Alþýðumaðurinn - 23.05.1945, Blaðsíða 1
J}lþ(|kmcuiiut'icux
XV. árg. Akureyri, Miðvikudaginn 23. Maí 1945 z
Samband á ný við Norður-
lönd
í vor mun mörgum orðið hugs
að til vorsins 1940. Nú hafa ver-
ið leystar úr ánauð þær þjóðir,
er þá voru hnepptar í fjötra. —
Bæði vorin æddu herir yfir lönd
in, þá herir kúgunar, nú herir
lausnar. Meðal þessara þjóða
eru frændþjóðir vorar í Dan-
mörku og Noregi. Vér íslending-
ar fögnum frelsi þeirra alveg sér
staklega. Ber margt til þess. Vér
dáumst að hetjulegri baráttu
Norðmanna í styrjöldinni og öfl-
ugu viðnámi Dana. Þessar þjóð-
ir eru oss hugstæðari öðrum fyr-
ir skyldleika sakir og marghátt-
aðra samskipta á liðnum öldum,
bæði illra og góðra. Til þeirra
höfum vér leitað til þess að afla
oss menntunar, og íslensk menn-
ing hefir mótast meira af þess-
um þjóðum en öðrum. Og því
má bæta við, að menningaráhrif
þaðan hafa reynst og munu
sennilega reynast þjóðinni heilla
vænlegri en aðrir straumar, sem
borist hafa og berast munu til
landsins. Því má þó ekki gleyma
að norsk menning hefir átt góða
fulltrúa hér á styrjaldarárunum,
m. a. frú Gerd Grieg og Nordahl
Grieg, sem uimu hér merkilegt
starf.
En í aðalatriðum var sam-
band íslands við þessar merki-
legu þjójðir rofið 1940. Væntan-
lega kemst það fullkomlega í
lag á næstunni. Fjöldi íslenskra
menntamanna bíður þess að
komast heim frá námi og vinna
fósturjörðinni gagn. Danskar og
norskar bækur og blöð taka bráð
lega að skreyta glugga bóka-
verslana við hlið enskra og ame-
rískra rita, þegar skipaferðir og
flugsamgöngur komast á milli
landanna. Hjemmet og Familie
Journal verða sennilega eftir-
læti æskunnar, á sama hátt og
Look og Life, og tóbaksmenn
renna líklega hýru auga til
Brödrene Braun. Nýir náms-
menn leggja leið sína í austurátt
í stað þess að halda vestur, eins
og þeir hafa gert upp á síðkast-
ið. Og þannig mætti lengi telja.
Frelsis Norðurlandanna mun
mjög gæta í íslensku þjóðlífi.
Vér erum norræn þjóð, og það
væri misskilningur að reyna að'
vera eða látast vera eitthvað ann
að. En með þessu er ekki sagt,
að oss beri að stæla allt, sem
danskt eða norskt er. Nokkur á-
4
hrif frá frændþjóðunum eru
æskileg, en öllum erlendum
straumum ber að taka með hæfi-
legri gagnrýni.
x.
Hvað verður rætt á róð-
stefnu Churchills, Trumans
og Stalins?
í fréttum undanfarið hefir ver
ið vikið að því, að til stæði, að
leiðtogar stórveldanna þriggja,
Churchill, Truman og Stalin,
kæmu saman á ráðstefnu bráð-
lega. Ráðstefnan hefir ekki enn
verið haldin og henni ekki á-
kveðinn staður né stund, svo að
kunnugt sé. Bresk blöð hafa
haldið því fram, að ráðstefnan
ætti að koma saman í London,
Churchill hafi lagt sig í hættu
hvað eftir annað með því að tak-
ast á hendur erfið, ferðalög á
styrjaldarárunum, svo að nú
eigi liann skilið að losna við um-
stang og hættur slíkra ferða. —
Enn mun þetta þó ekki ráðið. En
hvað verður rætt á þessum
fundi? Eins og kunnugt er, var
síðasta ráðstefna forystumanna
stórveldanna, Krímráðstefnan,
haldin síðastliðinn vetur. Til-
kynnt var, að þar hefði náðst al-
gert samkomulag um ágreinings-
málin, og svo virðist hafa verið
í orði kveðnu. Um Póllandsmál-
in var þar rætt og deilurnar
jafnaðar, þó að sú skipan, sem
þar átti að koma á, sætti að vísu
gagnrýni márgra. En nú virðist
þetta samkomulag hafa farið út
um þúfur. Rússar handtóku
helstu forustumenn Pólverja, í
stað þess að semja við þá, og
saka þá um verstu glæpi. Bret-
ar og Bandaríkjamenn þykkjast
við og telja Rússa rjúfa það, sem
um var samið. Væntanl. kemur
síðar í ljós, hvaða glæpir þetta
eru og hversu ásakanir Rússa
eru á traustum rökum reistar.
