Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 23.01.1945, Page 1

Alþýðumaðurinn - 23.01.1945, Page 1
XV. árg. | Þiiðjudaginn 23. januar 1945 | 4. tbl. Davíð Stefánsson skáld trá Fagraskdgi fimtngnr Eins og getið var í síð- asta blaði átti Davíð Stef- ánsson skáld fimtugsaf- mæli á Sunnudaginn var. Var honum sýndur margs konar sómi í tilefni af af- xnælinu, eins og tilhlýði- legt var. A Laugai'dagskvöidið helgaði útvarpið honum samfelda dagsskrá. Flutti Sig._ Noi'dal pi'ófessor er- indi um skáldið, leikinn var 4. þáttur úr Gullna liliðinu og síðan skiftust á upplestrar úr Ijóðurn Davíðs og flutningur laga við ljóð eftir hann. Var dagskráin hin myndarleg- asta. Hér var skáldinu sýndur margs- konar sómi. A Föstudaginn skaut bæjarstjórn á aukafundi, sam- þykkti þar ávarp til afmælisbarn- ins og ákvað að láta fvlgja því 20 þús. krónur í peningu'm. Um liá- degi á Sunnudaginn voru fánar dregnir að hún viða um bæinn. Laust fyi'ir klukkan 6 um kvöld- ið fóru nemendur Menntaskólans blysför, undir stjórn Hermanns Stefánssonar íþróttakennara, að heimili skáldsins og hylltu það. Einn nemenda, Halldór Olafsson. fimtabekkingui', flutti ávarp frá skólanum. Karlakói'inn Geysir söng þarna nokkur lög, og Arni Jónsson, bæjai'stjóraritari flutti skáldinu ávarp frá kórnum, en Davíð er heiðursfélagi hans. Þá lék Lúðrasveit Akureyrar og nokk- ur lög. Þakkaði skáldið allan þenn an virðingar- og vináttuvott með stuttri snjallri ræðu. Fjölmennt var á heimili Davíðs urn kvöldið og honum bárust Tvær eyfirskar konur látnar I síðustu viku önduðust tvær kunnar, eyfirskar konur. Frú Ölöf R. Jakobsdóttir, áður prests í Saur- bæ, andaðist hér í bænum 17. þ. m., og 18. þ. m. andaðist að Krist- neshæli frú Sigrún Jónsdóttir síð- ast húsfreyja í Saurbæ. Báðar þess- ar konur voru sómi sveitar sinnar á sínum tíma, vel metnar og virt- ar af samferðafólki sínu, og skip- uðu sess sinn sem húsfreyjur og eiginkonur með myndarskap is- lenskra kvenna. fjöldi heillaskeyta, kveðja og gjafa Dagblöðin í Reykjavík, sem út komu á Sunnudaginn, helguðu af- mælisbarninu töluverðu af riimi sínu. í Alþýðublaðið i'itaði dr. Steingr. J. Þorsteinsson um Davíð og verk hans, og Halldór Kiljan Laxness- skrifaði um hann langt nxál í Lesbók Morgunblaðsins. Er ekki ólíklegt að afmælisbarnsins hafi víðar verið minnst, jafn ást- sæll og Davíð er sem skáld með þjóðinni. , Alþýðúmaðurinn árnar skáld- inu allrar blessunar í tilefni af af- mælinu. Þakkar því hinn glæsilega skerf, sem það hefir lagt til ís- lenskra bókmennta og lista, og væntir þess að það eigi enn eftir að vekja hrifningu og hita með þjóð- inni með nýjum afrekum í Braga- sal. ' Aj/| Nýr ritstjóri er kominn að Islendingi, Bárður Jakobsson að uafni. Fjölgar Sjálf- stæðið á garðanum hjá sér sam- tímis því að Framsókn sker af fóðrunum. Sýnir þetta gróandann hjá Sjálfstæðinu, sem nýju stjói'n- inni fylgir. Um ástandið hjá stjórn- arandstöðunni tala verkin sínu þögla máli. Þorri heilsaði með norðan harðneskju stórhríð í þetta sinn. Líkar mörg- um eldri mönnum þetta.vel og þyk- ir gefa vonir um veðurmildi þegar nær dregur vordögum. .

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.