Alþýðumaðurinn - 16.10.1945, Síða 2
2
ALÞYÐUMAÐURINN
Þriðjudaginn 16. október 1945.
Alþýðumálin og
kommúnistar
Þakka hjartanlega auðsýnda hluttekningu við andlát og jarð-
arför fósturdóttur minnar
Friðriku Jónsdóttur.
Sigurlaug Jónsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
Kristjönu Jónatansdóttur.
Vandamenn.
Innilegt þakklæti til allra þeirra, er auðsýndu mér hjálp og
samúð í veikindum, við andlát og jarðarför mannsins míns
Eðvalds Eðvaldssonar.
Guð launi ykkur öllum.
Akureyri 10. Okt. 1945
Sveinbjörg Brynjólfsdóttir.
í síðustu viku var ekki um
annað meira rætt í stjórnmála-
heiminum en endalok ráðherra-
fundarins í London. Tilefni þess
var það, að mönnum varð fylli-
lega ljóst, hvers vegna fundur-
inn fór út um þúfur, þegar Ern-
est Revin, utanríkisráðherra
Breta, flutti skýrslu sína um
fundinn í síðastliðinni viku. —
Samkvæmt frásögn hans hafði
fundurinn gengið að óskum
framan af, um sum mál náðist
samkomulag og um önnur atriði
var að vísu skoðanamunur, en
allar horfur á, að jafna mætti
ágreininginn. En er líða tók á
fundinn, kom „línan frá
Moskva“, og kom þá í ljós, að
félagi Molotov hafi villst út af
línunni — eins og reyndar hefir
fleiri hent. Hann hafði samið
um atriði, sem Stalin gat ekki
íallist á, eins og trúum þjóni
sæmir, hlýðnaðist hann skipun-
um yfirboðara síns, skipti um
skoðun og kvaðst nú ekki geta
staðið við það, sem hann hafði
áður samið um. Slíka afstöðu
gátu hin stórveldin ekki metið
að verðleikum, héldu fast við
íyrri afstöðu sína og fundinum
lyktaði, án þess að nokkui ár-
angur næðist í því starfi, er hon-
um var ætlað, að koma.skipan á
landamæri og stjórnarfar í
nokkrum Evrópuríkjum.
Enginn undrast það. þótt nlörg
ágreiningsatriði komi fram á
slíkum fundum. Málin, sem um
er rætt, eru bæði viðkvæm og
vandasöm, hagsmunir og hug-
sjónir þjóðanna, sem hlut eiga
að máli ólík. Það, sem bjartsýn-
ir menn hafa treyst á, er vilji
stórveldanna til samninga og
samvinnu. En það verður nú æ
Ijósara, að vilji Rússa til þess að
ráða einir og ryðja kommúnism-
anum braut er miklu, miklu
meiri en vilji þeirra til þess að
komast að sanngjömum samn-
ingum, sem líklegir eru til þess
að koma í veg fyrir styrjaldir
eða að minnsta kosti að fresta
styrjöldum. Það þótti á sínum
tíma tíðindum sæta, þegar Al-
þjóðasamband kommúnista var
lagt niður, og vildu ýmsir telja
það merki um tillátssemi Rússa
við Vesturveldin. Nú er hinsveg-
ar komið í ljós -— eins og reynd-
ar öllum mátti vera ljóst þegar í
stað, að hér var aðeins um her-
bragð að ræða. Sannanir hafa
fengist fyrir því, að kommún-
istar utan Rússlands og flokkar
þeirra fá fyrirskipanir frá
Moskva, alveg eins og Molotov,
og þeir hlýðnast þeim nákvæm-
lega á sama hátt. Sovétstjórnin
skipuleggur þannig innan hvers
þjóðfélags hópa, sem taka skil-
yrðislaust afstöðu með henni,
án þess að skeyta um hagsmuni
síns eigin þjóðfélags, nákvæm-
lega á sama hátt og Hitler skipu-
lagði „fimtu herdeildirnar" á
sínum tíma. Afstaða Rússa við
samningaborðið er því sterk.
En hvað tekur nú við? Bevin
lét þá von í ljós, að samkomu-
lag mundi síðar nást. En hvað
gat hann gert annað? Gat utan-
ríkisráðherra Breta risið upp og
sagt: „Eg er vonlaus um allt
'samkomulag?“ Hver sem skoð-
un hans var, mátti hann ekki á
þessu stigi málsins segja neitt,
sem fór í þá átt. Svartsýnir
menn búast við styrjöld. Um
það skal engu spáð, enda ekki
sýnilegt, að ný styrjöld leysi
vandann, því að stórveldi eins
cg Rússland getur að vísu beðið
ósigur í styrjöld, en því verður
ekki haldið niðri til lengdar. —
Þetta gera Vesturveldin sér ljóst,
svo að búast má við að þau reyni
samningaleiðina til þrautar. En
ef í ljós kemur, að hún reynist
ófær, verður vafalaust gripið til
annara ráða.
x.
