Alþýðumaðurinn

Tölublað

Alþýðumaðurinn - 26.09.1933, Blaðsíða 1

Alþýðumaðurinn - 26.09.1933, Blaðsíða 1
Frá Menntaskðlanm Inntökupróf til fyrsta bekkjar hefst Laugardag- inn 30. September, kl. 10 árdegis.. Þeir, er prófið vilja þreyta, verða að skila skírnarvottorðum og greiða lögboðið prófgjald. Skólameistari. Það er engin tilviljun, að þegar almenningur sýnir vit og vilja til að hrinda af sér einhverjum ósóma, rísa upp öfl, sem skapast og þróast meðal hinna svokölluðu »æðri stétta« þjóðfélagsins, og beita öllum þeim ráðum, sem mannvonska, slægð og uppvöðsluháttur hafa yfir að ráða, til þess að varna því að þjóðirnar komist á hærra þroskastig, en þær áður voru. Hinar svokölluðu »æðri stéttir* þjóðfélaganna, hafa frá alda öðli ekki flotið á öðru en niðurlæg- ingu fjöldans. Það var því engin tilviljun, að þegar almenningur á íslandi ákvað að hrista af sér áfengisósómann, snéru áfengisbruggarar og áfengis- salar sér til manna í »æðri stétt* og fengu þá til að hefja baráttu móti almenningi í þessu mesta mann- bótamáli, sem þjóðin hefir haft með höndum fyr og síðar. Og eðlileg afleiðing af þessu var það líka, að »mennlamenn« í höfuðstað lands- ins gengu í félag til að hjálpa vín- bruggurum og vínsölum til að brjóta þetta fyrirtæki almennings á bak aftur. Það er heldur engin tilviljun að það voru hinir »æðric menn, sem sviku þjóðina í tryggðum, þegar átti að framkvæma bannlögin. Lög- reglustjórar landsins og landstjóra snérist á sveif með vínbruggurun- um og gættu i' engu skyldu sinnar, sem trúnaðarmenn þjóðarinnar. Og það er heldur engin tilviljun að það voru málgögn yíirstéttanna á íslandi, sem heimtuðú Spánar-undanþáguna á sínum tíma, og nú afnám banns- ins, og haía starfandi í þjónustu sinni aðal-stjörnu heilbrigðismála- liðsins í landinu. Þetta allt er eðlileg afleiðing af siðspillingu og samviskulej-si hinna »ærði stétta« í nútíma þjóðfélagi. Mörgum mun koma það einkenni- lega fyrir sjónir, að í hvert skipti og almenningur hefir baráttu fyrir nýturn þjóðfélagsmálum, skuli hann þurfa að berjast hörðustu baráttunni gegn yfirstéttunum, sem ættu að hafa best skilyrði til að berjast í fylking- arbrjósi fyrir framgangi þjóðþrifa- málanna, En svona hefir það verið — og er. bað er nauðsynlegt að almenn- ingur geri sér fulla grein fyrir þess- nm staðreyndum í hvert skifti sem kemur til alvarlegra átaka út af mannbótamálum þjóðarinnar. Hann NYJA B 5 O Þriðjudags- og Miðvikudagskvöld kl. 9. TARZAN Heimsfræg frumskóga-talmynd í 10 þáttum. Aðalhlutverkið leikur Jbonny Weismuller, heimsmeistari í sundi. Mynd þessi er listaverk, sem varla á sinn líka —• ótrúleg að efni og furðuleg, hvað snertir alla- ytri umgerð. verður að rekja orsakirnar til þess ólags, sem er á siðferðismálum al- mennings, og sækja þá til sakar, sem valdir eru að spillingunni. í næsta mánuði — fyrsta vetrar- dag — á þjóðin að segja til um það, með almennri atkvæðagieiðslu, hvort hún á að gefa upp að fullu og öilu baráttuna gegn vínbruggurum og vínsölum, sem hún heíir staðið í undanfarið, eða að reka þá af hönd- um sér, eins og hún hefir ráð á í bili. — Áður en kjósendur ganga að kjörborðinu, verða þeir að gera sér ljóst: Fyrst það hverjir eiga sök á ástandinu eins og það er. Annað, hvað ástandið muni breytast við algert afnám áfengisbannlag- anna. Þriðja, hrerjar verða næstu kröfur vínbruggara, ef enn er und- an þeim látið.

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.