnir eyðileggja 5 krón-
ur móti hverri einni sem með þeim
vinst; að útlendingum er gefinn
veiðiréttur í landhelgi, og að þingið
gengur að því með opnum augum
að svelta norðlenskan verkalýð.
Á hitt verður aftur bent, að með-
ferð Alþingis á þessu máli hefir
dregið upp þá hrygðarmynd af ís-
lenskum stjórnarvöldum og íslensku
-stjórnmálaástandi, að slíkt hefir ekki
áður sést, og hefir þó oft ekki
verið glæsilegt um að litast þar
í sveit. —
Það hefir komið í Ijós, að ríkis-
stjórn og samningamenn þjóðarinn-
»ar hafa með opnum augum svikið
þjóðina og gert hluta landsins að
nýlendu yfirgangssamrar erlendrar
^þjóðar, sem í mörg ár hefir unnið
að því að eyðileggja einn af aðal-
atvinnuvegum þjóðarinnar, síldarút-
veginn.
Pað hefir komið í ljós, að stærsti
flökkur þingsins, Framsóknarflokk-
urinn, er albúinn til að vinna sjáv-
arútveginum og verkalýð við sjávar-
síðuna allan þann skaða, sem hann
getur, til þess að þóknast þröng-
sýnasta Og illvígasta hluta bænda-
stéttarinnar. Svo langt hefir þessi
undirlægjuháttur gengið, að þiiíg-
menn Eyfirðinga vinna þetta níð-
ingsverk á sínum eigin kjósendum,
til þess að þóknast nokkrum íhalds-
sálum f bændastétt.
Pað hefir komið í Ijós, að Sjálf-
stæðisflokkurinn!!!! — sem þanið
hefir gúlana undanfarið og þykist
vera vörður Iands og réttar, er al-
búinn að svíkja sjálfstæði landsins
hvénær sem er. Pingmenn hans
taka þátt í afsali þjóðarinnar á land-
helginni og yfirráðum á sínum eigin
atvinnumálum.
Pað hefir komið í Ijós, að ríkis-
stjórnin, sem skipuð er þeim stjórn-
mála-vesaimennum, sem ekkertgagn
gera iandi og þjóð; ekkert stolt
virðast eiga og enga löngun til að
leysa vandamál þjóðarinnar, notar
aðstöðu sína til að knésetja þingið.
Og það hryggilegasta af öllu
þessu hefir ennfremur komið í Ijós:
Alþingi íslendinga 1933 er svo illa
á vegi statt; svo sundurleitt, dáð-
laust og viljalaust, vonlaust og
kjarklaust, að það treystist ekki til
að mynda nýja stjórn — þorir ekki
að efna til nýrra kosninga.
Pegar þetta er athugað, þarf
engan að undra þótt ekki komi
dúfa úr hrafnsegginu því. En þeim,
sem órétturinn er ger og sviftir eru
möguleikum til að bjarga sér á
NYJA BIO
Aíiðvikudagskvöld k/. 9:
— Móðurást. —
Stórfengleg hljóm- og talmynd í
10 þáttum. Aðalhlutverkin leika:
inn Harding.
Clive Brook.
Conrad Nagel.
Myndin er snildárlega leikin
og hefir hlotið feikna aðsókn
og aðdáun og var sj'nd sem
páskamynd í iívík í fyrra.
Finitudagskvöld kl. 9 —
Ný mynd.
heiðarlegan hátt, er þetta alt Ijóst,
og menn muna það iengur en
daginn.
En það heíir líka enn eitt komið
í ljós í sambandi við þetta mál-
Pegar ríkisstjórnin, trúnaðaimenn
hennar og fulltrúar Framsóknar og
Sjálfstæðisins!!! brugðust þjóð-
inni og unnu gerræðisverk á stór-
um hluta hennar, voru það íslenskir
jafnaðarmenn á þingi, sem eirtir
stóðu með þjóðinni og vörðu sjálf-
stœði hennar, hagsmuni og sóma.
Pað voru Alþýðuflokksfíilltrúarnir
á Alþingi, og hvarvetna uni landið,
sem hófu alla þá andstöðu, sem
við varð komið, gegn þessu fá-
heyrða níðingsverki á íslenskum
sjómönnum og verkalýð.