Alþýðumaðurinn - 12.06.1933, Page 1
ALÞÝDUMAÐURiNN
III. árg.
Akureyri,
f*riðjudaginn 12. Júní 1933.
32. tbl.
Framboð Alpvðuflokksins á Akureyri.
Stefán Jóh. Stefánsson ritari Alþýðu-
sambandsins, verður í kjöri fyrir
flokksins hönd.
Stjórn Alþýðuflokksins hefir nú, í
samráði við Alþýðuflokksmenn hér,
ákveðið að Stefán Jóhann Stefáns-
son hæstaréttarmálaflutningsmaður
og ritari Alþýðusambandsins, skuli
verða í kjöri hér á Akureyri fyrir
flþkksins hönd við kosningar þær
til alþingis, er fram eiga að fara 16.
Júlí.n. k. Petta hefir staðið til fyrri,
því margir Alþýðuflokksmenn hafa
haft auga á Stefáni, sem þingmanns-
efni Akureyrar. Og þegar nú að
Erlingur Friðjónsson vildi ekki vera
í framboði hér, réðist það þegar að
Stefán kæmi.
Að sinni mun ekki verða rit-
að langt mál um þingmannskosti
Stefáns Jóhanns. Hann er þegar
orðinn þjóðkunnur maður fyrir starf-
semi sína fyrir verkalýðinn og rétt-
sýni í þjóðmálum. Hann mun líka
koma hingað á mæstunni og eiga
tal við kjósendur. Þegar Stefán
fyrir nokkruin árum var í framboði
iiér í sýslunni, kyntust honum marg-
ir, og hinir mörgu æskuvinir hans
hér um slóðir munu fagna því að
mega fá hann til samstarfs í þjóð-
málum. Þegar Stefán, þá ungur
stjórnmálamaður, var í framboði f
sýslunni, létu ýmsir af hinum eldri
mönnum svo um mælt, að þeir hefðu
ekki kynst álitlegra þingmannsefni,
síðan þeirSkúli heitinn Thoroddsen
og Hannes Hafstein sóttu hingað.
Var þetta jafnt mál andstæðinga
Stefáns sem fylgismanna. Má nokk-
uð af þessu marka hvað er í mann-
inn spunnið.
Stefán Jóhann Stefánsson hefir
ýms trúnaðarstörf á hendi fyrir Al-
þýðuflokkinn og Alþýðusambandið.
Hann hefir verið ritari sambandsins
í mörg ár og fengið þannig ágæta
þekkingu á högum verkalýðsins í
landinu. Líka tekur hann virkan þátt
í starfi verkalýðsins í höfuðstaðn-
um;- er fullrtúi hans í bæjarstjórn og
bæjarráði. og sem málaflutnings-
maður er hann athvarf þeirra, sem
minna mega sín, þótt það gefi
minni tekjur en málafærslan fyrir
stórlaxana-
Annars mun »Alþm.« láta Stefán
tala fyrir sig sjálfan hér. Hann þarf
eingrar hjálpar við á þeim vett-
vangi.
Um það eru ekki skiftar skoð-
anir, að Alþýðuflokkurinn á að eiga
þingmannssætið hér. Aftur á móti
verður hvergi unnið meira til að svo
verði ekki. Sameirtað íhald ogkomm-
únistar munu einkis láta ófrestað til
uð ná sætinu handa íhaldinu. Því
ber verkafólki þessa bæjar að hefja
nú þegar öfluga sókn fyrir fulltrúa
sinn og láta féndur alþýðusamtak-
anna finna það glögglega að hér
eru menn þéttir á velli og þéttir í
lund.
« NYJA BIO BBB
Miðvikudagskvöld kl. 9.
Ástin sigrar.
Tal- og söngvamynd í 8 þáttum.
Aðalhlutverkin leika og syngja:
Grace Moore og
Lawrence Tlbbet.
Hrífandi fagurt rússneskt ástar-o
æfintýri með eldheitum ástríð-
um.
Ríkislögreglan.
Þá hefir auðvaldið á íslandi fengið
hinn langþráða draum sinn uppfyltan,
að fá ríkislögreglu til að beita fyrir
sig í baráttunni gegn verkalýðnum.
Kommúnistar komu því til hjálpar og
höguðu sér svo fíflslega, að þeir þing-
menn, sem áður hafa ekki viljað sinna
beiðni burgeisanna um hervernd, létu
nú undan síga og tramkvæmdu þessa
óhæfu, sem leiða mun til meira þjóð-
arböls eti núverandi kynslóð hefir af
að segja, ef ekki er tekið með nauð-
synlegri festu og stAlingu á þessum
málum. Verður síðar í þessari grein
vikið að þeim ráðum, er almenningur
hefir yfir að ráða, til að draga úr
þessum ófagnaði, eða afnema hann
með öllu, en vegna árásar kommúnista
á Alþýðufl. í sambandi við þetta mál,
verður fyrst getið gangs þess á þingi.
Ríkisstjórnin lagði frumvarpið fyrir