Alþýðumaðurinn - 16.10.1945, Side 1
|^l|)(|íiumaílmricwx
■M—«IJIW ■■'■■■> l||i ' 1 ■ ■ L' ' I»»WI■fc—i—
XV. árg.
Þriðjudaginn 16. októbei 1945.
.Hveriir sviku?1
-o—o-
Það gerðu Framsóknarflokksforsprakkarnir.
Þeir hafa s. 1. 5 ár alltaf verið að „svíkja44 bæði
umbjóðendur sína og allan landslýð.
„Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið hefir frá KEA, hefir kjöt-
salan á sláturhúsi þess numið
15,703 kgr. í haust, en var
48,727 kgr í fyrra. Hefir salan
í ár því ekki orðið nema tœp-
lega þriðjungur þess, sem var
árið 1944. — Samkvæmt fregn-
um, sem blaðið hefir frá öðr-
um kjötsölustöðum, eru hlutföll-
in um sölu svipuð þar.“
Þannig hljóðar lýsing síðasta
„Dags“ á ástandinu, sera skap-
ast hefir við afskifti Framsókn-
arflokksins og hjálparkokka
hans af dýrtíðarmálunum s. 1.
5 ár.
Fyrir tilhlutun Framsóknar-
flokksins og kapphlaup Sjálf-
stæðisfl. og kommúnista við
hann um bændafylgið er komið
svo, að kjötið bændanna er ekki
einungis fyrir löngu óseljanlegt
á erlendum markaði — heldur
á þeim innlenda líka. Og þetta
hefir verið aðal starf Framsókn-
arflokksins s. L 5 ár. Líst fólk-
inu ekki gæfulega á útkomuna?
En látum það nú vera þótt
blaðið komi þarna óþægilega
upp um „strákinn Tuma“, ef það
hefði svo haft vit á að játa mis-
stig flokksins og taka á hann á-
byrgðina í hlutfalli við syndir
hans í dýrtíðarmálunum. En
það er ekki því að heilsa.
Þegar flett er upp annari síðu
„Dags“ er horfið frá raunveru-
leikanum og blaðið fer að reyna
að velta sökinni yfir á aðra, og
brigsla þeim um „svik“, sem
flokkurinn hefir alltaf verið að
svíkja.
í hinni rökföstu grein Br. S.
í Alþýðum. 25. f. m. er sýnt
með tilvitnunum í opinberar
staðreyndir, að 1940 vai að til-
hlutun Framsóknarflokksins og
bændadeildar Sjálfstæðisflokks-
ins rofið það samkomulag, sem
gert var 1939 um bindingu verð-
lags og kaupgjalds. Þetta voru
ófyrirleitin svik við Alþýðufl.
og verklýðsstéttina, framin í
þeim tilgangi að auðga framleið-
endur á kostnað neytendanna.
Þetta hafði þegar þau áhrif, að
1. Des. 1940 var landbúnaðar-
vísitalan orðin 163 stig meðan
kaupgjaldsvísitalan var aðeins
127 stig. Þegar svo var komið
buðu Framsóknarforsprakkarnir
að binda kaupgjald og verðlag
eins og það þá var orðið. Og þó
ekki verðlagið að fullu, því svo-
kallað sumarverð landbúnaðar-
afurða átti að gilda áfram. Þ. e.
bændur áttu að fá að njóta hækk-
ana á verði, sem orsökuðust af
árstíðum, en verkamenn og sjó-
menn máttu ekki fá að njóta
þess, þótt þeim vœri boðið helm-
ingi hærra kaup yfir annatíma
ársins en t. d. að vetrinum. Þetta
var nú sanngirnin í boðum Fram
sóknar, enda var þessu aðeins
kástað fram til að sýnast.
Svona hefir Framsókn haldið
áfram. Fulltrúar hennar í verð-
lagsnefndum landbúnaðaraf-
urða hafa búið til hverja hækkun
ina af annari. Sumar byggðar á
tylliástæðum og sumar á engum
öðrum ástæðum en löngun flokks
ins til að tylla undir bændur en
þrengja kosti neytenda að sama
skapi.
Svo kom gerðardómsdraugur-
inn, sem Framsókn er enn að
syrgja. Þar átti að festa kaup-
gjaldið, en verðlagið ekki nema
að nokkru leyti. Enn áttu bænd-
ur að fá þau fríðindi að njóta
árstíðahækkana. — Verkamenn
ekki.
Og frumvarpið var allt svo
fjandsamlegt í garð neytenda,
að það skapaði þegar uppreist
meðal launafólksins og gaf öfga-
stefnu kommúnista byr undir
báða vængi. Á þessu glapræði á
Framsókn ein sökina. Sjálfstæð-
ið dinglaði með og drap svo
sjálft afkvæmið að sínum parti.
