Alþýðumaðurinn - 24.10.1933, Side 3
alÞýðumaðurinn
3
Glerverudeildio:
Sími 309.
Matarstell i2 manna, 62 stk.
írá kr. 48,00.
Matarstell 6 manna, 23 stk.,
írá kr. 20,oo.
Kaffistell 12 m. frá kr. 22,oo
Ávaxtastell 7 stk. frá kr. 3,15.
Borðhnífar ryðfríir frákr. 0,70.
Brauns-Verslun.
Páll Sigurgeirsson.
Kosningarnar í Noregi.
Stórsigur jafnaðarmanna.
Kosmngarnar í Noregi 16. þ, m.
fóru þannig, að flokkarnir hlutu at-
kvæði og þingsæti, sem hér segir:
Jafnaðarmenn
íhaldsmenn
Vinstri menn
Bændur
Nasistar
Kommúnistar
Atkvæöi. fingsæti.
499 þús. 69
251 - 29
212 — 24
1731./s - 22
28 —
23 —
Jafnaðarmenn bættu við sig, frá
því er áður var, um 150 þúsundum
atkvæða og 22 þingsætum. Thalds-
menn töpuðu 15 þingsætum, vinstri
8, bændur 3, Talið er sjálfsagt að
jafnaðarmenn myndi stiórn, er þing-
ið kemur saman eftir nýárið.
Þegar svo ofan á allt þetta bætt-
ist traustsyfirlýsing kjósenda ísafjarð-
ar á Finni Jónssyni í kosningunum í
sumar, en ekki var litið við sendi-
tík Kommúnistaflokksins, hlaut hatr-
ið og hefnigirnin að brjótast út.
Og ekki skorti liðsaflann við að
vinna óþrifaverkin.
Þeir, sem eru svo á vegi staddir
í verklýðsmálunum, að þeir hvmrki
mega né vilja vinna verkalýðnum
gagn, verða að gera það illt af sér
sem þeir geta eða sitja auðum
höndum. —
En meðlimir Kommúpistflokks
íslands eru ekki látnir sitja aðgerða-
lausir, —
f*eir eru ráðnir til óþrifaverkanna
— í þágu auðvaldsins.
Atkvæðagreiðslan
um afnám bannsims heíir íallið
þannig, þar sem til hefir frést:
Tá. Nei.
Akureyri 564 620
ísafjörður 326 702
Seyðisfjörður 175 138
Vestmannaeyjar 637 246
Hafnarfjörður 552 441
Reykjavik 6972 2762
Rangárvallasýsla 527 166
Mýrasy'sla, 233; 189
Dr bæ og bygð.
Kvöldskóli iðnaðarmanna var sett-
ur fyrra Laugardag. 60 nemendur
eru í skólanum. þar af 25 iðnnemar.
Kennarar eru hinir sömu og í lyna.
Skólastjóri Tóhann Frímann.
Af vangá hafði nafn Snorra Sig-
fússonar skólastjóra fallið niður, er
getið var ræðumanna bannmanna á
fundinum fyrra Mánudag, í síðasta
blaði. Hélt hann þar góða ræðu, sem
vert er að minnast, og er Snorri
eldheitur bindindis- og bannmaður.
Væri betur ef allir uppfræðarar
æskufólks væru eins á vegi staddir.
Gagnfræðaskólinn er tekinn til
starfa. Nemendur eru nokkru færri
en í fyrra. Er það illa farið að æsku-
menn bæjarins skuli ekki nota sér
þessa alþýðlegu menntastofnun meir
en þeir gera.
Hjónabönd. Ungfrú Jónína Bene-
diktsdótfir Baldurshaga og Eggert
Ólafsson Kristnesi, Ungfrú Þórunn
Þorsteinsdóttir frá Upsum og Einat
Benediktsson loftskeytamaður á Lag-
arfossi. Ungfrú Anna Sigurðardóttir
Brattavöllum og Friðrik Þorsteins-
son Litlu-Hámundarstöðum á Ar-
skógströnd.
Mækkun
á fatnaði.
Fyrst um sinn sel ég karlm.
Vetrirfrakka með
10 til 20% aislætti.
Kar 1 m.alfatnað með 10%"
afslætti.
Vetrarhúfur úr skinni frá
kr. 4,00.
BraunS'VersIun.
Páll Sigurgeirsson.
Rangfærsla frétta-
rítarans á Blönduósi.
í Verklýðsblaðinu 3. okt, þ.á.. 43.
tSl. stendur fréttaklausa frá fréttn-
ritara Verklýðsblaðsins á Blöndu-
ósi: »Verkfall á Blönduósi.<
Vil ég benda þar á eina setningu,
sem er ómakleg og alröng. — Setn-
ingin er þessi:
»Stjórn Verkamannafélagsins á
Blönduósi hefir hingað til reynst ó-
fáanleg til að skifta sér af baráttu
þessari*. Annað hvort er þessi um-
getni fréttaritari eitthvert aðskota-
dýr, sem enga þekkingu hefir á
gangi málsins, eða hitt að hann er
að leika sér að lyginni.
Blönduósi, 15. Okt. 1933.
Jón Einarsson.
St. Brynja nr. 99. — Fundur
annað kvöld kl. 8,30 í Skjaldborg.
Allir á fund! Rætt um vetrarstarfið.
St. IsafoldFjallkonan nr. 1.
Fundur á Föstudagskvöldið, kl. 8,30.
Bréf irá Stórstúkunni. Kosning em-
bættismanna. Allir félagar á fund.
Ungl.st. tSarnúð< nr. 102.
Fundur á Sunnudaginn kemur kl.
1,30 í Skjaldborg. Börnin eru öll
beðin að koma á fundinn og hafa
með sér aura til að borga áfallin
ársfjórðungsgjöld. Hefjið vetrarstarf-
ið meö fullum krafti, börnin góð.