Alþýðumaðurinn - 24.06.1933, Síða 3
AJ>ÝЫfclA£n»»W
3
Frá Siglufirði.
Undanfarið hefir staðið í þófi milli
sljórnar ríkisverksmiðjunnar á Siglufirði
og Verkamannafélagsins þar um kaup-
gjald og vinnutilhögun við verksmið-
juna í sumar. Var vinnu hætt á verk-
smiðjunni um tíma vegna þessa. Ekki
bar þó eiginlega á milli um kauphæð-
ina yfirieitt því verkamennirnir fá eins
mikið, þó þeir gangi að tilboði ríkis-
verksmiðjunnar, og þó farið sé eftir
taxta verkamannafélagsins. Aðalslagur-
inn hefir staðið uiu það hvað Sunnu-
dagshelgin á að teljast löng. Verka-
mannafélagið ákvað hana 36 stundir,
en verksmiðjustjórnin vildi fá hana
ofan í 24 stundir. Bar því fyrir að
með þvi væri hægt að bræða 11 —12
hundruð málum meira af síld á viku,
en það þýddi aukna sölu sjómanna
til verksmiðjunnar og meiri umsetn-
ingu verksmiðjunnar en ella,
Á fundi Verkamfél. í síðustu viku var
samþykt að ganga að tilboði verk-
smiðjunnar, en ekki með nægilegum
. meirihl. til þess að það væri löglegt. Á
Sunnudaginn gengu 48 menn úr
verkamannafélaginu (39 algengir verka-
menn og 9, sem stunda aðra atvinnu).
Upp úr helginni sömdu svo verka-
mennirnir við verksmiðjustjórnina og
byrjaði undirbúningsvinna með 25
manns nú í vikunni. Stjórn verkam,-
félagsins lýsti verksmiðjuna í bann og
alla sem þar ynnu, en ekki var gerð
tilraun til að stöðva vinnuna. — Á
þriðjudagskvöldið boðaði stjórnin til
fundar í verkam.fél., en svo fáir komU'
að ekki varð fundarfært. í gærkvöld.
var svo haldinn fundur (fámennur þój
•þar sem samþykkt var með 50 atkv_
að veita stjórninni heimild til að
stöðva vinnu í verksmiðjunni eftir 27.
þ.m., ef hún sæi ástæðu til þess og sæ,-
sér fært. Út af því sem »Verkam.« skýrir
frá í dag, að í samningum verksmiðju-
stjórnarinnar við verkamenn sé fram
tekið, að tryggingin um tveggja mán-
aða vinnu falli niður, ef verkamenn-
irnir leggi niður vinnu, skal það tekið
fram, að þetta skolast í blaðinu. —
Tryggingin fellur niður ef vinna er
stöövuð með valdi.
Einhver umleitun hefir verið í sum-
um síldarsaltendum vestur þar um að
Tilkynning.
Vegna vinnu við rafveitukerfið verður lokað fyrir rafmagn frá kl.
12 míðnætt/s til kl. 6 f.h. dagana 25. Júní til 2. Júlí.
Akureyri, 23. Júlí 1933.
Rafveita Akureyrar.
fá kaup við síldarverkun lækkað í
sumar, en talið er að það mál sé
fallið niður.
Olgan í Þýskalandi.
Þótt útvarpið flytji daglega mjög
svo friðsamlegar fréttir frá Þýskalandi,
er langt frá að þar sé alt með kyrr-
um kjörum. Atvinnuleysi, neyð og
hungur, fer vaxandi meðal almennings.
Ofsóknaræðí stjórnarinnar gerir og sitt,
til að blása að byltingarbálinu, sem
óumflýjanlega hlýtur að brjótast út í
íandinu innan skamms. Nýskeð hefir
stjórnin bannað skátaregluna og tekið
undir sig eignir hennar. Líka hefir
alþjóðasamband katólskra manna verið
bannað og foringjar þess ofsóttir.
Nýlega hélt þetta samband þing í
Munchen, og þóttist örugt um frið,
því von Papen, einn af stórlöxum
stjórnarinnar var einn af fundarboð-
endum og viðstaddur þingið. En
Nasistarnir hleyptu upp þinginu, börðu
þingmenn og hrjáðu, svo hætta varð
við fundahöld, Óeirðir og smá bar-
dagar eru daglegir viðburðir í flestum
borgum, og lögreglan ræður víða
ekki við neitt. Megn óánægja er upp
komin meðal verkamanna í Nasista-
flokknum, yfir svikum stjórnarinnar
og böðulshætti. Magnast sú óánægja
með degi hverjum og breiðist út.
Jafnaðarmannablað er farið að koma
út í þýsku fylki, sem stendur undir
yfirráðum og vernd Frakka. Er því
dreift út um alt Pýskaland, þrátt fyrir
bann stjórnarinnar. Standa jafnaðar-
mannaflokkurinn þýski og hollenski
að þessu blaði. Hvert stefnir í raun
og veru . í þýskalandi, sést á eftirfar-
andí atburði, er erlend blöð segja frái
Laugardaginn 27. Maí kl. 10 um
morguninn lagði mikill hópur storm-
sveitarmanna í fylgd með mörgum
C f) -bilar besiir.
° Sími 260
öðrúm intt í verslunarmiðbik Hannov-
er, og þar réðust þeir á öll stærstu
vöruhúsin og rændu þau. Lögreglan
var þegar kvödd á vettvang, en nas-
istafjö'dinn réðist á lögregluna og
barði 'nana á flótta. I.ögreglan kallaði
þá á liðstyrk, en hann var einnig rek-
inn á flótta af fyrverandi liðsmönnum
Hitlers.
En nú var en aukið við lögreglu-
liðið, og lögreglustjórinn, sem er nas-
isti, átti langt samtal við Hitler. —
Eftir klukkustundar bardaga voru hinir
huugruðu og sviknu óbreyttu nasistar
kúgaðir.
Nú hafa stormsveitirnar þýsku verið
bannaðar og fjöldi uppreistarnasista
hneptir t fangelsi Sitja nú saman
í fangaherbúðunum jafnaðarmenn,
kommúnistar og nasistar, og bíða eftir
þeirri stund að alþýðan í Þýskalandi
steypi Hitler og blóðhundum hans af
stóli og opni fangaherbúðirnar, svo
þeir geti tekið þátt í baráttuuni fyrir
frelsi þjóðarinnar; frelsi sem hún glat-
aði í stundaræsingu, en alþýðati sér
nú að verið hefir hið mesta óheilla-
spor er þjóðin hefir stigið.
Hljómlistarkvöld Sigfúsar Einars-
sonar fjölskyldunnar á Fimtudaginn var
vel sótt, og •hrifni áheyrenda mikil.
Skemtunin verður endurtekin á morgun.
Frambjóðendurnir í Eyjafjarðarsýálu
hafa ákveðið tvo fyrstu fundina. í
þinghúsi Hrafnagilshrepps Mánudaginn
3. Júlí, og í þinghúsi Glæsibæjar-
hrepps Priðjudaginn 4. Júlí. — Báðir
byrja fundirnir kl. 12 á hád.
Mjög sækir fólk til bæjarin9 land-
leiðina þessa dagana, bæði að austan
og vestan, þó einkum úr Reykjavík.
Ganga margir bilar daglega milli Ak-
ureyrar og Reykjavíkur, auk föstu bíl-
anna.