Alþýðumaðurinn - 14.08.1945, Síða 1
Friður á jörðu?
JAPANAR BIÐJAST FRIÐAR OG GANGA
AÐ POTSDAMSSKILMÁLUNUM
Sigurhátíð verður haldin í öllum löndum Bandamanna
þegar vopnahlésskilmálarnir hafa verið undirritaðir
Eins og áður liefur verið sagt
frá. sendu þeir Truman, Churc-
hill og Chiang-Kai-Shek, Jap-
önum orðsendingu meðan Pots-
damráðstefnan stóð yfir, þar
sem þeir skoruðu á þá að gefast
upp tafarlaust til að forða þjóð-
inni frá algerri tortímingu. —
í orðsendingunni voru uppgjaf-
arskilmálarnir til teknir, en þeir
voru í aðalatriðum á þá lund,
að um skilyrðislausa uppgjöf
væri að ræða. Japanski herinn
yrði afvopnaður. Japanir fengju
aðeins að halda heimaeyjunum,
og lýðræðisskipulagi yrði á
komið um stjórn landsins. Þessu
neituðu japönsku yfirvöldin. —
Þegar kjarnorkusprengjuárás-
irnar hófust munu hernaðaryf-
irvöldin þar evstra hafa séð að
frekari mótspyrna væri þýðing-
arlaus. Og á Föstudaginn háðu
þau um vopnahlé á grundvelli
Potsdamorðsendingarinnar. Þó
háðu þeir um frekari skýringu á
orðsendingunni hvað við kæmi
keisaranum og valdi hans. Vildu
Japanar líta svo á, að ekki kæmi
til mála að svifta hann á nokk-
urn hátt valdi eða virðingum.
Þessari athugasemd hafa Banda
menn svarað á þá leið, að keis-
arinn yrði að hlýða í öllu þeim
hershöfðingjum, sem falið yrði
að hernema Japan og skipa þar
málum meðan með þyrfti.
Japanar höfðu svo mál þessi
í deiglunni yfir helgina og hern-
aðargerðum var haldið áfram.
Einkum var Rauði herinn um-
svifamikill, en Rússar sögðu
Japönum stríð á hendur sl. Mið-
vikudag, og réðust samtímis inn
í Mandsjúríu á þremur stöðum.
Mátti þetta ekki vera seinna til
að því yrði komið í kring áður
en Japanar gæfust upp. Rússar
ætla sjálfsagt að krækja í einn
landsskikann til þar eystra, fyr-
ir þessa „mikilvægu hjálp“ á úr-
slitastund Asíustyrjaldarinnar,
eins og kommúnistar orða það.
Fréttir hermdu í gær, að her-
flokkar Japana víða í Kína
hefðu lagt niður vopu þegar á
Sunnudag, og Baudameun höfðu
þá fullgerða áætlun, ásamt teikn
ingum, um landgöngustaði og
hernám Japans.
Þegar útvarpi lauk í gær-
kvöldi hafði ekkert svar borist
frá Japönum, en vitað var að
miklar umræður fóru fram með
al ráðamanna þar og keisarans.
Og japönsku hlöðin unnu á alla
lund að því að húa þjóðina und-
ir „slæm“ tíðindi.
1 morgun hirti svo japanska
útvarpið, að svar til Banda-
manna væri á næstu grösum, og
gengið yrði að skilyrðum Pots-
dams-orðséndingarinnar. Frek-
ari fréttir voru ekki fyrir hendi
þegar hlaðið fór í pressuna, en
vitað er, að stríðinu við Japana
er í raun og veru lokið. Varnir
þeirra eru hilaðar. Herir Banda
manna eru albúnir til innrásar,
og uppgjafartilkynning Japana
verður líklega komin til réttra
iðila áður en svertan er þur orð-
iu á síðum Alþýðumannsins.
En þótt Möndulveldin séu nú
öll að velli lögð. Hvað er þá um
heimsfriðinn? Friðinn á jörðu,
sem svo margir hafa talað, ritað
og rætt um. Hvað stendur hann
lengi? Verður hann friður frels-
»is eða kúgunar?
Þessar tvær andstæður hafa
ekki jafnað með sér metin enn-
þá.
Hvort fá þjóðirnar að búa við
gulu siðfræðina úr Austurvegi,
eða siðfræðina sem alin er í
ríki frelsis og lýðræðis? Idvað
svo sem þeir heita, hversu „há-
ir“ sem þeir verða, er að síðustu
setjast að friðarhorðinu, er það
víst, að þessar ólíku systur
koma til með að togast þar á um
völdin.
Og hvað er líklegara, þrátt
fyrir fögur loforð og göfugar
heitstrengingar, en að svo fari
að síðustu, að engin meginstefna
verði ofan á að fullu, og allt
verði látið drasla þar til næsta
styrjöld skellur yfir.