Annað deilumál, sem úrlausn-
ar bíður, er framkoma Jugo-
Slafa undir forystu Titos mar-
skálks. Er ekki annað sýnna en
þessi eldheiti kommúnisti og á-
gæti hershöfðingi hyggi á land-
vinninga eins og væri hann
versta „auðvaldsbuRa“. Hefir
hann rofið samkomulag, sem
gert hefir verið um hernáms-
svæði á Ítalíu og í Austurríki.
Sem stendur, eru bæði herir Tit-
os og Alexanders í Trieste, hafn-
arborg í Ítalíu, þó að borgin sé
á hernámssvæði Alexanders.
Hafa um þetta gengið orðsend-
ingar milli Breta og Bandaríkja-
manna annars vegar og Titos
hins vegar, og eftir síðustu frétt-
um að dæma hefir Tito fallist á
að slaka á kröfum um austur-
rísku héruðin, en lieri sína vill
hann ekki láta hverfa úr Trieste.
Þriðja málið, serri vafalaust
verður rætt, er hernám Þýska-
lands, endanleg skipting her-
námssvæðanna og stjórn lands-
ins. Um þetta mál hefir áður ver
ið rætt margsinnis, en það er um
fangsmeira en svo, að búast
megi við algeru samkomulagi
þegar í stað, og ný vandamál
bíða sífellt úrlausnar. Búist er
við, að hlutur Frakka í hernám-
inu verði meiri en í fyrstu var
ætlað. Þá er gert ráð fyrir, að
þýsk stjórn verði ekki mynduð
um margra ára skeið, heldur
stjórni stórveldin ríkinu.
Margt fleira verður vafalaust
rætt, t. d. niðurstöður ráðstefn-
unnar í San Fransisco og undir-
búningur friðarfundar.
x.
„Barátta Danau
Sýning með þessu nafni var
opnuð á annan í Hvítasunnu, á
annari hæð Gagnfræðaskólahúss
ins, að viðstöddum nokkrum
boðsgestum. Hr. Balduin Ryel
kaupmaður flutti stutta ræðu og
lýsti tilgangi sýningarinnar og
drap á nokkra þætti í baráttu
Dana hernámsárin. Er Rvel sýn-
ingarstjóri og fyrir hans atbeina
er sýningin hingað komin. Hef-
ir hún áður verið sýnd erlendis
og nú síðast í Reykjavík. Sýning
in mun standa út þessa viku og
er hún opin kl. 15—22 daglega.
Aðgangur kostar 5 krónur. Á-
góðanum verður varið til að
kaupa fatnað hér á staðnum,
sem strax verður sendur til nauð
líðandi fólks í Danmörku.
FRA SKYNDIFJAR-
SÖFNUNINNI
Skátar safna gjöfum í bæn-
um í dag og á morgun
í síðasta blaði var birt áskor-
un frá ríkisstjórninni um skyndi
söfnun um allt land til hjálpar
bágstöddum Dönum.
Þessi söfnun hefir gengið með
þeim ágætum, að fá dæmi munu
vera til annars eins, og hafa ís-
lendingar þó brugðist myndar-
lega við í líkum tilfellum áður.
Mun söfnunin nema IV2 milljón
króna, auk mikils af fatnaði
og vörum.
Sérstök nefnd hefir annast
framkvæmdir hér í bænum, og
birti hún ávarp til bæjarbúa í
blöðunum, sem komu út síðari
hluta sl. viku. Um tilhögun söfn-
unarinnar segir svo í ávarpinu:
„Fyrirkomulag söfnunarinn-
ar verður með þeim hætti, að
Miðvikudag og Fimmtudag 23.
og 24. Maí nœstk. munu skátar
fara í hvert hús í bœnum og
safna því, er menn vilja af m'órk
um láta. Fara þeir á Miðviku-
dagskvöldið um innbæinn út að
Grófargili, en á Fimmtudags-
kvöldið um útbæinn. Auk þess
veitir pósthúsið samskotum við-
töku daglega.“
Það mun ekki þurfa að hvetja
bæjarbúa til að leggja fé af
mörkum í þessu skyni. Margir
þeirra munu þegar hafa lagt
fram allríflegar upphæðir. En
það skal tekið fram að það verð-
ur tekið á móti smáum gjöfum
með sömu gleði og þeim stærri.
Fyrirspurn
hefir blaðinu borist um það,
hvort loftvarnakerfi það, sem
sett var á fót hér í bænum fyrir
eina tíð, sé nú ekki úr sögunni
fyrst styrjöldinni við Þýskaland
er lokið, og nágrannalöndin orð-
in sjálfum sér ráðandi aftur. —
Fólkið vill fara að losna við
sandkassana úr húsunum, og
margir úr loftvarnaliðinu telja
sig lausa við þau störf. Blaðið
spurði framkvæmdastjóra loft-
varnanna um þetta. Sagði hann
að verið væri að leysa loftvarn-
irnar upp, og myndi vera von til-
kynningar um þetta á næstunni.