Alþýðumaðurinn

Útgáva

Alþýðumaðurinn - 05.12.1933, Síða 1

Alþýðumaðurinn - 05.12.1933, Síða 1
ALÞYÐUMAÐURINN III. arg. Akureyri, í’riðjudaginn 5. Desember 1933. 62. tbl. Klofningur Kommúnista- flokksins. »Tækifærisstefnan«. Eftirtektaverð deila er risin upp f Kommúnistaflokki íslands, milli þeirra Einars Olgeirssonar og Brynjólfs Bjarnasonar, og verður þess ekki dulist að Einar á þar upptökin, því stefna hans, sem Brynjólfur nefnir “Tækifærisstefn- una«, er algerlega ný meðal kom- múnista hér á landi, en þeir munu vera búnir að hafa félagsskap í Reykjavík milli 10 og 20 ár, þótt annarstaðar hafi ekki borið á þeim fyr en á síðari árum. Brynjólfur Bjarnason hefir verið forystumaður kommúnistanna um langt skeið, — Er hann og ritsjóri blaðs þeirra í Reykjavík. — Árið 1931 flutti Einar Olgeirsson til Reykjavíkur og skömmu síðar kom Stefán Péturs- son heim frá Pýskalandi. Gerðust þeir Einar og Stefán athafnasamir innan Kommúnistaflokksins í Rvík, þar sem Brynjólfur hafði áður haft tögl og hagldir, og þarf því engan að undra, þótt Brynjólfur ætlist til að nýbakaðir kandidatar í flokkn- um, eins og þeir Einar og Stefán, læri til fullnustu æðstu boðorð kommúnísta og breyti samkvæmt þeim, enda hefir Brynjólfur knésett þá Einar og Stefán að undanförnu í Verklýðsblaðinu, — fyrst með strangri ofanígjöf frá miðstöð kom- múnistanna í Moskva og síðan með hæfilegum skömmum í blað- inu fyrir að sjá ekki að sér og betrast. — Eins og þeim er kunnugt, sem þekkja trúarjátningu kommúnista, er fyrsta boðorð þeirra að svívirða beri alla þá, sem utan flokks þeirra standa, bæði persónulega og fyrir pólitískar skoðanir, og fyrst og fremsi beri að svívirða í orði og verki AlþýðufLokkinn og þá menn, sem verkalýðurinn hefir kosið fyrir sína forystumenn. — Að sönnu þarf Brynjólfur ekki að áfella Einar eða Stefán fyrir það, að þeir, eða þó sérstaklega Einar, hafi ekki uppfyllt boðorðið eftirmætti, um að svívirða í ræðu og riti, og láta þjóna sína hér í bæ og víðar gera hið sama, alla þá Alþýðuflokksmenn, sem. hann og lið hans hefir náð til með róg og óhróðri. En Einar hefir brotið stefnuskrá kommúnistanna á annan hátt. Hann hefir haldið því fram innan Kommúnistaflokksins, að flokkurinn ætti að leita eftir kosningabandalagi við Alþýðuflokk- inn á þeim grundvelli, að honum, Einari, yrði trygð kosning til Al- þingis hér á Akureyri og gegn því átti Kommúnistaflokkurinn ekki að bjóða fram í Hafnarfirði og ef til vill víðar. Petta er það, sem Brynjólfur kall- ar »Tækifærisstefnunac. Þeir, sem þekkja Einar Olgeirs- son, skilja þetta mæta vel. Hon- um mun þykja langt að bíða eftir »byltingunni« og þeim völdum, er hún myndi færa þeim kommúnist- unum. Brynjóltur er vonbetri og staðfastari í trúnni. Kunnugir menn þekkja það, að Einari Olgeirssyni velgir ekki við að éta ofan í sig stóryrði og ganga í mótsögn við eigin kenningar þeg- ■H NÝJA-Bíó ■■ Þriðjudagsk völd kl. 9: Konan, sem talað er um. í’ýsk talmynd í 9 þáttum. í aðalhlutverkinu hin fagra Mady Christians, sem allir þekkja frá myndinni »Pú ert mér kær«.—Myrid- in er skrautleg og skemtileg og er látin gerast í »París«. Bönnuð fyrir börn. Miðvikudagskvöld kl. 9. Átta stúlkur á lia't. Pýsk tal- og hljómmynd í 10 þáttum, sem hefir að bjóða allt hið fegursta og fjörugasta ur lífi þýskrar æsku. Hún er ágæt íþróttamynd, sem allir íþróttaunnendur þurfa að sjá. Bönnnð fyrir börn. ar hann getur sjálfur haft persónu- legan hag af því. — Félagsskapur hans við Mjólkurfélag Reykjavíkur, Kveldúlf og önnur fyrirtæki kapí- talista, sýna best það kátlega ó- samræmi, sem felst í kenningum Einars annarsvegar og athöfnum hinsvegar. Samtímis því, sem hann svívirðir Thor Jensen í Reykjavík á þingmálafundi hér í vor í sambandi við sölu á mjólk, gengur hann á milli sona Thors til þess að mynda með þeim olíuhring til að féfletta smábátaeigendur í gegnum áhrif

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.