Alþýðumaðurinn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Alþýðumaðurinn - 01.08.1933, Qupperneq 1

Alþýðumaðurinn - 01.08.1933, Qupperneq 1
w ALÞYÐUMAÐDRINN III. árg. Akureyri, I’riðjudaginn 1. Ágúst 1933. 43 tbl. »Verkam.« kannast við, að sainn- ingur »Einingar«-taxtans, fras Einars Olgeirssonar uin styrk- leika »samfylkingarinnar«, allt skraf »Verkain.« um kaupmál verkalyðsins, og loforð E. 0. íyrir kosningarnar um aðstoð við vinnustöðvanir á síldarstöðv'- unurn, liafi verið og sé látalæti ein og blekkingar. Pað verður ekki með réttu saét um blað flórmokaradeildar íhalds- ins hér á staðnum, »Verkamann- inn*, að oft ratist kjöftugum satt á munn, því slik fyrirbrigði eru mjög fátíð á því búi. En á Laug- ardaginn brá mjög áberandi út af þeirri meginreglu blaðsins, að fara aldrei með rétt mál, því þar er full- komin játning blaðsins. og um leið Kommúnistaflokksins, fyrir því, að allt starf flokksins og einstakra meðlima hans sé loddaraleikur einn og fals. Framið og viðhaldið til þess eins að ganga erinda auð- valdsins í verklýðsfélögunum. í síðasta blaði Alþýðumannsins var flett óvægilega ofan af loforða- og svikapólitík Einars Olgeirssonar og samherja hans, Undan þessari réttlátu hirtingu svíður þeim Guð- manni og Steingrími svo, að þeir — mitt í þrengingum sínum — glapra því upp úr sér, að þeir, kommúnistarnir, geti ekki fram- kvœmt neitt af því, sem þeir þykj- ast vilja gera fyrir verkaiýðinn. Með þessu er sagt hvorki meira né minna en það, að allt skraf og skrif kommúnistanna sé fais og blekkingar. Þeir segja við verka- lýðinn: Kommúnistaflokkur íslands getur allt og gerir allt fyrir ykkur. I krafti þessara slagorða, eggja þeir verkalýðinn fram til allskonar heimskuverka, lofa honum gulli og grænum skógum, og svívirða alla þá, sem ekki vilja gerast þátttak- endur í þessum loddaraleik. En við skulum aðeins líta á það sem næst liggur, og skoða það í Ijósi þessarar játningar Verkamanns- ins um getuleysi kommúnistanna. Með þessa vissu setti »Eining« taxta sinn í vor. Vitandi þetta lofaði Einar Ol- geirsson að síldarstúlkurnar skyldu fá greitt við síldina eftir þessum taxta. — Játandi þetta eggjar »Verkam.« til hins og annars, sem enginn vegur er til að koma í framkvæmd í því sniði, er kommúnistar draga það fram í dagsljósið. Hygnir menn sníða kröfur sínar með tilliti til möguleikanna, til að fá þeim framgengt. Heiðarlegir menn lofa ekki öðru en því sem þeir geta efnt. Pað eru varmenn- in og angurgaparnir, sem haga sér eins og E. O. og hans nótar. Kaupgjaldsmál verkakvennanna hér í bæ voru komin í hundana, vegna aðgerða kommúnista. Kaup karlmanna við síldarvinnu hafði einnig lækkað fyrir klaufaskap sömu manna. Verklýðsfélag Akureyrar tók sér fyrir hendur að koma þessu á rekspöl til lagfæringar. Petta tókst að all verulegu ieyti þegar á þessu ári. Verklýðsfélagið lofaði engu, en það vann og varð ágengt. Það var og er eina rétta leiðin til þess endanlega sigurs, sem stefnt er að. mm NYJA BIO Hi Miðvikudagskvöld kl. 9. Brosandi litÉntinn. Tal- og söngvamynd í 10 þáttum. Aðalhlutverkin leika: Maurice Chevalier og Claudette Colbert. Músík eftir Oscar Strauss. Framúrskarandi skemmtileg mjmd, sem hvarvetna hefir hlotið ágætis viðtökur. Petta er nú mergurinn málsins, sem um er rætt. Hitt ber einnig að athuga, sem á parti er aukaat- riði, að fyrnefnd játning »Verkam.« flettir miskunarlaust og öllum á ó- vart ofan af svikastarfsemi komm- únistanna. Hún sýnir ekki einungis að Einar Olgeirsson er ómenni vægast sagt, heldur og það að kommúnistarnir setja kauptaxta, sem þeir œtla ckki að framkvœma. Að þeir eggi sjómenn til samtaka, er þeir ætlast ekki til að verði mynd- uð. Að þeir falsa fyrir almenningi þá einustu stefnu sína í verklýðs- málum, sem reynslan altaf leiðir í ljós — þá að eyðileggja samtök verkalýðsins og alla möguleika til sjálfsb/argar. Væri þetta ekki stefnan, mundu kommúnistarnir ganga sömu leiðir og jafnaðarmenn. Þeir mundu ekki setja kauptaxta, sem þeir vildu ekki og reyndu ekki til að koma f fram- kvæmd. Þeir mundu efna til sam-

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.