Alþýðumaðurinn - 23.10.1945, Page 1
ur uux
XV. árg. • Þriðjudaginn 23. Október 1945 43. tbl.
Nýju fræðslulögin
Meiri hluti mentamálanefnd-
ar neðri deildar Alþingis flytur
frumvarp til laga um skólakerfi
og frœðsluskyldu, sem samið er
af milliþinganefnd í skólamál-
um, er skipuð var af Einari Arn-
órssyni fyrrverandi menntamála
ráðherra á sumarmánuðum árið
1943 og falið var „að rannsaka
kennslu- og uppeldismál þjóðar-
innar og gera tillögur um skipun
þeirra.“
Frumvarp þetta er í tíu grein-
um og fer það hér á eftir í heild.
Fylgir því ýtarleg greinargerð
milliþinganefndarinnar og yfir-
lit yfir skólakerfi Danmerkur,
Noregs, Svíþjóðar og Englands.
1. gr. Allir skólar, þeir sem
kostaðir eru eða styrktir af al-
mannafé, mynda samfellt skóla-
kerfi.
2. gr. Skólakerfið skiptist í
þessi fjögur stig: 1. barna-
fræðslustig, 2. gagnfræðastig, 3.
menntaskóla- og sérskólastig, 4.
háskólastig.
A barnafræðslustiginu eru
barnaskólar. A gagnfræðastig-
inu eru unglingaskólar, miðskól-
ar og gagnfræðaskólar. A menta
skóla og sérskólastiginu eru
menntaskólar og sérskólar. A
háskólastiginu er háskóli.
3. gr. Barnaskólar eru fyrir
börn á aldrinum 7—13 ára. —
Barnafræ.ðslunni lýkur með
barnaprófi.
4. gr. Unglingaskólar, mið-
skólar og gagnfræðaskólar taka
þegar við að loknu barnaprófi.
Þeir greinast í tvenns konar
deildir, bóknámsdeild og verk-
námsdeild, eftir því, á hvort
námið er lögð meiri áhersla.
Unglingaskólarnir eru tveggja
ára skólar. Nám í þeim jafn-
gildir námi í tveimur neðstu
bekkjum gagnfræðaskóla. Því
lýkur með unglingaprófi, og
veitir það rétt til framhalds-
náms í miðskólum og gagnfræða
skólum.
Miðskólar eru þriggja ára
skólar. Nám í þeim jafngildir
námi í þremur neðstu bekkjum
gagnfræðaskóla. Því lýkur með
landsprófi, miðskólaprófi. Það
veitir rétt til inngöngu í sérskóla
og menntaskóla með þeim tak-
mörkunum, er kunna að verða
settar í lögum þeirra og reglu-
gerðum. Þó veitir aðeins próf
úr bóknámsdeild rétt til inn-
göngu í menntaskóla og aðra
sambærilega skóla.
Gagnfræðaskólar eru fjögurra
ára skólar. Þó er fræðslumála-
stjórn heimilt að leyfa gagn-
fræðaskólum í sveitum að veita
aðeins tveggja ára fræðslu að
loknu unglingaprófi. Nemendur
gagnfræðaskóla ganga eftir 2
eða 3 ár undir sama próf sem
nemendur unglingaskóla og mið
skóla. Burtfararpróf úr gagn-
fræðsaskóla,- gagnfræðapróf,
veitir rétt til náms í þeim sér-
skólum, er þess prófs krefjast,
og til starfs við ýmsar opinberar
stofnanir.
5. gr. Menntaskólar skulu
vera samfeldir fjögurra ára
skólar og greinast í deildir eftir
því, sem þörf krefur. Burtfarar-
próf þaðan, stúdentspróf, veitir
rétt til háskólanáms.
Um sérskóla segir í lögum
þeirra og reglugerðum hvers um
sig.
6. gr. Til inngöngu í háskóla
þarf stúdentspróf. Þó getur há-
skóladeild krafist viðbótar-
prófa, ef þörf gerist. Háskólinn
greinist í eins margar deildir og
þurfa þykir, eftir því sem ákveð
ið verður í lögum hans og reglu-
gerð.
7. gr. Kennsla er veitt ókeyp-
is í öllum skólum, sem kostaðir
eru að meiri hluta af almanna-
fé.
8. gr. 011 börn og unglingar
eru fræðsluskyldir á aldrinum
7—15 ára og skulu ljúka barna
prófi og unglingaprófi, svo fram
arlega, sem þau hafa til þess
heilsu og þroska. Heimilt er þó
sveitarfélögum með samþykki
fræðslumálastjórnar að hækka
fræðsluskyldualdur til 16 ára.
9. gr. Nú getur nemandi ekki
stundað skyldunám sökum fjár-
skorts, og skal þá veita styrk til
þess af almannafé.
