Alþýðumaðurinn - 04.12.1945, Side 1
XV. árg.
Þriðjudaginn 4. Desember 1945
49. tbl.
Farmannasamningarnir
Það var missögn, sem stafaði
af misheyrn í síma, sem sagt var
í síðasta blaði, að kaup háseta
í siglingaflotanum hefði lækkað.
Fasta kaupið hœkkaði all-veru-
lega frá því sem áður var. Aft-
ur á móti lækkaði áhættuþókn-
unin lítilsháttar nú þegar og fer
svo lækkandi þar til h'ún fellur
niður.
Hér fara á eftir nokkur aðal-
ákvæði samninganna:
1. gr. — Mánaðarkaup skal
vera:
Timburmanns, bátsmanns eða
besta manns........ kr. 492,00
Fullgilds háseta .. — 440.00
Viðvanings .......... — 286,00
Óvanings ............ — 186,00
Til þess að geta hlotið þetta
kaup, þurfa hásetar að bafa
siglt á verslunarskipum, sem hér
segir:
a) Bátsmaður eða besti mað-
ur 36 mánuði: Þar af 12 mán-
uði sem fullgildur háseli.
b) Fullgildur háseti minnst
12 mánuði sem viðvaningur.
c) Timburmaður minnst 12
mánuði sem fullgildur háseti.
A allt mánaðarkaup greiðist
dýrtíðaruppbót miðuð við verð-
lagsvísitölu kauplagsnefndar
eins og hún hefir verið ákveðin
í byrjun hvers mánaðar.
2. gr. — Yfirvinna borgist
þannig:
a. ) Þegar sjóvökur eru staðn-
ar greiðist kr. 1,58 fyrir hverja
byrjaða hálfa klukkustund.
b. ) Þegar sjóvökum er slitið
greiðist kr. 1,84 fyrir byrjaða
hálfa klst. frá kl. 17 til kl. 20
og kr. 2,45 fyrir byrjaða hálfa
klst. frá kl. 20 til kl. 7l/2 og á
helgum dögum. — Stoppitarnir
við land á helgum dögum greið-
ist með eftirvinnukaupi.
Yfirvinnukaupið greiðist með
verðlagsuppbót skv. ákvæðum
1. gr.
Auk lielgidaga þjóðkirkjunn-
ar teljast 1. Maí, 17. Júní og
Sumardagurinn fyrsti helgir dag
ar.
5. gr. — A skipum yfir 500
rúmlestir skulu sjóvökur vera
þrískiptar (átta tíma vinna á
sólarhring) og ekki minna en 2
menn á vöku, enda sé um lokað
stýrishús að ræða.
A skipum, 500 rúmlestir og
minni, skulu sjóvökur vera þrí-
skiftar eða tvískiftar, eftir því
sem yfirmenn skipsins ákveða.
Þegar vökur eru tvískiftar, greið
ist háseta 20,00 kr. aukaþóknun
á mánuði auk verðlagsupp])ótar.
14. gr. — Til 1. maí 1946 ska]
greiða liásetum í stríðsáhætlu-
þóknun kr. 360,00 á mánuði á
strandferðaskipum ríkissjóðs í
strandferðum, en kr. 480,00 á
mánuði á skipum þessum í milli-
landasiglingum og skipum Eim-
skipafélags íslands. Sigli skip
Eimskipafélags Islands í strand-
siglingum samfelt í einn mánuð
eða meir, greiðist kr. 360,00 á
mánuði til l.-Maí 1946.
Frá þessum tíma til 1. Maí
1947 skal áhættuþóknunin á
sama hátt vera kr. 180,00 á
strandferðaskipum og kr. 240,00
á millilandaskipum, en fellur þá
niður.
Hér hefir verið getið þess í
samningunum, sem deila stóð
um. Á allt ákveðið kaup greið-
ist dýrtíðaruppbót eins og hún
er á hverjum tíma.
Kaup háseta var áður kr.
329,00 á mánuði og annað kaup
eftir því. Er því hér um all-veru-
lega grunnkaupshækkun að
ræða, enda rnestur gróði að því,
því grunnkaupið stendur áfram
þótt vísitala lækki og áhættu-
þóknunin hverfi úr sögunni.
Að undirlagi Alþýðusam-
bandsins, reyndu kommúnistar
að spilla einingu sjómanna eftir
mætti. Vildi Alþýðusambands-
stjórnin fá samningamálin í sín-
ar hendur, en sjómenn vantreystu
henni að fara farsællega með
þau mál, enda sýndu niðurstöð-
urnar að sjómenn eru einfærir
að fara með hagsnuinamál sín
og þarflaust er að gera þau að
hrossakaupamynt kommúnist-
iskra stjórnmálabraskara.
