Alþýðumaðurinn - 24.06.1947, Síða 4
« ALÞÝÐUMAÐURINN Þriðjudagur 24. júní 1947
OrðsendiDg frð heiibrigðisstjðrn
' Um þessar mundir verður gerð til-
raun til algerrar rottueyðingar hér á
Akureyri á sama hátt og gerð var í
Reykjavík á síðastliðnu ári. Náðist
þar ágætur árangur, og standa mikl-
ár vonir til, að svo fari einnig hér.
Breakt félag, hið sama og starfaði að
þessu máli í Reykjavík, hefir tekið
að sér rottueyðinguna hér á Akur-
eyri. Heitir það „British Ratin Com-
pany Ltd.“, og eru komnir hingað á
vegum þess þrír sérfræðingar í þess-
um rnálurn: Mr. Allan Stanvay og að-
stoðarmennirnir Mr. Colin McKin-
non og Mr. Charles Ridley.
Efnin, sem notuð eru við eyðing-
una, erú framleidd í Ratin-efnasmiðj-
unni í Kaupmannahöfn, og eru þau
þrenns konar. Hið fyrsta, ratin, er
fljótandi. Er það notað á þann hátt,
að brauð er bleytt í því, og veldur
það veikindum í rottunum, sem
venjulega dregur þær til dauða á
níu dögum. Þessi aðferð er á marg-
an hátt hin heppilegasta. 1 fyrsta lagi
veldur þessi haegfara eitrun því, að
rotturnar hænast að agninu dögum
saman, án þess að verða varar nokk-
urrar grunsemdar, en að ná því hefir
löngum verið örðugasti hjallinn á
leiðinni til fullkominnar eyðingar
þessara meindýra. í öðru lagi fylgir
þessu sá kostur, að rottur, er rífa i
sig félaga sína, er farizt hafa af þess-
ari eitrun, sýkjast einnig. Ýmsir hafa
að vísu andúð á slíkri eitrun, en þeg-
ar þess er gætt, að rotturnar sækjast
mjög eftir að éta aðrar rottur, ef þær
ætla, að þær hafi drepizt á eðlilegan
hátt, verður naumast hjá því komizt
að nota þessa aðferð. En því miður
gengur ratin ekki af öllum rottum
dauðum, enda er því svo farið í riki
náttúrunnar, að jafnan eru einhverj-
ir einstaklingar ónæmir fyrir hverri
tegund sýkingar. En, sem betur fer,
er hér um að ræða mjög lágan hundr-
aðshluta af rottum, er þola ratin. Er
þá gripið til annars ráðs, eiturs, er
nefnt er ratinin og framleitt er úr
jurtum. Drepur það rotturnar á fáum
klukkustundum. Enda þótt ratinin sé
eitur, er það eingöngu miðað við
rottur og algerlega óskaðlegt öðrum
dýrum og mönnum. Að loknu þessu
öðru stigi eyðingarinnar ætti rottan
að vera nálega úr sögunni, en þó
verður löngum eitthvað örlítið eftir
enn, og er þá gripið til nýrra ráða.
Þetta þriðja og síðasta stig eitrunar-
innar er kallað ratin-auki. Þetta eitur
er gjörólíkt ratinin og er hættulegt
mönnum og skepnum. Verður því að
gæta ýtrustu varúðar í meðferð þess,
enda er sú bót í máli, að sjaldan þarf
að grípa til þess og þá jafnvel farið
mjög varlega. Daginn eftir að eitrað
hefir verið með því, inun verða séð
um, að hverju leyfðu agni verði safn-
að og þeim brennt. Ætti því hætta,
sem af þessu getur stafað, að vera
sáralítil, enda barst bæjarskrifstofun-
um í Reykjavík ekki ein einasta krört
un um slys, er hlotizt hefðu þar af
eitruninni.
Aðgerðir þessar hófust hér í bæn-
um mánudaginn 23. júní. Stendur
fyrsta stig eitrunarinnar yfir um
þrjár vikur, annað nálægt hálfum
mánuði og hið síðasta um viku.
Komið verður í hvert hús í bæn-
um og eitrað, nema öruggt sé um, að
þar hafizt ekki rottur eða mýs við.
