Alþýðumaðurinn - 15.07.1933, Side 3
hagur Guðm. Skarph. sökum frá-
bærrar greiðasemi og hjálpfýsi
hans við alþýðu alla.
Það er öllum vitað, sem þekkja
til baráttuaðferða kommúnista, að
þeir gera samfylkingu með íhaldinu
í árásunum á Alþýðuflokkinn og
einstaka forystumenn hans. Ein af
svívirðilegustu árásunum, sem frá
íhaldinu hefir komið í þessum efn-
um, var níð Sveins Benediktssonar
og annara íhaldsmanna, um hinn
vinsæla og ágæta verklýðsforingja,
Guðm. Skarph,, er hann stjórnaði
sigursælli kaupbaráttu Siglfirsks
verkalýðs. Níði þessu var haldið
á lofti, bæði meðan hann var lif-
andi og eins eftir að hann var lát-
inn. En svo mikil var andúð allr-
ar alþýðu gegn rógsaðferðinni á
hendur Guðm. Skarph,, að íhalds-
menn þögnuðu, og þeir skárstu
þeirra skömmuðust sín.
En þá tekur frambjóðandi kpm-
múnista hér í bænum, Einar Olg,,
við. Hann seilist svo langt, að
týna upp gamlar rógssögur, sem í-
haldið sá sér ekki fært að nota
lengur, og haíði varla geð til þess.
En vissulega bendir þessi baráttu-
aðferð E. O. ekki á góðan málstað
né gnægð raka. Minnir það átakan-
lega á orð Gissurar hvíía, er hann
mælti þegar hann sá Gunnar á
Hlíðarenda seilast út á skálavegg-
inn eftir ör á boga sinn: Eigi vœri
út leitað viðfanga, ef ,,gnógt vœri
inni fyrir■ ' St. J. St.
Allir að kjósa.
Mesta efirlæti og styrkur andstöðu-
flokka alþýðunnar er það, að alþýðu-
menn og konur sitji heima á kjör-
degi og kjósi ekki. Þeir vita, að
hvert atkvæði, sem alþýðuflokkurinn
missir á þann hátt, er sama sem
gefið andstöðuflokkunum.
Það má því enginn alþýðukjós-
andi, karl eða kona, sitja heima á
kjördegi. Heldur öll ú kjörstað.
Kjósið frambjóðanda. Alþýðu-
ilokksins;
Stefán Jóh. Stefánsson.
í
W&SiC-CLÍAW i '
alÞýðumaðurinn 3
sj fe
5 mfflqnfi Iygih.
Fyrir síðustu kosningar dreifðu
kommúnistar út þeirri iygi meðal
kjósenda, að Alþýðuflokksþing-
mennirnir hefðu greitt atkvæði á
þingi 1928, með tollhækkun sem
numið hefði 5 miljónum, á fatnaði,
álnavöru og ýmsum öðrum nauð-
synjavörum almennings. — Einar
Olgeirsson var með sömu lygi á
framboðsfundjnum síðast, sem Stef-
án Jóhann rak ofan í hann all-
eftirminnilega, meö því að benda á
að Alþýðuflokksþingmennirnir hefðu
einmitt á því þingi, 1928, fengið
kaffi- og sykurtollinn lækkaðan
geysilega mikið. Búast má við að
kommúnistarnir vekji upp aftur
þessa lygi sína nú fyrir kosning-
ingarnar og skulu kjósendur þá
minntir á að sú tollhækkun, sem
þingmenn Alþýðuflokksins voru
með 1928, var á verðtolli á glys-
varningi, gullúrum og öðru stássi
hátekjumannanna, grammofónum
og plötum, sem Aðalbjörn á Siglur
firði og Jón Guðmann selja, og í
staðinn fyrir þessa hækkun verð-
tolls á söluvarningi Aðaibjarnar og
Guðmans, fékkst lækkun kaffi- og
sykurtollsins. Kemur hér enn í ljós
umhyggja!! kommúnistanna fyrir
velferð alþýðu, er þeir tíma ekki
að óþarfavarningur sá, sem gæð-
ingar þeirra troða út í fólkið, sé
tollaður og nokkrar hömlur á sölu
hans lagðar á þann hátt, og kjósa
heldur að kaffi og sykur, sern fá-
tækasta fólkið notar mest allra út-
lendra vara, sé tollað með óheyri-
lega háum tollum.
Stillendur Einars.
Pegar kommúnistar voru búnir
að leggja inn framboð Einars Ol-
geirssonar, báru þeir þá sögu út
um bæinn, að framboðinu hefði
fylgt undirskrift 265 kjósenda í
bænum. Átti þetta að sýna hið
•geysilega fylgi* Einars. Við nán-
ari athugun voru stillendurnir samt
ekki nema 214 og 13 af þeim eru
ekki á kjörskrá, tveir í útlöndum,
og svo er enn slaeðingur af mönn-
um, sem neita að þeir hafi skrifað
npp á hjá smölum Einars, þótt
nafn þeirra standi á stillendalista
alÞyðumaðurinn
Gefinn út af Alþýðuflokks-
möiinum.
Kemur út á hverjum Priðjudegi;
Áskriftargjald kr. 5,00.
Ábyrgðarmaður:
ERLINGUR FRIÐJÓNSSON.
Símar: 214 og 306.
Afgreiðslumaður:
HALLDÓR FRIÐJÓNSSON.
Sími 110.
PrentsmiÖja Björns Jónssonar,
S_______________________________r1
B. S. A. — Sími 9.
hans, fyrir utan það að vissa er
fyrir að ekki nærri því allir, sem
þarna eru eftir, kjósa Einar á kjör-
degi. Pað lítur út fyrir að það verði
tilfinnanlegur frádráttur frá þessum
upphaflegu 268, sem einu sinni
áttu að standa að framboði Einars.
Bomburnar.
íhaldið og kommúnistar finna
altaf upp einhverjar lygar um Al-
þýðuflokkinn og fulltrúa hans, og
dreifa þeim út kosningadagana. —
Petta kalla þessir sameiginlegu
alþýðuféndur kosninga-»bombur«.
Búast má við töluverðu af þessu
núna, þar sem báðir þessir flokkar
eru nú í sérstakri þörf fyrir að geta
slegið sér upp. En kjósendur ættu
að vera orðnir þessu svo vanir að
þeir sjái í gegnum svikavefinn og
lofi »bombunum« að springa á höfði
feðra þeirra. Fer þá eins og á að
vera. —
í gær voru af bæjarfógeta gefin
saman í bjónaband ungfrú Ingibjörg
Benjamínsdóttir og Benedikt J. Ól-
afsson málari.
fí C f) ■bílar bestir.
ID.O.W. Sími 260