Alþýðumaðurinn - 11.09.1945, Blaðsíða 1
I
XV. árg. Þriðjudagur 11. Sept. 1945 37. tbl.
Stórhugur
í útgerðarmáium
*
Tveir togarar. Niðursuðuverksmiðja. Kaup
á Krossanesverksmiðjunni, er markið.
Fyrir síðasta bæjarstjórnar-
fundi lá bréf frá Helga Pálssyni,
útgerðarmanni, þar sem hann
skorar á bæjarstjórnina, að beita
sér fyrir kaupum á 2 af þeim
30 togurum, sem ríkisstjórnin er
að láta byggja í Englandi. Var
málinu vísað til útvegsmála-
nefndar og fjárhagsnefndar.
A Laugardagskvöldið héldu
Skipstjórafélagið, Vélstjórafé-
lagið og Sjómannafélagið sam-
eiginlegan fund í Verklvðshús-
inu um útvegsmál. voru eftirfar-
andi tillögur samþykktar.
1. Skipstjórafélag Norðlend-
inga, Vélstjórafél. Akur-
eyrar og Sjómánnafél. Ak-
ureyrar, og almennur sjó-
mannafundur haldinn 9. þ.
m. skora mjög eindregið á
bæjarstjórnina að sækja nú
þegar til ríkisstjórnarinnar
um kaup á tveim togurum
til bæjarins, með það fyrir
augum að selja þá félags-
skap bæjarbúa, sem kynni
, að verða myndaðnr um
kaup skipanna og rekstur,
enda yrði þá tryggt að skip
in yrðu ekki seld úrbænum
Eða að skipin yrðu rekin
fyrir reikning bæjarins, ef
það álitist hagkvæmara.
Þar 'sem fjöldi umsókna
um togara mun þegar hafa
borist ríkisstjórninni, og
hún vera í þann veg að ráð-
stafa skipunum til umsækj-
4 enda, mælast félögin ein-
dregið til þess að bæjar-
stjórnin hafi nú úr helginni
aukafund um þetta mál, til
afgreiðslu á þann hátt sem
áður er óskað.
Samþykkt með öllum atkv.
2. Almennur fundur sjó-
manna, haldinn á Akureyri
9. September að tilhiutan
Skipstjórafélags' Norðlend-
inga, Vélstjórafélags Akur-
eyrar og Sjómannafélags
Akureyrar skorar á lieiðr-
aða bæjarstjorn Akureyrar,
að hún fái því til vegar
komið, ef unnt er, að ríkið
láti byggja og reka niður-
suðu-verksmiðju á Akur-
eyri ásaiút hraðfrystihúsi.
Samþykkt með öllum atkv.
3. Almennur sjómannafundur,
haldinn á Akureyri 9. þ.
m. að tilhlutan Skipstjóra-
félags Norðlendinga, Vél-
stjórafélags Akureyrar og
Sjómannafélags Akureyr-
ar skorar á heiðraða bæj-
arstjórn Akureyrar að hún
láti athuga möguleika fyr-
ir kaupum og rekstri
Krossanesverksmiðjunnar,
ásamt meðfylgjandi jörð,
og ef skilyrði eru með
nolckru móti aðgengilegt,
þá verði ráðist í kaup á
verksmiðjunni ásamt með-
fylgjandi landareign.
Samþykkt með öllum atkv.
Umræður urðu fjörugar um
allar lillögurnar og að þeim
loknum vor.u eftirtaldir menn
kosnir í nefnd til að fylgja mál-
inu fram við bæjarstjórn. —
Frá Skipstjórafélaginu: Guðm.
Guðmundsson. Frá Vélstjórafé-
laginu: Kristján Kristjánsson.
Frá Sjómannafélaginu: Tryggvi
Helgason. Greinargerð fylgdi
tillögunni um kaup á Krossanes-
verksmiðjunni, og er henni
sleppt hér vegna rúmleysis. En
í næsta blaði mun ýtariegar
verða rætt um þetta mál í sam-
bandi við tillögu frá Alþýðu-
flokksfélaginu s. 1. vetur um að
sameina Glerárþorpið bænum,
ásamt landi Krossanesverksmiðj
unnar.