Þarna byrjuðu fantatök Fram-
spknar í dýrtíðarmálunum. Áð-
ur hafði lævísin verið aðalþátt-
urinn.
í sex manna nefndinni gerðu
Framsóknarfulltrúamir kröfurn
ar um að bændur fengju að
minnsta kosti 40% hærri meðal-
laun en verkamenn og sjómenn
höfðu almennt það ár. Þeir út-
veguðu hina makalausu „bú-
reikninga“, sem nefndin var lát-
in leggja til grundvallar störfum
sínum. Búreikninga, sem aldrei
hefir tekist að sanna að væru
réttir. Og ofan á þetta heimtuðu
þeir þúsund krónur, svona upp
á stáss. Og af því að það voru
svikarar, sem þá fóru með um-
boð verkalýðsins, tókst þeim
Framsóknarmönnum þetta her-
bragð. Herbragð, sem að vísu
hefir undanfarið auðgað þá auð-
ugustu í bændastétt, en hefir nú
skapað það ástand, sem „Dagur“
lýsir svo rétt í þeirri klausu,
sem grein þessi hefst á. Kjötið
selst ekki. Neytendurnir geta
ekki keypt það. Dýrtíðin er að
verða óviðráðanleg.
Og svo spyr „Dagur“. Hverjir
,hafa svikið?
Framsókn byrjaði 1940. Og
síðan hefir hún haldið áfram.
Framið hverja skyssuna af ann-
ari til sívaxandi óheilla, jafnt
fyrir bændur sem aðra. Sjálf-
stæðið og kommúnistar hafa
gengið í hrunadansinn hin síðari
árin.
Og enn framdi Framsókn
svívirðilegustu svikin • þegar
hún gekk ekki til stjórnarsam-
vinnunnar með hinum flokkum
Alþingis.
í stað þess að sýna þann
manndóm að taka sér stöðu í
fremstu víglínu, þó ekki væri til
annars en að vinna á réttum
vettvangi á móti þeim „afglöp-
um“, sem Framsóknarblöðin
segja að stjórnin sé alltaf að
fremja, hefir hún kosið sér hlut-
skifti óartarstráksins, er -stend-
álengdar, „steytir kjaft“ og kast-
ar skarni að þeim, sem einhverja
viðleitni sýna til dáða. Þau
þjóðarsvik eru máske þau víð-
tækustu, sem Framsókn enn hef-
ir framið, og var þó ekki á bæt-
andi.
Spyrji svo „Dagur“ áfram
hverjir hafi svikið. Hann ætti
ekki þurfa langt að leita þeirra
seku. Almenningur er þegar far-
inn að þreifa á afleiðingunum
__________________________42. tbl.
EBSaBKSESSSSSSSaSSSSSSMHSEaaEESSSEBE&a
FUNDUR
í Verslunarmannahúsinu Fimtu-
daginn 18. þ. m. kl. 8.30 e. h.
F undarefni:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Vetrarstarfið.
3. Orðið er laust.
Fastlega skorað á félagsfólk-
ið að mæta.
Stjórnin.
Veglegt mentasetnr
Á Laugardaginn var vígt hið
glæsilega menntasetur íslenskra
sjómanna, sjómannaskólahúsið í
Reykjavík. Er þetta ein glæsi-
legasta bygging höfuðstaðarins
og gnæfir yfir bæinn með sigl-
ingavita í turni sínum, sem lýsir
langt á sæ út. Er húsið vegleg
heiðursgjöf til íslenskra sjó-
manna fyrir dugnað þeirra og
frækilegar sæfarir fyr og síðar,
og mun þessi langþráða mennta-
stofnun eiga eftir að vinna þjóð-
inni ómetanlegt gagn og auka
menningu sjómannastéttarinnar
á marga lund. Vígsludaginn
voru settir í húsinu Stýrimanna-
skólinn og Vélskólinn, sem nú
fluttu í hið nýja heimkynni sitt.
Eru báðir skólarnir vel sóttir.
Margt manna var við vígslu
hússins. Þar á meðal Forseti ís-
lands, ríkisstjórn, alþingismenn,
forystumenn sjómannasamtak-
anna, borgarstjóri Reykjavíkur
og fjöldi annars fólks. Telja all-
ir þenna atburð merkan og gleði
efni og líklegan til að boða betri
framtíð og vaxandi gengi hinn-
ar hraustu, íslensku sjómanna-
stéttar.
af iðju Framsóknarforsprakk-
anna — bæði til sveita og sjávar.
Og ekki væri það ólíklegt að
þetta kæmi fram á áberandi hátt
þegar gæðingar hennar fara að
blaðra silkitungu hræsnarans
framan í kjósendur fyrir í hönd
farandi kosningar í vetur og vor.