Alþýðumaðurinn

Issue

Alþýðumaðurinn - 15.07.1933, Page 4

Alþýðumaðurinn - 15.07.1933, Page 4
alÞýðumaðurinn Stúlkur þær á Akureyri og í nágrenninu, sem ráðnar eru í síldavinnu hjá LUDVIG MÖLLER í Hrísey, eru beðnar að koma til Hrís- eyjar hið fyrsta úr helginni. Upplýsingar um skipaferðir ti Hríseyjar gefur MARIA JÓHANNSDÓTTIR, Strandgötu 45.— 4 Utvarpið. Faatir liflir dígskrárinnar eru: yeðurfregnir á virkum dðgum kl. 16, 16 og 19.30, og á helgum dögum kl. 11,15 og 19,30. — Hádegisútvarp kl. 12,15. — Hfjómleikar og tilkynningar kl. 19,40 — Ftéltir kl. 21. — DansRSg frá kl. 22-24 á Laugardags- og Sunnudagskvöldum. Breytingar tilkyntar sérstaklega. Sunnudaginn 16. Júlí: Kl. 10 Messa í Fríkirkjunni Á. S. — 15,30 Miðdegisútvarp. — 20 Grammofónhljómleikar. — 20,30 Erindi, Ársæll Árnason. — 21,30 Grammofónhljómleikar. Mánudaginn 17. Júlí: Kl. 20 Alþyðulög. — 20,30 Upplestur. — 21,30 Hljómleikar. Þriöjudaginn 18. Júlí: Kl. 20 Piano-sóló, Emil Th. — 20,30 Óákveðið. — 21,30 Hljómleikar. Fyrir síldarsöltunina. Síldarkjólar, Síldarpils, tvöföld, Síldarsvuntur, Síldarstakkar, Gummíhanskar, Strigavetlingar. Versl. Eiríks Kristjánss. Kventaska fundin. Gunnar Jónsson. Lárus Lárusson, gjaldkeri raf- veitunnar í Reykjavík,| kom hingað með f jölskyldu sinni — 11 manns — á Mánudagskvöldið Þegar hann var nýkominn inn á gistihúsið Gullfoss, íékk hann slag, og var látinn á samri stundu, Prentsmiðja Björns lónssonar Einar Olgeirsson neitar að greiða þrjár krónur í Ellistyrktar- sjóð fátækra gamal- menna. Eftir að grsinin »Vinur öreiganna* var rituð hefir blaðið fengið að vita að tekjuskattur sá, sem Einari Ol- geirssyni bar að greiða árið 1931, var kr. 412,50 eða af hér um bil 10,000 kr. nettótekjum og aukþess Ellistyrktarsjóðsgjald kr. 3,00~ — Neitaöi Einar Olgeirsson einnig að greiða ellistyrktarsjóðsgjaldið kr. 3,00 og varð að fella það niður ásamt tekjuskattinum eftir árangurs- laust fjárnám. Er þetta tekið upp samkvæmt skattskýrslu árið 1931. Eins og almenningi er kunnugt, rennur ellistyrktarsjóðsgjaldið í Ellistyrktarsjóð, en úr þeim sjóði njóta styrks ellihrum gamalmenni um allt land. Hér á Akureyri njóta styrks úr sjóði þessum árlega um 150 gamalmenni, og er styrkur þessi greiddur út í sláturtíðinni og mun margt af því ellihruma fólki, sem þessa styrks nýtur, ekki hafa annað fé til þess að kaupa fyrir haustmat, en þá litlu upphæð, sem þeim er veitt úr sjóðnum. Allir menn á landinu, karlar og konur, frá 16 ára aldri og upp að sextugu, greiða lögákveðið gjaid í Ellistyrktarsjóð, aðrir en Einar 01- geirsson, sem tímir ekki að sjú af þessum kr- 3,00 órlega til fátœkra gamalmenna og tekur því upp sið stórbraskara nútímans, að láta kon- una eignast allt, sem hanninnvinn- ur eða eignast á annan hátt, svo hœgt sé að svikja um krónurnar í Ellistyrktarsjóðinn. Ef aðrir menn í landinu höguðu sér eins og Einar Olgeirsson, svikj- ust um að greiða hið lögákveðna gjald í Ellistyrktarsjóð, en það for- dæmi er Einar Olgeirsson að skapa með framferði sínu, nytu hin elli- hrumu gamalmenni ekki lengur gleðinnar af krónum, sem þeim eru veittar úr Ellistyrktarsjóðnum á haustnóttum, þegar veturinn er framundan með kuldann og at- vinnuleysið. En sem betur fer mun enginn vilja stíga í hin óhreinu spor Einars í þessum efnum. Svíviríingar kommnnlsta nm Erllng Friðjónsson. Kommúnistarnir hatast við allan verka- lýð, sem fer fram með skynsemi í störfum, en þeir þora ekki að skamma hann beinlínis. Reir svivirða því þá menn, sem standa fremst með verka- lýðnum, og þykjast aumka þá, sem þeir verklýðsforingjarnir, hafi »vélað« til fylgis við sig. Einar Olgeirsson og alt hans nán- asta lið ber á Eriing Friðjónsson allar þær svivirðingar, sem heift þess og fúlmenska á ráð á, af því liann stendur fremstur í að halda verklýðsmálumum á vettvangi heilbrigðrar skynsemi, sann- girni og drengskapar. En gætið þess vel, félagar í Verk- lýðsfélagi Akureyrar, að árásirnar á Erling, eru árásir á ykkur. Regar E. F. er kallaður verklýðssvikari eru félagar hans i Verkl.fél, Ak. Iíka kall- aðir það. Regar hann er kallaður klofn- ingsmaður, eruð þið líka kallaðir það. Svívirðingarnar, sem kommúnist- arnir eru með eru á allan hyggnari verkalýð á Akureyri Hefnið fyrir þetta athæfi, með því að fjölmenna á kjörstaðinn á morgun og kjósa fulltrúa Alþýðuflokksins! Ábyrgðarmaður: Erlingur Friöjónsson,

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.