Alþýðumaðurinn

Eksemplar

Alþýðumaðurinn - 10.10.1933, Side 1

Alþýðumaðurinn - 10.10.1933, Side 1
Hvers parí íslenska pjól með á pessnm tímum ? Væri þessi, eða þessu lík spurn- ing, borin upp fyrir þjóðina um þessar mundir, mundu svörin verða margskonar. Margir mundu svara því, að þjóðin þarfnaðist meira veltu- fjár. Fjár til að byggja brýr og vegi, kaupa skip, rækta jörðina, reisa verksmiðjur, byggja yfir þjóðina o. s. frv. — Aðrir mundu segja að þjóðin þarfnaðist aukinnar mentunar, meiri andlegs þroska og fágunar í orði og æði. Enn aðrir mundu óska þjóðinni meira göfgis, aukins trúarlífs og bjartsýnis í andlegum efnum. Líka mundu margir óska að þjóð- in hefði við jafnari kjör að búa en nú er. Atvinna væri næg fyrir al- þýðu og fátqektinni yrði útrýmt. Og enn mundu ýmsir óska þess að þjóðin væri hraustari en húr. er, hugrakkari og lífsglaðari. Enginn myndi óska þess, sem mið- ur mætti fara, eða telja þjóðina barfnast þess, sem hún hefir ekkert gagn af eða er henni til bðlvunar. Stjórnmálaflokkarnir keppa hver við annan að sannfæra þjóðina um það, að hver flokkurinn, sem orðið hefir í það og það skiptið, vilji gera a 11 fyrir þjóðina, »em henni má til velfarnaðar verða. Hvaða einstaklingur mundi kjósa það orð á sig, að hann ekki vildi meðbræðrum sínum vel í hvívetna? Sé spurt um vilja þeirra, sem ieggja hönd og hug að því að skapa örlög þjóðarinnar, stendur ekki á fögrum yfirlýsingum um góð og göf- ug áform, mannkærleika og fórn- fýsi. — En það er sitt hvað orð og efndir. Hér að framan hefir verið drepið á það, hvers þjóðin mundi æskja, væri liún spurð um það, hvað best væri hægt fyrir h2na að gera, og hvað hana s k o r t i helst á þessum tímum. Hvað væri eðlilegra en að forsjár- menn þjóðarinnar hefðu komið auga á einhverja þessa vöntun og eitt- hvað af þeim óskum, sem hrevfa sér í brjósti þjóðarinnar? 0g hvað væri eðlilegra en að vilji forsjár- mannanna kæmi fram í því, að þeir legðu hönd að því að bæta úr skort- inum og uppfylla óskirnar að ein- hverju leyti? Forsjármenn þjóðarinnar leggja spurningu fyrir hana um þessar mundir, og óska svars. Um hvað spyrja þeir? Spyrja þeir um það, hvort unnið skuli að því að afnema atvinnuleysi, útrýma örbyrgð úr landinu, auka mentun og göfgi, byggja brýr, vegi, hús, auka ræktunina o. s. frv.? Nei, þeir spyrja um alt annað. Þeir spyrja hvort þjóðin vilji ekki brennivín, koníak, whisky, romm og aðra sterka drykki, til viðbótar við það átengi, sem búið er að neyða upp á landsmenn. Hafi íslenskur almenningur sofið hingað til, ætti hann að geta vaknað við þennan löðrung. Á alvöruþrungnustu tímum þjóð- arinnar; þegar við liggur að stór hluti bænda flosni upp af jörðum sínum; þegar verkalýðurinn sveltur N Y J A BI O M Þriðjudagskvöld kl. 9; Ný mynd! FriÉrÉumar 1980 Tal- og hljómmynd í 9 þátt- um. *— Aðalhlutverkin leika : ÉI. Brendel og Marjorie White. Myndin er látin gerast árið 1980, og er öll framúrskar- andi æfintýraleg bg spénn- andi. Miðvikudagskvöld kl. 9: í höfuðborg landsins; þegar fjárhirsla rikisins er tóm að lieita má; þegar verið er að i æða um að starfrækja ekki mörg af menningartækjum þjóðarinnar (skólana); þegar fjöldi ungmenna úr alþýðustétt verður að neita sér um skólagöngu vegna fjár- skorts; þegar haft er í hótunum um að leggja íiskiflota landsins upp, vegna fjárkreppu; þegar ríkiö þykist ekki geta greitt meira en matvinn- ungskaup við lagningu vega í land- inu; þegar bannaður er innflutningur á nauðsynlegum vöium til landsins; og þegar verið er að predika þeim, sem ekki hafa til hnífs og skeiðar, ítrasta sparnað í lifnaðarháttum, þá hafa foisjármenn þjóðarinnar þá einu hugsjón að berjast fyrir, að fá inn f landið brennivín — koníak — whisky — romm,

x

Alþýðumaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.