Alþýðumaðurinn - 11.12.1945, Page 1
ftlþíjíiumaíiumo.
XV.
arg.
Þriðjudaginn ll.Desember 1945
50. tbl.
Heimavistarhúsið við mennta-
skólann verður reist.
i
íi
I
B
1
I
I
5
I
8
I
I
I
I
|
I
|
|
|
|
|
l'/,
r stefnuskrá Alþýðuflokksins á Akureyri
í bæjarmálum.
Flokkurinn beitir sér fyrir aS hrinda af stað og koma í framkvæmd, eftir
því sem hann hefir styrkleika til, þessum atriðum:
3. MENNINGARMÁLUM:
a) Að hafist verði handa þegar á næsta ári urn bygg-
ingu væntanlegs barnaskóla á Oddeyrinni, þar sem barna-
skólahús bæjarins er orðið svo þéttsetið, að ekki verður
lengur við' unað,
b) Að hlutast verði til um það, að bærinn fái einkarétt
til reksturs kvikmyndahúss og taki hann síðan í sínar hendur
c) Að byggt verði ráðhús og það athugað, hvort heppi-
legt sé að byggja kvikmynda- og leikhús í sambandi við það.
d) Að reistar verði tafarlaust klefar við útisundlaug
bæjarins með fullkomnum böðum, og ennfremur sé reist
yfirbyggð kennslulaug, svo framarlega, sem sundkennsla
skólanna á að fara fram að vetrinum.
e) Að íþrótiasvæði bæjarins verði fullgert hið bráð-
asta, og leikvellir handa börnum verði gerðir á hæfilega
mörgum stöðum í bænum og séð fyrir vörslu á þeim, eftir
því sem þörf krefur.
f) Að bærinn komi upp á hentugum stað dagheimili
fyrir börn.
g) Að byggt verði elliheimili í bænum svo fljótt sem
kostur er á. ,
h) Að sorphreinsunarmálum bæjarins, sem nú eru í
algeru áfremdarástandi, verði komið í viðunandi horf.
i) Að byggt verði tafarlaust almenningssalerni í bænum
j) Að bifreiðastæði verði þegar skipulögð þannig, að
fullt tillit sé tekið til hagsmuna bifreiðastjóra, án þess að
umferðaröryggi sé rýrt.
k) Að lögð sé fyllsta alúð við fegrun bæjarins.
l) Að Matthíasarbókhlaðan verði tafarlaust reist, svo
að bærinn verði firrtur þeirri vanvirðu, að dýrmætt bóka-
safn eyðileggist í höndum hans sökum óhæfs húsnæðis.
Auk þeirra mála, sem hér eru talin, vill flokkurinn
vinna að framgangi allra þeirra mála annarra, sem fram
kunna að koma og 'hann telur stefna til almenningsheilla í
bænum.
1
i
I
1
I
8
y
1
y
l
I
l
1
l
1
8
y
i
m
Mörgum bæjarbúum leikur
sennilega forvitni á að vita,
hverjar horfur eru á, að nýtt
heimavistarhús við Menntaskól-
ann verði reist. Alþýðumaður-
inn þykist geta fullyrt, að nú sé
ekki lengur vafi á, að svo verði,
og sennilegt er, að húsgerðin
hefjist á sumri komanda.
Unnið hefir verið dyggilega
að málinu. — Skólameistari
Menntaskólans skrifaði 2. Des.
Alþingi nýtt bréf um málið, og
fylgdi því annað bréf frá nátt-
úrufræðikennara skólans, Stein-
dóri Steindórssyni. Segir svo í
bréfi skólameistara:
„Mér hefir verið hermt, að
sumir hafi spurt, því ég hafi
ekki flutt þetta mál fyrr, þar
sem eldhætta liafi sífellt vofað
yfir skólahúsinu. Svar við slíku
felst í bréfi skólaráðsmanns, þar
sem sagt er, að ekki sé hægt að
treysta örugglega mælitækjum
og skoðunum rafveitunnar og
eftirlitsmanna ríkisins, hversu
samvizkusamlega sem þær eru
gerðar eða af hendi leystar.“
Og enn segir í bréfinu: „Eg
skal geta þess, að árið 1941
hafði breska setuliðið í hyggju
að hertaka skólann til sinna
þarfa. Eg þverneitaði að af-
henda setuliðinu skólann. Hinu
gat ég eigi ráðið, hvort hann yrði
hertekinn eður eigi.
Kvaðst herstjórnin neyðast til
að hernema skólahúsið, þá er
skólastörfum væri lokið 1941.
