Alþýðumaðurinn - 05.12.1933, Blaðsíða 1
ALÞYÐUMAÐURINN
III.
arg.
Akureyri, í’riðjudaginn 5. Desember 1933.
62. tbl.
Klofningur
Kommúnista-
flokksins.
»Tækifærisstefnan«.
Eftirtektaverð deila er risin upp
f Kommúnistaflokki íslands, milli
þeirra Einars Olgeirssonar og
Brynjólfs Bjarnasonar, og verður
þess ekki dulist að Einar á þar
upptökin, því stefna hans, sem
Brynjólfur nefnir “Tækifærisstefn-
una«, er algerlega ný meðal kom-
múnista hér á landi, en þeir munu
vera búnir að hafa félagsskap í
Reykjavík milli 10 og 20 ár, þótt
annarstaðar hafi ekki borið á þeim
fyr en á síðari árum. Brynjólfur
Bjarnason hefir verið forystumaður
kommúnistanna um langt skeið, —
Er hann og ritsjóri blaðs þeirra í
Reykjavík. — Árið 1931 flutti Einar
Olgeirsson til Reykjavíkur og
skömmu síðar kom Stefán Péturs-
son heim frá Pýskalandi. Gerðust
þeir Einar og Stefán athafnasamir
innan Kommúnistaflokksins í Rvík,
þar sem Brynjólfur hafði áður haft
tögl og hagldir, og þarf því engan
að undra, þótt Brynjólfur ætlist til
að nýbakaðir kandidatar í flokkn-
um, eins og þeir Einar og Stefán,
læri til fullnustu æðstu boðorð
kommúnísta og breyti samkvæmt
þeim, enda hefir Brynjólfur knésett
þá Einar og Stefán að undanförnu
í Verklýðsblaðinu, — fyrst með
strangri ofanígjöf frá miðstöð kom-
múnistanna í Moskva og síðan
með hæfilegum skömmum í blað-
inu fyrir að sjá ekki að sér og
betrast. —
Eins og þeim er kunnugt, sem
þekkja trúarjátningu kommúnista,
er fyrsta boðorð þeirra að svívirða
beri alla þá, sem utan flokks þeirra
standa, bæði persónulega og fyrir
pólitískar skoðanir, og fyrst og
fremsi beri að svívirða í orði og
verki AlþýðufLokkinn og þá menn,
sem verkalýðurinn hefir kosið fyrir
sína forystumenn. — Að sönnu þarf
Brynjólfur ekki að áfella Einar eða
Stefán fyrir það, að þeir, eða þó
sérstaklega Einar, hafi ekki uppfyllt
boðorðið eftirmætti, um að svívirða
í ræðu og riti, og láta þjóna sína
hér í bæ og víðar gera hið sama,
alla þá Alþýðuflokksmenn, sem.
hann og lið hans hefir náð til með
róg og óhróðri. En Einar hefir
brotið stefnuskrá kommúnistanna á
annan hátt. Hann hefir haldið því
fram innan Kommúnistaflokksins,
að flokkurinn ætti að leita eftir
kosningabandalagi við Alþýðuflokk-
inn á þeim grundvelli, að honum,
Einari, yrði trygð kosning til Al-
þingis hér á Akureyri og gegn því
átti Kommúnistaflokkurinn ekki að
bjóða fram í Hafnarfirði og ef til
vill víðar.
Petta er það, sem Brynjólfur kall-
ar »Tækifærisstefnunac.
Þeir, sem þekkja Einar Olgeirs-
son, skilja þetta mæta vel. Hon-
um mun þykja langt að bíða eftir
»byltingunni« og þeim völdum, er
hún myndi færa þeim kommúnist-
unum. Brynjóltur er vonbetri og
staðfastari í trúnni.
Kunnugir menn þekkja það, að
Einari Olgeirssyni velgir ekki við
að éta ofan í sig stóryrði og ganga
í mótsögn við eigin kenningar þeg-
■H NÝJA-Bíó ■■
Þriðjudagsk völd kl. 9:
Konan,
sem talað er um.
í’ýsk talmynd í 9 þáttum.
í aðalhlutverkinu hin fagra
Mady Christians,
sem allir þekkja frá myndinni
»Pú ert mér kær«.—Myrid-
in er skrautleg og skemtileg
og er látin gerast í »París«.
Bönnuð fyrir börn.
Miðvikudagskvöld kl. 9.
Átta stúlkur á lia't.
Pýsk tal- og hljómmynd í 10
þáttum, sem hefir að bjóða
allt hið fegursta og fjörugasta
ur lífi þýskrar æsku. Hún
er ágæt íþróttamynd, sem
allir íþróttaunnendur þurfa
að sjá.
Bönnnð fyrir börn.
ar hann getur sjálfur haft persónu-
legan hag af því. — Félagsskapur
hans við Mjólkurfélag Reykjavíkur,
Kveldúlf og önnur fyrirtæki kapí-
talista, sýna best það kátlega ó-
samræmi, sem felst í kenningum
Einars annarsvegar og athöfnum
hinsvegar. Samtímis því, sem hann
svívirðir Thor Jensen í Reykjavík á
þingmálafundi hér í vor í sambandi
við sölu á mjólk, gengur hann á
milli sona Thors til þess að mynda
með þeim olíuhring til að féfletta
smábátaeigendur í gegnum áhrif