Glóðu ljáir,
geirar sungu
eftir pólska rithöfundinn Jan
Karski og æfintýramanninn má
engu síður segja, segir frá leyni-
starfseminni í Póllandi undir
oki nasismans. Lýsir hún hetju-
dáðum, frömdum við hin erfið-
ustu skilyrði og gefur innsýn inn
í hina pólsku, ódrepandi þjóð-
arsál, sem berst upp á líf og
dauða fyrir tilveru sinni. Þetta
er fyrsta bókin um þetta efni,
en fleiri munu á eftir fara, því
víðar en í Póllandi átti þessi
barátta sér stað. En bókin talar
ekki neinu við þetta. Hún talar
sínu máli, ógleymanlegu hverj-
um, sem ann frelsi og lýðræði.
Málið á bókinni, en hún er
þýdd af Kristmundi Bjarnasyni,
er alþýðlegt og viðfeldið, og efn
ið verður alls ekki þanið né
staglsamt, éins og svo oft vill
brenna við hjá þeim, sem fjalla
um svona efni.
Frágangur bókarinnar, sem
er um 250 blaðsíður, er hinn
besti. Bókaútgáfan Norðri h. f.
gaf út.
Hvernig verð
nr kjðtið
Á Laugardaginn gaf Viðskifta
málaráðuneytið út reglugerð
um niðurgreiðslu kjöts. Reglu-
gerðin er ekki komin hingað
prentuð, en Morgunblaðið segir
frá henni sl. Sunnudag á þessa
leið:
,,í reglugerð þessari, sem er í
10 greinum, segir m. a. Niður-
greiðsla þessi fari fram árs-
fjórðungslega, frá 20. Sept. sl.
Enginn fær þó greitt niður fyrir
meira magn en 10 kg. á ársfjórð
iftigi, fyrir sjálfan sig og hvern
mann, sem hann hefir á fram-
færi sínu.
Rétt til niðurgreiðslu hafa
ekki. í fyrsta lagi þeir sem hafa
sauðfjárrækt að atvinnu að ein-
hverju leyti. — í öðru lagi at-
vinnurekendur, sem hafa 3 menn
eða fleiri í þjónustu sinni, og í
þriðja lagi þeir sem fá laun sín
greidd að öllu eða nokkru leyti
í fæði.
Þeir sem eru taldir í fyrstu
tveim liðunum fá ekki heldur
niðurgreiðslu fyrir þá er þeir
hafa á framfæri sínu. Hinsveg-
ar þeir sem taldir eru í þriðja
lið geta fengið niðurgreiðslu fyr
ir þá er þeir hafa á framfæri.
Allir þeir, sem óska þess að
fá endurgreiddan úr ríkissjóði
hluta af kjötverði, og til þess
hafa rétt, skulu afhenda hrepp-
stjóra eða lögreglustjóra í Rvík
tollstjóra kröfu um það á þar til
gerðum eyðublöðum.
Þar skal þetta tekið fram:
Nafn, staða og heimilisfang um-
sækjenda. Yfirlýsing um kjöt-
kaup hans á tímabilinu er hann
óskar endurgreiðslu fyrir, í
fyrsta sinn tímabilið 20. Sept.
til 20. Des. 1945. Drengskapar-
yfiirlýsing um það, að hann hafi
notað kjöt þetta til heimilisins
og um það, hvert hafi verið inn-
kaupsverð þess. Ef um er að
ræða menn sem keypt hafa til-
búinn mat, annað hvort í mat-
sölu, skólum eða öðrum stofn-
unum, skulu þeir í stað þess gefa
yfirlýsingu um það að þeir hafi
keypt tilbúinn mat, þar á meðal
kjöt, hvar þeir hafi keypt hann
og hvað þeir hafi greitt fyrir
hann.
Hafi menn fengið ókeypis
fæði t. d. í foreldrahúsum eða
hjá ættingjum, skulu þeir gefa
þeim er þeir hafa fengið mat-
inn hjá yfirlýsingu um það, og
jafnframt að þeir afsali sér nið-
urgreiðslu til þeirra. Er þá við-
takanda yfirlýsingarinnar heim-
ilt að telja þá framfærða af sér í
þessum skilningi, enda láti þeir
yfirlýsinguna fylgja kröfu
sinni.“
Alþýðum. hefir þótt rétt að
birta þetta nú þegar, vegna þess
að mörgum leikur forvitni á að
kynnast þessu máli strax.
Helgi Hannesson,
sem undanfarið hefir verið fram
kvæmdastjóri Alþýðuflokksins
ogorðið mjögvinsæll í því starfi,
hefir nú horfið að sínu fyrra
starfi, en hann var áður og verð-
ur framvegis kennari á ísafirði.
Hver verður eftirmaður hans í
hinu vandasama starfi hjá flokkn
um er ekki fullráðið enn. Helgi
vann starf sitt hjá flokknum með
ágætum og er sæti hans vand-
skipað. Fylgja honum þakkir
allra flokksmanna fyrir eins-
dæma lipurð í starfi og glæsi-
leik í framkomu hvar sem hann
mætti fyrir flokksins hönd.
Kaffiskömmtun hefir verið
afnumin. Geta menn því hér
eftir keypt kaffi án seðlaafhend
ingar. Samtímis hefir verið hert
á sykurkaupahömlunum. Mega
verslanir ekki afhenda sykur
hraðar en eftir tölusettum sykur-
miðum.
niður?