Trésmíðaverksmiðjan „Akur“
í Reykjavík brann til kaldra
kola s. 1. Sunnudagsnótt. Einnig
kviknaði í tveinnxr öðrum hús-
um þar í borginni um helgina.
*
Mishermi þar það í sxðasta
blaði, að dr. Jón Helgason hafi
þýtt bókina: Vor um alla veröld.
Þýðandinn er Jón Helgason,
blaðamaður við Tímann.
Ur stefnuskrá Alþýðuflokksins á Akureyri
í bæjarmálum.
Flokkurinn beitir sér fyrir o3 hrinda of sfo3 og koma í framkvæmd, eftir
þvi sem honn hefir styrkleika til, þessum atriSum:
í húsnæðismálum:
a) Að bærinn láti byggja hentugar íbúðir handa þeinx bæjar-
búum, sem ekki eru færir um það sjálfir, en búa í óviðunandi
húsnæði eða eru húsnæðislausir, og gangi að öðru jöfnu fjöl-
skyldur nxeð börix fyrir við úthlutun íbúðanna.
Jafnframt sé ríkt gengið eftir því, að Akureyri njóti sömu
framlaga af hálfu ríkisins til bygginganna eins og Reykjavík
eða aðrir lxæir kunna að fá.
b) Að mönnum sé gert kleift að eignast íbúðir, senx Bygginga-
félag Akureyrar reisir, á þann liátt, að bærinn greiði eða láni
efnalitlum mönnunx útborgun þá, seixx greiða þarf samkv. lög-
um Byggingasjóðs verkaxxiaixiia.
c) Að bærinn hlutist til um það eftir frenxsta megni, að bygg-
ingarefni það, er flytst til kaupstaðarins verði eingöngu varið
til byggingar íbúðaihúsa, íxieðan húsnæðiseklan er, eða annara
þeirra bygginga, sem varða almenningsþörf.
d) Að bærinn annist kaup alls þess byggingarefnis, sem liann
þarf til eigin framkvæmda og láti efnalitlum bæjarbúum, sem af
eigin rammleik reyna að koma sér upp íbúðum, í té byggingar-
efni við kostnaðarverði.
e) Að bærinn reki steinsteypuverkstæði, sem steypi alla steina,
auk þess sem þar séu steyptir steinar, sem bærinn notar til lxygg-
ingafiamkvæmda sinna eða selur kostnaðaivei'ði ti] efnalítilla
húsbyggjenda.
f) Að bærinn vinni tafarlaust að því að útvega þeim húseig-
endum hagkvæm, vaxtalítil lán, sem byggt liafa á núverandi verð-
bólgutímum, en gela ekki lialdið þessari eign sinni, nenxa slík
hjálp komi til.
Telur flokkurinn þessar leiðir skynsamlegri en þær, sem bær-
inn hefir liingað til farið, að kaupa gömul og léleg timburhús
háu verði og kosta æniu fé til að útbúa í þeinx íbúðii', sem þó
aldrei verða nema til bráðabirgða, auk þeirrar eldhættu, sem
fylgir þessunx húsum.
Sjálfsagt ei', að ítai'leg í'annsókxx fari fi'am á því, hvað hús-
næðisþörfin er mikil, og verði fi'amkvæmdir miðaðar við þá
þvitneskju, er þannig fæst.
m
Wl
y
| Kosningaskrifstofa
1
'//1
1
I
I
i
i
I
I
1
I
I
| jverður fyrst um sinn í Strandgötu 35 — gengið inn að austan —i
|— og verður opin kl. 6—7 síðdegis. Sími auglýstur síðar.
U Kjörskrá liggur frammi og ætti fólk að atliuga það sem|
ýfyrst, hvort nafn þess hefir ekki fallið út af skránni.
Fólk, sem hefir flutt í bæinn á þessu ári, gefi sig þegarp
iram svo að hægt sé að klaga það inn á skrána í tínxa. Utaixbæjar-L!
_________________É
■ jatkvæði sínu í tæka tíð til heimakjörstaðar.
^fólki, sem dvelur hér um stundarsakir, veitt aðstoð til að koma®
/atkvæði sínu í tæka tíð til heimakjörstaðar. S
/Á (w
A Alþýðuflokksfólk og aðrir styðjendur flokksins, mætið seml
|| - k-v
; (fyrst á skrifstofunni og gefið upplýsingar, þar á meðal um fólk,||
pnýflutt í bæinn, fólk sem verður fjarverandi á kjöi'degi o. fl. *
| Takið þátt í starfixxu strax.
n Skipulagsnefndin.
|
|
1
1