Héðan
og
þaöan
Gísli Guðmundsson, þingmað-
ur Norður-Þingeyinga, hefir
lagt niður þingmennsku vegna
heilsubrests. Kosið verður í
hans stað 18. Sept. n. k. og hefir
Framsóknarflökkurinn ákveðið
að hafa Björn Kristjánsson,
kaupfélagsstjóra á Kópaskeri í
framhoði. Ekki er vitað hvaða
menn hinir flokkarnir hafa í
framboði, eða hvort þeir hjóða
nokkuð fram.
Bærinn Vellir í Saurbæjar-
hreppi brann s. 1. Laugardag.
Kom eldurinn upp skömmu eftir
hádegi. Fólk var á engjum og
rarð því hjörgun innan-
stokksmuna ekki komið við að
ráði. Þó bjargaðist rnest úr hað-
stofu. Slökkvilið Akureyrar
kom á vettvang síðari hluta dags
ins og tókst að forða fjósi og
hlöðu frá bruna. Abúandinn,
Sigurvin Jóhanness. mun hafa
orðið fyrir tilfinnanlegum skaða.
Þrjú aflahæstu síldarskipin
hafa veitt rösk 5 þús. mál hvert.
Eitt þeirra er m. s. Snæfell héð-
an frá Akureyri.
Milli kl. 2 og 3 sl. Fimtudag
fannst konnlík fljótandi í sjón-
um við innri hafnarbryggjuna.
Reyndist þetta vera kona úr
Reykjavík, sem hér dvaldi í
sumarfríi, Karolína Friðriks-
dóttir að nafni. Hafði hún farið
út þaðan, sem hún dvaldi rösk-
um klukkutíma áður en hún
fannst, þar setn fyr getur. Er
ekki vitað hvernig slys þetta hef
ir viljað til.
%
Mænuveiki hefir gosið upp í
Reykjavík og hætta talin á, að
hún bréiðist út. Ein kona hefir
lálist úr veikinni, en annars er
hún talin væg. I tilefni af þessu
lilfelli og fólki til leiðbeiningar
ætlar próf. Níels Dungal að
flytja erindi í útvarpið kl. 21.15
annað kvöld, og er fólki ráð-
lagt að hlusta á mál hans, ef það
getur.
Nýlega afhentu bresku hern-
aðaryfirvöldin íslensku ríkis-
Berjaferð
Alþýðuflokksfélag Akur-
eyrar efnir til berjaferðar n.
k. Sunnudag, ef veður leyfir.
Askriftarlisti liggur frammi
í matvörudeild K.V.A.. þar
sem allar nánari upplýsingar
eru gefnar.
Þeir, sem œskja eftir að
taka þátt í förinni, eru beðn-
ir að skrifa sig fyrir þeirri
sætatölu, sem þeir óska eftir,
hið fyrsta, í síðasta lagi fyrir
M iðvikudagskvöld.
Stjórnin.
stjórninni 10 íslenska borgara,
sem hafa verið í haldi í Eng-
landi undanfarin ár, grunaðir
um starf í þágu Þjóðverja. Eru
þeir enn í haldi í Reykjavík og
mál þeirra í rannsókn nema
eins, sem sleppt hefir verið og
saklaus fundinn. Er líklegt talið
að svo fari um hina níu nú á
næstunni.
Berjaferðin, sem getið er um
hér að ofan að Alþýðuflokks-
félagið gangist fyrir ætti að geta
orðið tilvalin skemmtiferð fyrir
þátttakendur. Gott berjaland er
tryggt fyrirfram og einnig verða
merkir og fagrir staðir skoðaðir
í ferðinni. Geta sjálfsagt fleiri
en félagsfólkið fengið að vera
með, ef þeir gefa sig fram í
tíma. Ferðin verður ekki farin
nema í einsýnu góðu veðri.
Ódýrt kjöt
kemur á markaðinn nú á næst-
unni. Er það dilkakjötið, sem
tilheyrir hinni svokölluðu sum-
arslátrun. Kjötverðlagsnefnd
hefir ákveðið verð á þessu kjöti
— hve lélegt sem það er — kr.
12,00 kg. tíl bænda. Smásalar
mega leggja 13% á þetta grunn-
verð og verður útsöluverð kjöts-
ins því kr. 13,56 eða 10 kg.
skrokkur, sem í réttu lagi á að
vera í þriðja flolád, kr. 135,60.
Eins og áður hefir verið sagt
frá, heflr þessi hækkun á kjötinu
engin áhrif til hækkunar á fram-
færsluvísitöluna. Mjög vísdóm-
lega fyrirkomið!