Alþýðumaðurinn - 10.07.1945, Blaðsíða 1
Hlþ(|Íiuma<)uma
S- . ' ■ ... . L . ■ . '.'...r™.' 1 'r—!
XV. árg. Þiðjudaginn 10. Júlí 1945 28. tbl.
Esja kom til Reykja
víkur í gærmoráun.
Hafði innanborðs 320 farþega, þar á meðal 67
börn. Menntafólk í farþegahópnum voru 14
verkfræðingar, 4 læknar, 4 tannlæknar, 4
mjólkurfræðingar, 3 hagfræðingar, 1 fiskfræð-
ingur, 2 húsameistarar. 5 búfræðingar og 12
hjúkrunarkonur.
Fárra skipa hefir verið beðið
nieð meiri eftirvæntingu en
„Esju“ nú um helgina, þegar
hún kom heim með íslendingana
frá Norðurlöndum. Ferðin gekk
að óskum, nema hvað leiðinlegt
atvik kom fyrir þegar skipið
var að fara frá Kaupmannahöín.
Kom þá um borð hópur manna
frá mótspyrnuhreifingunni
dönsku og hafði burt með sér 5
farþega, sem þó höfðu fengið
leyfi bresku yfirvaldanna til
heimferðar. Sýnir þetta að enn
vaða uppi hálfgerðir óaldar-
flokkar í Danmörku og ýmislegt
er ótryggt um menn og málefni,
þótt allt sé talið slétt á yfirborð-
inu. Verður það hlutverk Utan-
ríkismálaráðuneytisins að krefj-
ast skýringa á þessu ofbeldi og
rétta hlut fólksins, sem varð
fyrir því, en nöfn þess hafa ekki
enn verið gefin upp.
Kl. 10 á Sunnudagskvöldið
hafði útvarpsstöðin samband við
„Esju“, sem þá var nýfarin •
fram hjá Vestmannaeyjum, og
endurvarpaði fz-á skipinu kveðj-
um og farþegaskrá þess. Kveðj-
ur fluttu Asgeir Sigurðsson skip-
herra, Vilhjálmur S. Vilhjálms-
son, blaðamaður og Jónas Harlz
cand. polit. Einnig kom barn í
útvarpið, svona til fjölbreytni.
Allir voru sagðir í sólskinsskapi
um borð og tilhlökkun mikil.
Kl. 7 í gærmorgun lagðist
„Esja“ á ytri höfnina í Reykja-
vík. Kl. 9,30 hófst útvarp frá
horði, þar sem fréttamaður út-
varpsins skýrði frá hvernig út-.
lits væri um borð og átti tal við
nokkra af farþegunum. Kl. 10
lagðist skipið að hafnarbakkan-
um. Sungu Karlakórar Reykja-
víkur nokkur ættjarðalög,
Emil Jónsson, samgöngu-
málaráðherra flutti stutta ræðu.
Bauð farþega og skipshöfn
velkomna til landsins, en mann-
fjöldinn hrópaði ferfallt húrra.
Skipstjóri þakkaði og Guðmund-
ur Arnlaugsson cand. mag. þakk
aði fyrir hönd farþega. Á eftir
söng kór um borð í „Esju“
Forsætisráðherrar Svíþjóðar,
Noregs og Danmerkur hafa á-
kveðið að hittast 13. þ. m. Um
líkt leyti munu verkamanna-
flokkar sömu landa halda sam-
eiginlega ráðstefnu um verk-
lýðsmál.
Skósveinar Rússa færa sig
meir og meir upp á skaftið í
Finnlandi. Nýlega kom fram í
finnska þinginu fyrirspurn frá
dóttur Kuusinens þess, sem 1939
sama sem pantaði árás Rússa á
Finna, um það hvort ekki ætti
að rannsaka það hverjir for-
ustumanna Finna væru valdir
að því að Finnar fóru í stríðið
með Þjóðverjum. Ekki hermir
fregnin hvaða undirtektir þetta
fékk í þinginu,. en kommana
langar sjálfsagt í ,,hreinsun“
að rússneskum og þýskum sið,
og stíga yfir það smáatriði, að
það voru Rússar, sem réðust að
fyrra bragði á Finna.