64 þús. tunnur var saltsíldar-
aflinn orðinn s. 1. Laugardag.
Utlit er fyrir að afli haldist á-
fram og skipunum og bátunum
fjölgar, sem stunda þessa veiði.
Almennur kirkju-
fundur
hefir staðið yfir í bænum þessa
dagana. Hófst hann á Sunnudag
og lýkur í dag. Hófst hann kl.
2 á Sunnudag, en kl. 11 f. h.
var guðsþjónusta í kirkjunni.
Fyrir altari þjónuðu biskupinn
yfir Islandi og vígslubiskup hins
forna Hólastóls. Prófessor As-
mundur Guðmundsson predik-
aði. Kirkjan var þélt skipuð
fólki. Fundurinn er haldinn í
liátíðasal Menntaskólans og sóttu
margir bæjarbúar fundinn á
Sunnudaginn. Fundarmenn eru
milli 60 og 70, þar af 30 prest-
ar.
KJÖTVERÐIÐ
LÆKKAR.
Er nú kr. 12,50 í Dausasölu.
Hið nýskipaða Búnaðarráð
hefir setið á rökstólum undan-
farna viku. Hefir það kosið
verðlagsnefnd landbúnaðaraf-
urða. Fyrsta verk hennar varð
að lækka verð á kjöti í sumar-
slátrun. Heildsöluverð ofan í kr.
11,06 kr. og útsöluverð í kr.
12,50 kg. Gildir þetta verð frá
deginum í gær og þar til verð á
kjöti í haustslátiun verður á-
kveðið. Sala hefir verið tregari
á sumarslátraða kjötinu nú en
venjulegt er, enda nóg framboð
á stórgripakjöti á sama tíma.
o—o
Eklci blæs byrlega með sjúkra-
húsbygginguna enn. Þegar búið
er að rífast um og liringla með
staðinn fyrir búsið í fullt ár og
loks búið að ákveða hann —
með harmkvælum þó — stendur
á því að koma sér niður á hvern-
ig húsið á að snúa. Meðan svo
stendur er ekki hægt að leggja
veg að hússtæðinu, sem þó hafði
verið tilvalin haustvinna núna,
og verði nú staða hússins ein-
hverntíma ákveðin þá stendur
vitanlega á veginum!! Aftur á
móti er nú unnið að byggingu
vitfyrringahússins og von um að
það komist upp á næstunni.
Major
Svava Gísladóttir
stjórnandi Hjálpræðishersins á
íslandi, er stödd í bænum. Hún
hefir verið kvödd til starfa er-
lendis,. og er því að kveðja deild
ir hersins áður en hún fer. Ung-
frú Svava hefir verið meðlimur
Hjálpræðishersins frá því hún
var ung stúlka og hefir starfað
af miklum dugnaði, trúmensku
og festu, enda notið álits og til-
trúar yfirmanna sinna eins og
staða hennar í hernum nú sýnir.
Flokkurinn hér heldur kveðju
samkomu fyrir majorinn í sam-
komusal Hersins kl. 9 í kvöld,
þar sem unnendum Hersins gefst
þá um leið tækifæri að hlýða á
kveðjuræðu þessa vinsæla starfs
manns, og árna ungfrúnni farar-
heilla.
Málsskjölin verða birt
Eins og getið er annars staðar
í blaðinu í dag,hefir fógetagjörð
gengið í ofbeldismálunum í
Kaupfélagi Siglfirðinga. Hefir
málareksturinn verið all víðtæk-
ur og margt það afhjúpað í
störfum kommúnista í félaginu,
sem mörgum mönnum mun
þykja all merkilegt. Og áf því
að málsskjölin hafa að geyma
glögga og athyglisverða mynd
af vinnubrögðum kommúnista,
þegar þeir koma grímulausir
fram í dagsljósið, hefir Alþýðu-
blaðið fengið léyfi til að birta
opinberlega þau af málsskjölun-
um, sem veigamest eru, og birt-
ast þaú í blaðinu næstu daga.
En málinu munu kommúnistar
skjóta til Hæstaréttar.