Alþýðumaðurinn - 30.10.1945, Síða 1
^lþtjfiumaðuma
XV. árg.Þriðjudaginn 30. Október 1945 4,4. tbl.
Vetur heilsar.
Raímaps-
skorturinn.
Þótt ekki þurfi að kvarta und-
an veðurvonsku enn sem komið
er, hefir snjófölið, sem féll um
fyrstu vetrarhelgina, minnt okk-
ur á, að ekki munum við lengur
búa við blíðuatlot liins besta
sumars, sem yfir mestan hluta
landsins hefir komið í minni
elstu manna.
Er elcki ófíklegt að hugur
margra hafi um þessa helgi
hvarflað til ýmissa atvika þessa
einstæða sumars, hvort sem
þakklætið og verðug ánægja lief-
ir þar fylgt eða ekki.
Hvað komu vetrar snertir
stöndum við Islendingar svo vel
að vígi móts við aðrar þjóðir, að
við mættum þakka það af alhug,
ef við annars værum haldnir af
þeirri kennd í svo ríkum mæli,
sem vera ber. Við höfum í land-
inu gnægð matvæla, hitagjafa
og annað það, sem við þurfum
til að láta okkur líða vel í vetur.
Og þótt þessum gæðurn sé, eins
og ætíð, misjafnlega skipt milli
einstaklinganna, ætli að vera
anðvelt að jafna það svo að allir
fái að búa við öryggi og engir
þurfi að kvíða.
En það verður ekki sagt hið
sama urn aðrar þjóðir álfunnar.
Allar þjóðir fögnuðu styrjaldar-
lokum s. 1. sumar, en eftirköst
þeirrar vitfyrringar og mann-
vonsku, sem hrindir af stað og
rekur styrjaldir, verða ekki
þurrkaðar út á skömmum tíma
hvað þá fáum mánuðum. Vafa-
laust bíður allra þjóða á megin-
landinu erfiður vetur. Þó eru
þær misjafnlega á vegi staddar.
Sumar munu berjast af. Annara
bíður vetur hörmunga, hungur-
dauða, kulda og annara plága.
Miljónum saman reikar fólk-
ið um húsnæðislaust, klæðlaust,
hungrað, vonláust og móðlaust.
Þótt allt sé gert, sem utanað-
komand hjálparhendur geta ork-
að til að draga úr neyð þeirra
þjóða, sem styrjöldin lék harð-
ast, nær það skannnt. í tryllingi
hildarleiksins hefir allt það,
sem margar kynslóðir hafa eytt
lífi sínu til að byggja upp og
skapa mönnum til farsældar,
verið lagt í rústir — rústir sem
miljónirnar reyka nú um og
bíða fárs og dauða. Sigri hefir
verið fagnað. Stríðsglæpamenn
eru teknir af lífi, en hörmung-
arnar halda áfram að þjá fólk-
ið.
Víst væri það þess vert að
hver og einn gæfi sér tíma til
að athuga þessi mál ef ske
kynni að fólkið kæmist að þeirri
niðurstöðu, að íslenska þjóðin
hefir mikið að þakka, mikið að
gleðjast yfir heima fyrir. Mikið
að læra — einkum þeir, sem
hrifist hafa með djöfulæði
stríðsins og jafnvel sakna þess
að það er á enda. Því miður er
það fólk til — andlegir sjúkl-
ingar, sem hernaðaræðið hefir
sýkt og fengið til að gleyma því
Fundur Alþýðuflokksfélags-
ins s. I. Miðvikudag var vel sótt-
ur og hinn fjörugasti. Þrír nýir
félagar gengu inn. Hafa þá fé-
laginu bætst 21 nýir félagar á
þessu ári, og munu margir
koma í hópinn á næstunni. Rætt
var um vetrarstarfið. Teknar á-
kvarðanir og kosnar nefndir til
að sjá um hin ýmsu verkefni.
Eru það fyrst og fremst þæjar-
stjórnarkosnihgarnar eftir næsta
nýár, sem krefjast mikils starfs
og svo félagslífið í vetur. Lýsti
sér mikill áhugi á fundinum að
efla starf félagsins sem mest og
búa það nndir þau átök, sem
bíða þess.
Síðast voru atvinnumál og at-
vinnuskortur í vetur tekið til
umiæðu. Skýrði framkvæmda-
stjóri Vinnumiðlunarskrifstof-
unnar frá því, að nú þegar væri
atvinnuleysingjahópurinn orðinn
ískyggilega stór, þrátt fyrir góða
tíð og góð skilyrði til atvinnu.
Bar hann fram eftirfarandi á-
lyktun, sem, að loknum umræð-
um, var samþykkt í einu hljóði:
„Fundur, haldinn í Alþýðu-
flokksfélagi Akureyrar 24. Okt.