Eg skrifaði þá herstjórninni
bréf, þar sem ég þversynjaði að
heimila henni húsið og bar fyrir
mig eldhættuna. Ef skólinn —
sem væri í röð hinna fjölsóttustu
skóla landsins — brynni, vrði
afleiðingin sú, að skólinn gæti
ekki starfað um nokkurra ára
skeið. Það er enn hægt að leiða
að því ærin vitni, að herstjórn-
in beygði sig fyrir þessari rök-
semd og kvaðst ekki vilja taka á
sig þá ábyrgð, er sökum eld-
hættu fylgdi því, að skólinn yrði
hertekinn, og hvarf frá hernámi
hans.
Eg treysti því, að hið háa Al-
þingi sýni hér, að það hefir í
þessu efni eigi minni ábyrgðar-
tilfinningu en herstjórnin breska
hafði sumarið 1941.“
í bréfi Steindórs Steindórs-f
sonar er sýnt fram á, að náttúru-
fræðikennslan geti, við þau skil-
yrði sem skólinn býr nú sakir
þrengsla, ekki samsvarað þeim
kröfum, sem nú eru almennt gerð
ar um kennsluaðferðir í þessari
mjög svo mikilvægu kennslu-
grein.
Nýjustu fréttir herma, að fjár
veitinganefnd Alþingis hafi sam
þykkt að taka upp í fjárlög 500
þús. kr. fjárveitingu til heima-
vistarhúss við Menntaskólann
hér. Húsameistari ríkisins eða
öllu heldur staðgengill hans,
Bárður ísleifsson, áætlar, að
húsið muni kosta um 3 millj. kr.
Er því sýnt, að þeir, er málum
ráða á Alþingi, ætla sér að reisa
húsið á nokkrum árum. Slíkt er
ekki aðalatriði, heldur hitt, að
víst má telja, að húsið verður
reist.
Sökum eldhættu í skólanum
hefir verið ráðinn vökumaður
við stofnunina hr. Sigurður Sig-
urbjörnsson.
x.
Almennur
borgarafundur
um áfengismál var haldinn hér
á Akureyri Mánudaginn 3. Des.
sl., að tilhlutun ýmissa félaga-
samtaka í bænum, bæjarstjórn-
ar og skóla.
Snorri Sigfússcln skólastjóri
setti fundinn með ávarpi og
stýrði honum, en ritari var Ei-
ríkur Sigurðsson kennari.
Þessir fjórir menn fluttu stutt-
ar framsöguræður: Þorsteinn M.
Jónsson skólastjóri, Brynleifur
Tobiasson menntaskólakennari,
Jóhann Þorkelsson héraðslæknir
og Ármann Dalmannsson form.
íþróttabandalags Akureyrar. —•
til máls: Helgi Valtýsson, Hall-
ur Helgason, Lárus Thoraren-
sen, Bjarni Halldórsson, Rós-
berg Snædal, Jónas Jónsson og
Áskell Snorrason.
Á fundinum mættu um 300
manns og kom þar fram mikill
áhugi á að takast mætti að ráða
bót á vaxandi áfengisnautn
Auk þeirra tóku eftirtaldir menn
þjóðarinnar og því böli er hún
veldur.
Voru þessar tillögur þar sam-
þykktar einum rómi:
1. Almennur borgarafundur
á Akureyri, haldinn 3. Desem-
ber 1945, skorar á ríkisstjórn-
ina að láta lögin um héraðabönn
koma nú þegar til framkvæmda.
2. Almennur borgarafundur á
Akureyri, haldinn 3. Desember
1945, telur með öllu ófært að
auðvelda mönnum að ná í á-
fengi, með því að fjölga útsölu-
stöðum þess, eða á annan hátt,
og mótmælir því öllum ráðstöf-
unum hins opinbera er stefna í
þá átt.
3. Eins og nú er komið mál-
um, og með tilliti til þeirra á-
stæðna, sem skapast hafa vegna
hinnar stórauknu áfengissölu og
áfengisnautnar hér, átelur al-
mennur borgarafundur á Akur-
eyri, haldinn 3. Des. 1945, þá
fyrirætlun ríkisstjórnarinnar að
ætla að stórminnka fjárframlag
ríkisins til lögregluhalds á Ak-
ureyri, þar sem vitanlegt er, að
mikið af starfi lögreglunnar er
vegna ölvunar, sem er bein af-
leiðing áfengisverslunar ríkis-
ins hér á staðnum. Fundurinn
lýsir sig samþykkan nýlega
geVðri samþykkt bæjarstjórnar
Akureyrar um þetta mál.
4. Almennur borgai’afundur,
haldinn á Akureyri, 3. Desem-
ber 1945, skorar á stofnanir, fé-
lög og félagasambönd í bænum