Japanar gera ráð fyrir inn-
rás á Japan á næstunni. Loft-
þjóðsönginn og mannfjöldinn
tók undir. Síðan stigu farþegar
á land og mátti sjá ýmisleg geð-
brigði á fólki. Um 60 manns,
sem kom með skipinu, hafði
ekki að neinu að hverfa, var
húsnæðislaust. Tók Rauði-kross
Rvíkur á móti því fólki og var
þvj fengið pláss í Barnaskólan-
um.
Sem dæmi um kringumstæður
fólks í Noregi, getur tíðinda-
maður Alþýðublaðsins þess, að
Islendingar þeir, sem þaðan
komu, hafi orðið að fá 500 ki\
hjá sendiráðinu í Osló, til fata-
kaupa til heimferðarinnar.
Nokkiúr Akureyringar eru
meðal farþeganna. Listi yfir alla
farþegana er í síðasta Sunnu-
dagsblaði Alþýðublaðsins.
árásir á japönsku heimaeyjarnar
fara sívaxandi og Bandamenn
tilkynna að þær muni færast
mjög í aukana næstu vikur.
íslendingar í Kaupmannahöfn
hafa ákveðið að koma upp ís-
lendingahúsi þar í borginni. Á
það að vera samkomu- og sam-
starfsstaður landa í Danmörku.
Haíin er fjársöfnun til að hrinda
málinu í framkvæmd og búist
er við að leitað verði stuðnings
góðra manna heima á Fróni.
Kjörsóknir í kosningunum í
Englandi á Fimmtudaginn var
voru ágætar. Eru allir flokkar
vongóðir um sigur. Talið er að
um samvinnu Verkamanna-
flokksins og Frjálslynda flokks-
ins hafi verið að ræða í sumum
kjördæmunum til að ráða niður-
lögum íhaldsflokksins. Eftir er
að kjósa í nokkrum kjördæmum
enn, og úrslit kosninganna verða
ekki kunn fyrr en 26. þ. m. og
kemur hið nýkosna þing ekki
saman fyrr en í Ágúst.
Oddur Björnsson I
prentmeistari,
lést á sjúkrahúsi í Reykjavík s.l.
Fimmtudag, eftir langvarandi
veikindi.
Oddur var fæddur að Hofi í
Vatnsdal 18. Júlí 1865 og var
því tæpra 80 ára. Hann nam
ungur prentiðn og sigldi til út-
landa til að fullnuma sig í þeirri
wm
ODDUR BJÖRNSSON
iðn. Mun hann um skeið hafa
verið best menntur íslenskra
prentara á því sviði. 1901 kom
hann með prentsmiðju hingað
til Akureyrar og setti hana hér
niður og rak hana til dauðadags
að undanskildum fáum árum,
er hann dvaldi erlendis við fræði
störf, og 2—3 síðustu árin er
hann var veikur og Sigurður
sonur hans hefir veitt prentverk- •
inu forstöðu.
Oddur hafði afskifti af mörg-
um menningarmálum um dag-
ana, enda víðsýnn og fjölhæfur
maður. Hann rak bókaútgáfu,
vann að málum Góðtemplara-
reglunnar á fyrstu árum hennar
hér á landi, og var ákveðinn
bindindismaður til dauðadags.
Hann var einn af hvatamönnum
að stofnun Iðnaðarmannafélags
Akureyrar og Iðnskólans. Barð-
ist fyrir stofnun Heimilisiðnað-
arfélags Norðurlands, vann að
stofnun Dýraverndunarfélagsins
hér. Var ölull stúðningsmaður
dngmelnnafélagshreyfingarinnar
og skipaði sér yfirleitt þar í
sveit, sem unnið var að framfara-
málum bæði í bæ og landi. Hann
sat í bæjarstjórn Akúreyrar um
skeið, og skipaði margar trún-
aðarstöður í félögum, sem til
framfara horfðu. Og alls staðar
var hann heill starfsmaður og
eldheitur, svo silakeppum og
Stuttar erlendar fréttir.