Alþýðumaðurinn

Útgáva

Alþýðumaðurinn - 28.12.1933, Síða 1

Alþýðumaðurinn - 28.12.1933, Síða 1
III. árg. Akureyri, Fimtudaginn 28. Desember 1933. 65. tbl. Kosfliniiastefnuskrá kommúfiista. Gagnrýni alþýðuflokksblaðanna undanfarið á starfsemi kommúnista hér á landi þau þrjú ár, sem þeir hafa starfað, hefir nú svælt refina út úr greninu, svo þeir játa það opinbert, að fyrsta og stœrsta hlut- verk kommúnistanna sé að eyði- leggja alþýðusamtökin í landinu. Þenna boðskap hefir verið að finna í Verkiýðsblaðinu undanfarið, og nú síðast hér nyrðra í Komm- únistanum og Verkamanninum. Þetta verður að telja mjög bætta aðstöðu fyrir Alþýðuflokkinn. Hér eftir þarf íslensk alþýða ekki leng ur að vera í neinum vafa um það, að í kommúnistum á hún sama ó- vin og í auðvalds íhaldinu, og að henni ber að berjast gegn þeim eins og svartasta íhaldi. í öðru lagi sýnir þetta að ís- lensku kommúnistarnir eru læri- sveinar þeirra fálmara innan verk- lýðssamtakanna, í nagrannaiöndum vorum, sem undanfarin ár hafa verið að berjast við að undirbúa valdatöku fasistanna og hefir tekist að koma þeim til vaida í Þýska- landi. Of stór hluti þýsku alþýð- unnar lagði eyru við þessum auð- valdsblekkingum kommúnistanna. Þess vegna fór sem fór. í öðrum löndum, svo sem Svíþjóð, Noregi, Danmörku og víðar, sá alþýðan kommúnistana nógu snemma í gegn til að sparka í þá í tæka tíð. Og í þessum löndum eru alþýðusamtökin að sigra ú öllum sviðum. Það sýnist nú svo, að það, að ætla að telja íslenskum verkalýð trú um það að Alþýðusamband íslands, sem allir vita að hefir haldið og heldur uppi kaupi verka- lýðs í landinu, sé þröskuldur í vegi alþýðusamtakanna, og fjandsamlegt verkalýðnum, sé lítt vinnandi verk. En hvað er það, sem kommúnistar gera ekki fyrir auðvaldið? En öliu hlálegra verður þetta, þegar málið er sett í samband við bæjarstjórnarkosningamar hér í bæ í næsta mánuði. Samkvæmt því sem málgögn kommúnistanna hér á staðnum halda fram, ber verka- lýðnum »fyrst og fremst* að berj- ast gegn lista Alþýðusambands- mannanna hér. Nú vill svo vel til að það er nokkurnveginn vitað hvernig listar hinna ýmsu flokka eru mönnum skipaðir, þótt ekki sé búið að leggja þá alla fram ennþá. Skulu þeir nú athugaðir, og efstu menn þeirra. Á A-Iistanum, Alþýðuflokkslist- anum, er Erlingur Friðjónsson efstur. Hann hefir nú setið sem fulltrúi verkalýðsins hér í bæ í bæjarstjórninni s. 1. 19 ár, og altaf barist jafn ótrautt fyrir hagsmuna- málum hans. í samræmi við þetta er allur listinn skipaður ótrauðum verkamönnum, sem aliir sem einn eru þekktir að því að hvika hvergi frá skynsamlegum kröfum verka- lýðsins- Á lista sjálfstæðis-íhaldsins er efstur formaður nasistanna hér, Sig. Ein. Hlíðar. Eftir dómi kommún- istanna er þessi maður ákjósanlegri sem bæjarfulltrúi en verkamennirnir á alþýðulistanum. Næstur er Stefán Jónasson, íhaldsmaður og at- vinnurekandi. — Ekki sjá komm- B1 NÝJA-BÍÓ H Fimtudagskvöld kl. 9. „í nótt — eða aldrei!“ í aðalhlutverkinu hinn heims- frægi pólski tenor-söngvari Jan Kiepura. Á tiltölulega stuttum tíma sáu þessa mynd tvö hundruð og fimn tíu þ ú s u n d manns á »Palads« í Kaupmannahöfn — og þannig hefir aðsóknin verið hvarvetna. únistar ástæðu til að berjast gegn þessum manni fyr en búið er að •einbeita* »öliu afli verkalýðsins* gegn verkamönnunum á alþýðulist- anum. í samræmi við þessa tvo höfuðsmenn, er listinn að mestu skipaður hjá íhaldinu. Allir menn- irnir, sem hugsanlegt er að þar geti komið til greina, eru ákveðnir og yfirlýstir mótstöðumenn verka- lýðsins. Það er vitað, að á lista Fram- sóknar verða tveir efstu mennirnir ákveðnir mótstöðumenn verkalýðs- ins, og málgagn kommúnista hér hefir þrásinnis stimplað þá sem óalandi í bæjarmálum. Samt ber verkalýðnum frekar að styðja þá en verkamennina á alþýðulistanum, eftir því sem kommúnistarnir segja. Þá hafa »kommarnir« ekki altaf vandað Jóni bæjarstjóra kveðjurnar.

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.