Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 04.04.1945, Síða 1

Alþýðumaðurinn - 04.04.1945, Síða 1
ALÞÝSUMABURIN N Miðvikudaginn 4. . miwinrmi ■ mimnmr nta Apríl 1945 14, tbl. XV. árg. Herra Sveinn Björns- son verður forseti r Islands næstu 4 ár. ENGINN STJÓRNMÁLA- FLOKKANNA BÝÐUR FRAM Á MÓTI HONUM. V egna eindreginna tilmœla hefir núverandi forseti íslands lýst því yfir, að hann gefi kost á sér við forsetakosningarnar, sem fram eiga að fara 24. Júní n. k. Hafa þrír stjórnmálaflokk- arnir lýst sig stuðningsflokka hans við forsetakjörið. Eru það Alþýðuflokkurinn, Framsóknar- flokkurinn og Sjálfstœðisflokk- urinn. Kommúnistaflokkurinn sem kallar sig sósialistaflokk lýsir því yfir að hann bjóði ekki fram á móti núverandi forseta. Það leikur því enginn vafi á j að hr. Sveinn Björnsson, núver-) andi forseti Islands, verður í sjálfkjörinn forseti í þetta sinn, I og gildir það kjör næstu fjögur ? ár. J Mun þetta vekja almennan j fögnuð með þjóðinni. j Sextugur er í dag Sig. Ein. Hlíðar, yfir- dýralæknir og alþingismaður Ak- ureyrar. Alþýðumaðurinn kemur út í þetta sinn degi síðar en venjulega, vegna Páskahelgar- innar. HUGULSEMI. Skólastjóri Flensborgarskólans, Benedikt Tómasson, hefir gengist fyrir fjársöfnun í skólanum, til styrktar því skólafólki, sem missti allt sift í Gullfoss-brunanum um daginn. Verður þetta máske til þess að fleiri skólar komi á eftir. Alt Heidelberg eða Gamli Heidelberg, eins og það er nú kallað, hefir verið sýnd- ur við sívaxandi aðsókn undanfar- ið. Þykir meðferð leiksins prýðis- góð og Geysi og L. A. til sóma. Að- eins fáar sýningar eftir. Kirk j uhl j ómleika hélt Kirkjukór Akureyrar á Páska- dagskvöldið. Söngstjóri var Jakob Tryggvason og lék liann einnig tvœr orgelsólóar á kirkjuorgelið, sem einn þátt hljómleikanna. Undirleik söngsins annaðist As- kell Jónsson. A söngskránni voru 12 lög. 3 eftir ísl. höfunda og 9 eftir er- lenda. Aðsókn var góð, en um hug og hrifni áheyrendanna verður ekkert ráðið þar sem sá óviðeig- andi óvani fylgir kirkjuhljómleik- um, að áheyrendum er varnað að lýsa gleði sinni, og þakklæti til þeirra sem skemmta, með lófataki. Verður þó vart sannað að samstillt lófatak sé Ijótara eða síður við- eigandi, en. hinn alræmdi kirkju- hósti og tóbakssnýtur, sem skipa háan sess í kirkjum landsins. En Kirkjukórnum ber að þakka skemmtunina, og það starf, sem söngstjóri hans og kórfélagar leggja á sig í þágu söngmenningar- úmar í bænum. Hafi kórinn þökk kirkjugesta fyrir kvöldið. AÐALFUNDUR Verklýðsfél. Akureyrar verður haldinn í Verslunarmanna- húsinu (efri hæðý Sunnudaginn 8. þ. m. og hefst kl. 2 síðdegis. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Útgerðarmál. 3. Onnur félagsmál. Félagsmenn og konur fjölmennið! Akureyri 3. Apríl 1945 F élagsstjórnm. Alþýðuflokksfélag Akureyrar heldur fund í Verslunarmannafél.- húsinu — uppi — Föstudaginn 6. Apríl 1945, kl. 8,30 síðd. Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Starfsskrá félagsins. 3. Utgerðarmálin. 4. Orðið er laust. Fastlega skorað á félagsfólkið að mæta stundvíslega. Stjórniji.

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.