Alþýðumaðurinn - 26.07.1938, Side 1
Tipir geslir í heimsokn
Friðrik konungsefni og fngrid drottningar-
efni Islands og Danmerkur heimsækja Island.
þau koma hingað með „Dronn-
ing Alexandrine“ á morgun og-
dvelja hér til Föstudagsmorguns.
Friðrik krónprins og Ingrid krón-
T)rinsess*i ko*r>u hingsð til lands, í
heimsókn, á Sunnudaginn var.
Hingað til bæjarins koma þau á
morgun, með »Dronning Alexandr-
ine«. Er búist við að skipið verði
hér ca. kl. 3 e.h. Verður gestunum
fagnað á biyggjunni ineð söng bland-
aðskórsundir stjórn Björgvins Ouð-
mundssonar og bæjarstjóri býður
þá velkomna með ræðu.
Þar rsæst verður farið fram í
Laugaland og kvennaskólinn skoð-
aður og fleira. Um kvöldið situr
bæjarstjórn miðdegisveislu með
gestunum í Menntaskólanum.
Kl, 8 á Fimmtudagsmorguninn
verður lagt af stað ausíur að
Laxárfossum, þar sem ríkiserfing-
inn opnar virkjunina með því að
kveikja í sprengjuskoti eða fram-
kvæma eitthvert annað smávik,
sem kaiia má upphafsstarf að
virkjun bæjarins þar eystra. Frá
Laxá verður haldið tii Laugaskóla
og þar snæddur miðdegisverður.
Svo verður farið til Skútusíaða og
þar drukkið kaffi. Um kvöidið
komið til Akureyrar attur.
Á Föstudagsmorgun leggja gest-
irnir af stað suður til Reykjavíkur,
í bíl. —
Þetta eru aðalpúnktarnir í mótíöku
áætluninni, en auðvitað getur hún
breyst eitthvað lítilsháttar í fram-
kvæmdinni.
Móttökunefndina skipa, fyrir hönd
bæjarsíjórnar, Brynleifur Tobiasson,
Árni Jóhannsson og Axei Krist-
jánsson. Undirbúningi og skreyt-
ingu bæjarins stjórnar Jón Norð-
fjörð
Þess er beðið, að húseigendur
í bænum irreinsi og prýði kringum
hús sfn eftir föngum, Að bæjar-
búar dragi fána að hún áður en
hinir tignu gestir koma og meðan
þeir dvelja hér, og fjölmenni á
bryggjuna á morgun til að fagna
þeim.
Um leið og blaðið viðurkennir
að sjálfsagt sé að taka hinum
tignu gestum með allri prýði, telur
það að móttökurnar eigi að vera
sem mest blátt áfram og lausar
við tildur og ailt fíatmag, en því
hlýrri og vinsamlegri. Þóít hér
sé um tigið fólk að ræða, er það
vitað og viðurkennt að það er
sjálft mjög blátt áfram og ljúfmann-
legt í framkomu. Slíka kosti ber
að virða og endurgjalda með
hlýleik og siðaðra manna kurt-
eys —
í öðru lagi vill blaðið spyrja —
og þá sérstaklega í sambandi við
hin ákjósanlegu og vel við eigandi
tilmæii nefndarinnar urn að sópað
sé og piýtt kringum hús í öllum
bænum fyrir komu hinna tignu
gesta: Hvenær eiga þeir að skoða
bæinn?
Blaðið getur ekki annað séð en
það eigi að fara hér að iíkt og
þegar konungurinn kom hér sfðast,
að passa vandlega að gestirnir fái
sem alira minnst af bænum að sjá,
að maður ekki segi að það eigi
að fela bæinn sern vandlegast fyrir
þeim. Slík aðferð er mjög óvið-
eigandi og lýsir allt öðru en stolti
hjá forráð3mönnum bæjarins yfir
þeirra »ríki í ifkinu*.
Þótt ákveðin tilhögun móttök-
unnar sé nauðsynleg, virðist vanta
einn stóran lið í hana;
Hvers óska gestirnir sjálfir?
Um það hefir víst ekki verið
spurt, og á víst ekki að gera.
Og hvar er þá íslensk
gestrisni ?
Frídagur
verslunarmanna.
Hin árlega skemmtiferð F. V. S. A.
verður um næstu helgi, og verður
farið uestur í Húnavatnssýslu. —
Lagt verður af stað frá Ráðhústorgi
kl. 3.30 e. h. á Laugardag þ. 30.
Júlí. — Öllu verslunarfólki heimil
þátttaka. — Áskriftarlisti liggur
frammi hjá Haraldi Sigurgeirssyni
í Brauns-verslun og eru farmiðar
seldir á sama stað og kosta kr
10,00 og kr. 15.00. — Farmiða
verður að taka fyrir kl. 8 e, h. á
Föstudagskvöld.