Alþýðumaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Alþýðumaðurinn - 30.05.1933, Qupperneq 1

Alþýðumaðurinn - 30.05.1933, Qupperneq 1
I • ' ALÞÝÐUM AÐD RINN III. árg. Akureyri, ■Þriðjudaginn 30. Maí 1933. Síldarvinnu- kaupið. Eins og sést á auglýsingu á ððrum stað hér ■ blaðinu í dag, hafa samn- ingar tekist milli Verklýðsfélags Akur- eyrar og Vinnuveitendafélags Akureyr- ar um kaup við sildarverkun í sumar. — Óskaði Vinnuveitendafélagið eftir að gera samning við Verklýðsfélagið um þessa vinnu, og var því stjórn Verklýðsfélagsins falið á fundi félags- ins 24. þ. m,, að semja fyrir hönd þess við Vinnuveitendafélagið, ef við- unandi samningar næðust. Samþykti fundurinn að stjórnin tæki með sér tvær ráðgefandi konur, sem sérstak- lega væru vanar sildarverkun. Valdi stjórnin þær Olgu Olgeirsdóttur og Indíðnu Daviðsdóttur til þess. Á Föstudagskvöldið var, komu stjórnit nefndra félaga saman til samn- ingagerðar um kaupið við áðurnefnda vinnu, og varð þar að samningum, sem auglýsingin ,um slldarvinnukaupið ber með sér og sem birt er hér í blaðinu. — í fyrra sömdu stjórnir Verkamanna- félagsins og Einingar við síldarsalt- endur um vinnu við síldarsöltun. — Það sem á hefir unnist með samn- ingum Verklýðsfélags Akureyrar nú við Vinnuveitendafélagið, frá samning- um Verkamannafélagsins og Einingar í fyrra, er: 50 aura hækkun á tíma- kaupi karlmanna í helgidagavinnu og 10 aura hækkun í eftirvinnu. Qildir því taxti Verklýðsfélagsins, sem settur var í vetur' við síldarverkun, eins og við aðra vinnu hér í bæ, en í fyrra sömdu síldarsaltendur við félögin um lægri karlmannataxta en gilti við aðra vinnu í bænum. Ennfremur .hefir nú fengist þessi hækkun á kaupi kvenua frá taxtanum í fyrra: Dagvinna kvenna hækkar úr 85 au. á klukkustund upp í 90 aura. Kverk- un og söltun síldar úr 90 aurum á tunnu í 95 aura. — Að kverka og magadraga tunnu síldar úr kr. 1,60 í kr. 1,75, og flokkun síldar, sem eng- inn taxti var um áður, greiðist nú með kr. 0,30 fyrir hverja tunnu, sem flokkuð er. Þegar á það er litið hvernig sljórn- ir kommúnistafélaganna gengu frá samningunum í fyrra við síldarsalt- endur, þar sem vinnulaunin voru á öllum sviðum lækkuð, og sumstaðar stórkostlega mikið frá því sem áður hafði verið, eins og í helgidagavinn- unni, mun óhætt að fullyrða að þeir samningar, sem Verklýðsfélagið hefir nú gert við Vinnuveitendafélagið um síldarvinnukaupið séu vel viðunandi, ekki síst þegar litið er til hins mikla óhugar, sem nú er í útgerðar- mönnum til síldveiðanna í sumar vegna þeirra ókjara, sem norsku samn- ingarnir hljóta að valda þeim og öðr- um, sem síldveiðar ætla að stunda í sumar. — Tunnusmíðinu er nú nær því lokið, og hafa ver- iö smíðaðar rúmar 20 þús. tunnur. Hafa — að meðaltali — verið smíð- aðar 245 tunnur á vakt, eða heldur meira en bæjarstjórn áætlaði í vet- ur. Útkoman á tunnusmíðinu mun veröa góö, og hefði orðið enn betri, ef Verkamannafélagið hefði ekki tafið byrjun verksins um langan tíma, og spilt þannig fyrir verka- mönnum. »Verkam.« á Laugar- 29. tbl. NYJA BIO W Miövikudagskvöld kl. 9: Hundakæti í Gög og Gokke Tal og hljómmynd f 9 þáttum. Aðalhlutverkin leika: STAN LAUREL og OLIVER HARDY. (Litli og Stóri Ameríku- manna). Sprenghlægileg mynd. daginn var með þvætting, um það, að brotnir séu samningar á verka- mönnunum, aí því ekki sé unnið úr öllu tunnuefninu, er búið var að kaupa þegar samningar voru gerðir um verkið í vetur. Það má fræða »Verkam.r um það, að það er búið að vinna úr rneira efni, en þá var búið að kaupa inn, enda er þessi skapvonska ritara »Verkam.«, sem fær þá til aö fara með fjarstæður, sprottinn af því einu, að verkið hef- ir gengið eins vel og »Alþm.« áætl- aði í vetur og bygði tillögur sínar og stuðning við þetta mál á, Þekking- arleysi þessara málskrjóða »Verkam.« lýsir sér bara enn einu sinni í þeirri staðhæfingu þeirra, að vinnan úr úrgangsefninu muni gera útkomuna á tunnusmíðinu óhagstæða fyrir bæj- arstjórn. »Verkam.« skal fræddur um það, að það er alls ekki mein- ingin að viðhafa »Rauðaplans-« vinnubrögð Einars Olgeirssonar og siglfirskra kornmúnista, þegar unnið

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.