1945, telur brýna þörf á, að
hvers virði friður og farsæld er
mannkyninu. Ótrúlegt fyrir-
brigði, en þó staðreynd.
Og veturinn er kominn. Hann
hefir sína ánægju og verðmæti
að færa — okkur hér, sem erum
hamingjunnar börn í samanburði
við aðrar þjóðir, sem við heyr-
um frá daglega. Skólarnir fyll-
ast af lífsglöðu æskufólki. —
Vetraríþróttirnar eru að hefjast.
Sarnlíf, samstarf bíður fólksins.
Hér kvíðir enginn vetri. Gerir
fólkið sér þetta ljóst? Veitir
það því alhygli, að það er að
ganga frá unaði einsdæma fag-
urs sumars inn í glæsilönd ís-
lensks vetrar, meðan aðrar þjóð-
ir þjást.
Höfum við ekki fulla ástæðu
til að bjóða hver öðrum gle'ði-
legan vetur?
ráðstafnir séu gjörðar til þess
að halda uppi vetrarvinnu handa
verkamönnum og sjómönnum,
með tilliti til þess atvinnubrests
og slæmrar afkomu margs fólks,
sem orsakast hefir af síldarleys-
inu í sumar, og vaxandi dýrtíð
í landinu. Skorar fundurinn á
bæjarstjórn, að taka þetta mál
föstum tökum og bendir á, að
bygging skjólgarðsins fyrir hin
fyrirhuguðu hafnarmannvirki á
Oddeyrartanga sé tilvalin vetr-
arvinna, um leið og flýtt er fyrir
því að þessi aðkallandi atvinnu-
stöð komist upp.“
•—»
í s. 1. viku var byrjað að
brjóta veginn upp að hinu fyrir-
hugaða sjúkrahúsi. Hefir stór-
virk jarðýta verið þar að verki
og hefir landbrotið unnist greið-
lega. Er nú vegarlagningin hafin
og er vonapdi áð tíð vinnis't til
að ganga frá honum í haust.
Ofsagt var það í síðasta blaði,
að vegurinn liggi gegnutn Lysti-
garðinn. Hann tekur aðeins dá-
lítið born af garðinum, og í sára-
bætur mun garðurinn fá lands-
viðauka til suðurs í Eyrarlands-
túnið.
er þegar farinn að verða all á-
berandi í sumum hverfum bæj-
ariris. Kemur þetta sér mjög illa
þar sem þeim fjölgar óðum, sem
taka ráfmagnið til suðu og upp-
hitunar, einkum í nýjum hús-
um.
Vegna fyrirspurnar til blaðs-
ins um hvað Valdi þessu hörni-
ungarástandi þegar á haustnótt-
um, spurðist það fyrir hjá raf-
veitustjóra um það hvort von
væri nokkurra bóta á þessu á
næstunni og af hverju rafmagns-
skorturinn stafaði. Taldi hann
þtta stafa af tvennu. Fyrst af
því, að álagið væri orðið svo
mikið í sumum hverfum bæjar-
ins, að leiðslurnar þar nægðu
ekki lil að flytja rafmagnið. "Én
ekki hefði ennþá tekist að fá
erlendis frá nægilegt efni og á-
höld til að bæta úr þessu. Þó
taldi hann, að með Lagarfossi
nú væri eitthvað af efni, sem
vantað hefði, en dráttur myndi
verða á að fá það hingað vegna
stöðvunar flutningaskipanna. í
öðru lagi upplýsti rafveitustjóri,
að ekki hefði enn tekist að fá
framleitt eins mikið afl með
nýju vélasamstæðunni í Laxár-
stöðinni og áætlað sé. Munar
þetla töluvert miklu og kemur
sér mjög bagalega sem von er.
Það mun því ekki að vænta
verulegra bóta á núverandi á-
standi fyrst um sinn. Raunveru-
leikinn er sá, að hvorki Laxár-
stöðin né bæjarkerfið nægir Ak-
ureyri einni. Það er því engin
furða þó það láti hlægilega í
eyrum Akureyrarbúa, þegar
þing og stjórn eru að gera á-
ætlanir um að lýsa og hita stór-
an hluta Norðurlands með þess-
ari rafstöð.
Útvarpið boðar hækkun á út-
varpsárgjaldi næsta ár upp í
100 krónur. Er þessi hækkun
sett í samband við fyrirhugaða
byggingu útvarpshallar, sem á
að verða stór og dýr.
★
Aðalfundur Iþróttafél. Þór er
ákveðinn á morgun — Miðviku-
dag — í Rotarisal K. E. A. og
hefst kl. 8. — Venjuleg aðal-
fundarstörf o. fl. Félagar! Mæt-
ið margir og stundvíslega!
Fundur félagsins s. 1. Miðvikudag var vel sótt-
ur. 3 nýir félagar gengu inn. Fundurinn ræddi
félagsmál og atvinnumál.