Undirritar þá húsráðandi yfirlýs-
ingu um, að svo sé. Ef svo er ekki,
fer eitrunin fram með þeim hætti,
sem hér hefir verið lýst. Að loknu
hverju stigi ber húsráðanda einnig
að undirrita viðurkenningu um, að
eitrun hafi verið framkvæmd og skal
kvittun þessi afhent við næstu um-
ferð. Miklar vonir eru þó um, að
Mernitasköianum á
Akureyri
var slitið 17. júní. Var þá utskrifað-
ur 20. stúdentahópurinn frá skólan-
um og hafa þá alls 566 stúdentar út-
skrifast þaðan. Að þessu sinni út-
skrifuðust 47 stúdentar, 24 úr mála-
deild, en 23 úr stærðfræðideild. —
Hæstu einkunn hlaut Halldór Þor-
inar, Laufási (stærðfræðideild) 7.40,
en hæstu einkunn máladeildar hlaut
Sigurlaug Bjarnadóttir, Vigur, 7.21.
Hæst er gefið 8 við skólann. 36 af
stúdentunum hlutu 1. eink., 11 II.,
en enginn III.
Allmargir 10 ára stúdentar voru
við skólaslitin. Afhentu þeir skólan-
um að gjöf málverk eftir einn þeirra
bekkjarfélaganna, Sigurð Sigurðs-
son frá Sauðárkróki. Sömuleiðis til-
kynntu 15 ára stúdentar gjöf til
skólans. Verður það málverk af Sig-
urði Guðmundssyni, skólameistara,
gert af Jóni Stefánssyjii, listmálara.
Þá hafa fyrir nokkru 88 gagnfræð-
ingar lokið prófi við skólann, þar af
50 með 1. eink., 36 með II. og 2 með
III. Hæstu einkunn hlaut Sveinn
Skorri Höskuldsson 7.06.
víða fari svo, að ekki komi til þessa,
heldur dugi fyrsta eða a. m. k. annað
stig eitrunarinnar til að eyða rottun-
um að fullu. Gefur þá húsráðandi
viðurkenningu um, að svo sé.
Verk sem þetta krefst mikillar ná-
kvæmni og alúðar, og er þess fast-
lega vænzt, að bæjarbúar bregðist
vel við, hafi sem bezta samvinnu við
hina erlendu sérfræðinga og greiði
götu þeirra í þessu menningarstarfi.
Alveg sérstaklega er bráðnauðsyn-
legt, að skýrslurnar um, hvernig eyð-
ingin hafi tekizt séu svo sannar og
réttar sem frekast er kostur á.
Skýrslur hafa verið gerðar um á-
standið í hverri húseign í bænum,
og má telja öruggt um, að komið
verði til eitrunar í öll hús, þar sem
tilkynnt hefir verið um rottur. Saroa
máli gildir og um hús, sem reist hafa
verið síðan skýrslugerð þessi fór
fram. En fari svo, að eftirlitsmenn-
irnir hafi ekki komið í eitthvert hús
12. júlí, á að beina umkvörtunum um
það til heilbrigðisfulltrúa, í síma 196,
og verður þá séð um, að eitrunin sé
framkvæmd reglulega.
NÝKOMIÐ:
Strigaskór með gúmmísólum, nr. 39—44.
Barnasandalar með hrógúmmísólum.
Bússur, hólfhóar.
SkSbOð KEA
AÖalfundur
Flugfélags íslands, h.f. verður haldinn í
Kaupþingssalnum í Reykjavík föstudaginn
27. júní n. k. kl. 2 e. h.
Afhending aðgöngu- og atkvæðamiða fer
fram í skrifstofu félagsins í Lækjargötu 4,
dagano 25. og 26. júní.
STJÓRNIN.
AUGLYSING
um arðsútborgun
Samkvæmt ákvörðun aðalfundar verður greiddur 4% arður
af hlutabréfum bankans fyrir árið 1946.
Arðmiðar verða innleystir í aðalþankanum í Reykjavík og í
útibúum hans á venjulegum skrifstofutíma.
Útvegsbanki íslands h.f.
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda hluttekningu við andlát og
jarðarför konu minnar
Ólofíu Bjarnadóttur Hjaltalín.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Kristján Ásgeirsson.