10. gr. Nánari ákvæði um
framkvæmd á fræðslu, skipan
skóla hvers stigs og fjárfram-
lög ríkis og sveitarfélaga til
skólahaldsins skulu sett í lögum
og reglugerðum fyrir skóla
hvers stigs.
HÖRMULEGT SLYS
Maður bíður bana af skoti
uppi í skólaseli Gagnfræða-
skólans.
Á Sunnudagsmorguninn lögðu
tveir unglingspiltar héðan úr
bænum upp til rjúpnaveiða á
Glerárdal. Piltar þessir voru
Pétur Hansen, Hafnarstr. 86 og
Jóhann Hauksson Brekkug. 21.
Þeir komu við í skólaseli Gagn-
fræðaskólans í Hlíðarfjalli og
áðu þar um stund, en er þeir
voru að leggja upp aftur varð
Jóhann fyrr ferðbúinn og var
kominn spölkorn frá selinu er
hann heyrði skothvell þaðan.
Hljóp hann til og fann þá Pétur
liggjandi á gólfinu og byssu
hans við hlið hans. Var Pétur
hreyfingarlaus og mun hafa dá-
ið samstundis. Hafði skotið far-
ið í gegnum höfuð hans. Jóhann
hljóp þegar til bæjarins og gerði
lögreglunni aðvart. Fór hún á
vettvang, ásamt lækni og fleiri
mönnum. Var lík Péturs flutt til
bæjarins.
Jóhann segir Pétur hafa verið
í besta skapi eins og venjulega,
og engar orsakir vita til þessa
sviplega slyss.
Pétur var 18 ára, myndar pilt-
ur vel látinn. Hann bjó með
móður sinni, Áslaugu Guð-
mundsdóttur. Er þungt böl að
henni kveðið við þenna sorglega
atburð.
Frá bæjarstjórn.
Það skeður margt einkennilegt
óf bæjarstjórnarfundum og ekki
allt bænum til sóma eða heilla.
Síðasti bæjarstjórnarfundur var
þessa ágætt dæmi. Fyrst og
fremst var samþykkt að leyfa
byggingu olíugeyma ofan við
Shell-geymana á Oddeyrartanga.
Með þessu áframhaldi og með
því að gera öllum starfandi olíu-
félögum í landinu og væntanleg-
um olíufélögum jafnt úndir
höfði, ættum við með tímanum
að geta fengið olíu-geyma og
bensín-geymslur alla leið neðan
eyrina og upp í miðbæ.
í öðru lagi samþykkti bæjar-
stjórn að ætla væntanlegum
barnaskóla í útbænum pláss
undir nyrðri brekkunni, en sá
staður er sá óálitlegasti og ó-
heppilegasti, sem hægt var að
finna á Oddeyrinni.
Fundur
í Verslunarmannahúsinu Mið-
vikudaginn 24. Okt. — annað
kvöld — og hefst kl. 8,30 e. h.
FUNDAREFNI:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Vetrarstarfið (framh.r.).
3. Kosning starfsnefnda.
4. Orðið er laust (fréttir).
Fastlega skorað á félagsfólkið
að mæta vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Verklýðsmál
í síðustu viku sjofnuðu járn-
iðnaðarmenn félagsskap með
sér. Voru stofnendur 24. Stjórn
félagsins skipa:
Albert Sölvason, form.
Stefán Stefánsson (yngri) ritari
Hallur Helgason, gjaldkeri.
Er vel að járniðnaðarmenn
hafa bundist samtökum um hags-
munamál sín. Mönnum í þessari
starfsgrein fjölgar óðum. Um
leið myndast nauðsynin til sam-
takanna.
Sjómannaverkfallinu syðra
heldur áfram. Stjórn Vinnuveit-
endafélags íslands bar brigður
á að löglega hefði verið til verk-
fallsins stofnað, þar sem aðeins
hlutaðeigandi sjómenn höfðu
greitt atkvæði um vinnustöðvun-
ina. Er málið í úrskurði, en Sjó-
mannafélag Reykjavíkur lét fyr-
ir helgina fram fara allsherjar
atkvæðagreiðslu meðal sjómanna
til fullgildingar fyrri atkvæða-
greiðslunni, að því viðbættu að
leyfilegt væri sjómönnum, að
hefja samúðarverkfall til stuðn-
ings sjómönnum hjá Ríkisskip
og Eimskipafélaginu. 178 sjó-
menn, af 182 greiddu atkvæði
með lögmæti verkfallsins og
leyfi til samúðarverkfalls.
í þriðja lagi samþykkti bæjar-
stjórn að leggja veginn upp að
væntanlegum spítala yfir Lysti-
garðinn. Fyrirfannst ekkert
pláss heim að þessari, þegar
landsfrægu byggingu. Verður
um þetta o. fl. rætt nánar í næsta
blaði.