Alþýðumaðurinn

Tölublað

Alþýðumaðurinn - 04.07.1933, Blaðsíða 1

Alþýðumaðurinn - 04.07.1933, Blaðsíða 1
ALÞYÐUMAÐURINN III. árg. Akureyri, t*riðjudaginn 4. Júlí 1933. 37. tb (N.ðurl). Þegar »Novu«-uppþotsmennirnir gátu ekki svift verkamenn bæjar- ins vetraratvinnunni, sem tunnu- smíðið veitti, snérist áhugi þeirra að því að leggja drög fyrir að vinnan í verksmiðjunni yrði fram- kvæmd svo, að sem verst útkoma yrði á rekstri hennar. Fyrst ætlaði stjórn Verkamannafélagsins að troða að tunnusmíðinu allskonar lýð, sem húii hafði keypt til fylgis við sig í uppþotinu með því að lofa honum vinnu við tunnusmíðið, þegan hún væri búin að »sigra* í deilunni!! Hafði Steingrímur Aðalsteinsson langan nafnalista loforðamanna upp á vasann, þegar mönnum var rað- að niður í vinnuna. Næsti leikur var sá, að uppþotsmennirnir ætl- uðust til að í verksmiðjunni yrðu viðhöfð »rauðaplans«-vinnubrögð Einars Olgeirssonar, svo bærinn tapaði stórkostlega á smíðinu. — Þetta tókst ekki, frekar en að koma uppþotskaupamönnum Steingríms að smíðinu, þessvegna varð útkom- an sæmileg, en ekki varð þess vart, að hið nánasta lið verka- mannafélagsstjórnarinnar hefði hinn minnsta áhuga fyrir að verkið gengi veh og bar jafnvel á ánægju hjá því ef eitthvað gekk lakar einn daginn en annan. Því hefir löngum verið haldið réttilega fram, að hér þurfi að rísa upp iðnaður að vetrinum, til hag- nýtingar fyrir verkalýðinn, sem ann- ars verður að ganga iðjulaus lang- an tíma úr árinu. Það sýnist því svo að allir hefðu átt að taka því vel, að bæjarstjórnin efndi til iðn- aðar, sem gæfi um 24 þús. króna tekjur í bæinn yfir þann tíma sem ekkert var að gera- En kommún- istarnir og fólk, sem þeir höfðu æst upþ í uppþotinu, virtist annarar skoðunar. Það var alltítt að heyra það frá þessu fólki, að það óskaði þess að bærinn »slórskaðaðist* á tunnusmíðinu. Sumir þeirra »sfétt- vísu« kölluðu verksmiðjuna »þræl- dómsgreni*. Einn óskaði eftir að verksmiðjan »brynni upp með öllu heila, helvítis draslinu*, og þessu líkur var hugur »verklýðsvinanna« til þessa fyrirtækis. — Þegar svo að sýnt var að smíðið gekk svo vel að fyllilega svaraði til áætlunar bæjarstjórnar, fór uppþotsliðið að spá því og óska þess, að útlendar tunnur féllu svo í verði, að bæjar- tunnurnar seldust ekki fyrir kostn- aðarverð. Hér hefir verið farið nokkuð inn á þennan þátt tunnusmíðamálsins, því hann sýnir þann hugsunarhátt sem kommúnistar eru að troða inn í fólkið, og hefir þegar tekist meðal þeirra »stéttvísustu«, og hann er sá að svíkjast um við vinnu og vinna illa, svo fyrirtæki þau, sem rekin eru, fari í hundana. Þessi verklýðs- málapólitík var rekin út í æsar á »rauða planinu* hjá Einari Olgeirs- syni. Útkoman er líka fræg orðin. En stefna hans og lærisveina hans er sú, að gera allar vinnustöðvar í Iandinu að stöðum, þar sem »sellu«- fundir, »baráttuliðs«-samkomur og »samfylkingar«-ráðstefnur eru haldn- ar í vinnulímanum, en ekkert unniti. Þetta tókst e -cki í tunuuverksmiðj- unni, og tei st ekk i á vinnustöðv- mm nyja bio H Þriöjudagskvöld kl. 9; Lolt-fimieikaniaðurinn f*ögul kvikmynd í 9 þáttum. Aðalhlutverkin leika: Pau/ Richter og Ciarie Rommer, Mjög skemmtileg mynd úr heimi fjölleikara, með ákaflega spennandi fimleikasýningum og fallegu ástaræfintýri. Miðvikudagskvöld k/. 9 : FUJSTDTJR verður haldinn í Verklýösfélagi Akureyrar Miðvikudaginn 5. Júlí 1933, kl. 8,30 e. h. í bæjarstjórnar- salnum. DAGSKRÁ: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Erindi frá Aljjýðusambandinu. 3. Stefán Jóh. Stefánsson segir frá framkvæmdum jafnaðar- manna í bæjum erlendis. Fastlega skorað á félagsmenn að mæta vel og stundvíslega. Akureyri 4. Júlí 1933. Stjórnin. um yfirleitt, því íslenskt verkafólk er yfirleitt vinnugefið og samvisku- samt. En ekki má loka augunum fyrir þeirri spi'lingu, sem kommún-

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.